Leita í fréttum mbl.is

Fjallið fékk jóðsótt.

Er ekki makalaust hvernig heilli þjóð er haldið uppi á kjaftæði um ekki neitt til þess að draga athygli hennar frá raunverulegum vandamálum sínum ?

Finnst engum nema mér spaugilegt að sjá nefndarmennina í rannsókn Alþingis sitja eins og puntaða kjölturakka fyrir framan fréttamenn og segja þeim að skýrslan sé alveg að koma ? Halda spennunni eins og það sem í henni stendur muni marka einhver tímamót ?

Hvað gerist þegar hún loksins kemur ? Fara fréttamenn að lesa og reka upp einhver öskur eftir því hvar þeir standa í pólitíkinni ? Finna  þeir finna eitthvað sem svertir stjórnvisku Davíðs og Geirs ? Hvítþvær Jóhönnu af því hún hafi ekki skilið neitt í samhengi hlutanna ? Sýnir það að Steingrímur J. hafði rétt fyrir sér á þessum eða hinum tímanum fyrir þennan tíma ? Bla bla bla ? Meðan heimilin fara á uppboð vegna aðgerðaleysis ?

Fer Kalli Werners beint í tukthúsið þegar skýrslan kemur út ? Eða Jón Ásgeir ? Eða stendur eitthvað um í skýrslunni að það þurfi að vísa einhverju til dómstóla sem við erum búin að kjafta um í meira en ár? Er þessi skýrsla einhver uppgötvun sem getur nýst sérstökum saksóknara til þess að fara að rannsaka eitthvað sem hann hefur ekki hugmynd um í dag ? Er nefndin yfirsaksóknari sem er miklu betri en sérstakur eða Eva Joly ? Bætir þetta eitthvað atvinnuleysið eða vanda heimilanna ? Fjármögnun og sölu bankanna af ráðherra án heimildar frá Alþingi ?

Eða er þessi nefnd skipulögð tilraun til þess að friða fólkið og fjölmiðlana í því að að þetta sé alveg að koma, það sé bráðum einhver skýring á veruleikanum í dag ?

Er ekki bara  réttast sé að þessi nefnd leggi skýrsluna inn í Þjóðskjalasafnið með tíu ára lás og við hættum að borga þeim kaup fyrir eitthvað sem engu máli skiptir lengur ? Snúum okkur hinsvegar að hvað við ætlum að gera til að bjarga þjóðinni ? Nær ekki sérstakur einhvern tímann að koma þeim í tukthúsið sem eiga það skilið ?

Er þessi skýrsla bara ópíum fyrir fólkið í anda Leníns ? Fjall sem fékk jóðsótt en fæddist lítil mús ?

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Árni Gunnarsson

Sannarlega er von að þú veltir þessu fyrir þér eins og fleiri. Svo er það spurningin hverjum fólk treystir best og að hverju hver og einn muni leita. Sjálfur á ég auðvelt með að svara. Ég mun leita að því sem ekki birtist í skýrslunni. Og ástæðan er einföld; ég mun verða áfram tortrygginn á þessa rannsókn.

Mér er nefnilega ljóst að skýrslan mun verða enn ein sönnun þess að hér ríkir slík spilling á öllum stigum stjórnsýslu jafnt og embættismannakerfis að það er blátt áfram útilokað að nokkur "málsmetandi" einstaklingur muni finnast hér á landi sem er fullkomlega treystandi til að starfa af fullum heilindum við þá ábyrgð sem að baki liggur.

Öll erum við tengd beint eða óbeint einhverjum þeirra einstaklinga sem hafa sýkst af þeirri siðrænu úrkynjun sem þróast hefur í samfélagi okkar og sum hver erum við þar meðtalin.

Ég játa að enda þótt ég telji sjálfan mig ekki flokkast undir málmetandi hóp þá hefði ég eftir nokkra umhugsun ýtt frá mér starfi á borð við þetta.

Og það vekur athygli mína að í þessari færslu þinni er ódulinn undirtónn sem birtist í því að það fyrsta sem þú gefur þér er að það muni jafnvel koma í ljós eftir að skýrslan birtist að fólk vænti þess að sjá eitthvað sem varpað geti skugga á ásýnd tilgreindra manna!

Í skoðanakönnun sem hér til hliðar má sjá að áberandi meirihluti þeirra sem lesa færslur þínar treystir Davíð Oddssyni best af fyrirmönnum þjóðar okkar svonefndum. Ekki færri en 39.4% bera þetta fölskvalausa traust til mannsins sem stýrði einkavæðingu bankanna okkar, seldi þá fyrir Kolaportsverð, flaug á erlenda grund til að mæra þá í veislum og afhenti heiðursviðurkenningu. Sat þá og allan þeirra glæsta feril í Seðlabanka þjóðarinnar og hrökklaðist að lokum frá honum gjaldþrota.

Þinir tryggu lesendur biðja nú ekki um mikið. 

Árni Gunnarsson, 26.1.2010 kl. 14:34

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Skyldu bara koma jábræður mínir og Davíðsdýrkendur að lesa þetta dund mitt ?

Ég bendi þér á Árni minn, að skoðanakönnun á Reykjavík síðdegis vear mjög í þessa veru líka. Getur það verið að þú sért bara með róg og bull um Davíð ? Þú sért bara veruleikafirrtur og lifir í ímynduðum heimi þar sem allir eru vondir við þig?

Ekkert geti skeð fyrir slys eða menn gert axarsköft án þess að hafa ætlað það?

Halldór Jónsson, 26.1.2010 kl. 14:44

3 Smámynd: Árni Gunnarsson

Halldór. Við skulum bara reyna að horfa á sviðið eins og það blasir við okkur hverju sinni. Það eru mörg ár síðan ég taldi mig sjá að landið mitt var í klóm spillingar og hún fór vaxandi, enda voru raddir okkar sem á það bentu yfirgnæfðar með ásökunum um róg og öfund.

Það hefur enginn verið vondur við mig enda veit ég ekki til að ég hafi kvartað yfir því við nokkurn mann. En ég leyfi mér að mótmæla öllum þeim sem hafa þegið umboð mitt og þjóðarinnar og þeir sem ég hef treyst fyrir mínu umboði geta vitnað um allt annað en það að ég hafi sungið þeim tilbeiðslustef.

Ég er ekki haldinn neinu heilkenni í garð Davíðs. En ég ætlast til annars af fluggreindum mönnum (engin nöfn nefnd) en þess að dá hann og dýrka fyrir sín afglöp.

Stjórnsýsla sem leiðir af sér algert hrun þjóðarbúsins er ekki axarskaft. Það er stjórnsýsluglöp og við þeim liggur hörð refsing verði þau sönnuð.

Ég er orðinn hundleiður á horfa óg hlusta á menn rífa kjaft í skjóli þess að þeir séu ósnertanlegir.

En til eru þeir sem telja sér skylt að horfa aðgerðarlausir á afkomendur sína setta í nauðungarvinnu vegna afglapa þeirra sem þáðu traust og umboð gegn um lýðræðislega kosningu. 

En, laug ég einhverju upp á Davíð?  

Árni Gunnarsson, 26.1.2010 kl. 17:16

4 Smámynd: Flosi Kristjánsson

Við ættum að gera ráð fyrir fleiri atriðum í skýrslunni en áfellisdómi yfir hverjum þeim sem okkur hugnast ekki af stjórnmálamönnum.

Það er eitt að setja lög og reglur og annað að sjá til þess að þeim sé framfylgt. Hið sama á væntanlega við áform mannanna og skipulag sem þeir koma upp hjá sér. Einhver þarf að hafa auga með þeim sem starfa eftir því. Bregðist það má vænta þess að hinar dekkri hliðar mannlegs eðlis kræli á sér með ófyrirsjáanlegum afleiðingum.

Þeir sem vildu innleiða aukið viðskiptafrelsi á Íslandi gerðu kannski ekki ráð fyrir því að eitthvert "batterí" þyrfti til þess að hafa eftirlit.

Gamli, gráhærði hrokkinkollurinn sem strokið hefur mönnum andhæris í gegnum árin er ekki alfa og ómega í óförum okkar á árunum 2006, 2007 og 2008. En rétt er að hann hefur pirrað margan vænan vinstrimanninn hreint óskaplega!

Flosi Kristjánsson, 26.1.2010 kl. 17:23

5 Smámynd: Árni Gunnarsson

Ég mun reyna að varast það að áfellast nokkurn framar hér á þessari síðu fyrir einhver leiðinda axarsköft á borð við það að koma þessari þjóð minni á slóðir örbirgðar. Ég hef svo sem lengi vitað það að trúarbrögð og hollusta við Foringja er óvinnandi vígi í rökræðu. Einfaldasta leiðin til að láta sér líða bærilega er að vera rökheldur.

Árni Gunnarsson, 26.1.2010 kl. 20:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 7
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 63
  • Frá upphafi: 3418166

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 59
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 7

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband