Leita í fréttum mbl.is

Hversvegna þegja Sjálfstæðismenn ?

Á Ejunni er kjördæmamálið tekið upp:

 "Lagt hefur verið fram frumvarp á Alþingi þess efnis að gera landið allt að einu kjördæmi í kosningum. Telja þeir sem að frumvarpinu standa tími til kominn að vægi atkvæða verði jafnað en hingað til hefur vægi landsbyggðarfólks verið ívið meira en vægi fólks á þéttbýlli svæðum suðvestanlands.

Að frumvarpinu standa alls nítján þingmenn úr öllum flokkum nema Sjálfstæðisflokki og er Björgvin G. Sigurðsson, Samfylkingu, fyrsti flutningsmaður þess.

Forvitni Eyjunnar var vakin á hvers vegna Sjálfstæðismenn væru þeir einu sem ekki koma að frumvarpinu en öllum formönnum flokka á þingi var send tilkynning um málið og beiðni um stuðning. Eitthvað hefur það skolast til því þeir þingmenn Sjálfstæðisflokksins sem Eyjan ræddi við komu af fjöllum aðspurðir.

Segir í frumvarpinu að grundvallaratriði sé að gera landið að einu kjördæmi og þannig leggja að jöfnu öll atkvæði kosningabærra í landinu hvar sem þeir búa. Er gengið svo langt að segja að um hreint og beint mannréttindamál sé að ræða. Þykir þó ljóst að vanda beri mjög til verka enda kalli slíkt á breytingar á stjórnarskrá landsins og ekki megi kasta til hendinni við undirbúning. Gefa þurfi sér góðan tíma og hann sé fyrir hendi nú á vordögum að mati flutningsmanna."

 Ég heimta svör frá þingmönnum Sjálfstæðisflokksins hversvegna landið get ekki verið eitt kjördæmi ef þeir geti ekki skaffað jafnan atkvæðisrétt á annan hátt? Ég nenni ekki að elta þingmenn sem geta ekki svarað hreint út. Þetta er grundvallarmál fyrir mig og marga sem ég þekki.

Svarið þið Sjálfstæðismenn!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Björn Birgisson

Halldór minn, getur verið að Sjálfstæðismenn séu hættir að lesa bloggið þitt? Eitthvað er fátt um svörin!

Björn Birgisson, 17.3.2010 kl. 14:18

2 Smámynd: Magnús V. Skúlason

Segðu mér þá eitt, ef allt landið verður að einu kjördæmi og jafnvel fari svo að einmenningsframboð verði leyfð, hvaða frambjóðandi á t.d. eftir að vilja fara á Hólmavík til þess að heyra í kjósendum þar?

Magnús V. Skúlason, 17.3.2010 kl. 15:16

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Björn

Líklega hefur þú rétt fyrir þér sem oft áður.

Magnús, Einmenningsframboð, ég hef ekki heyrt um það. Ég hélt að hvert framboð yrði að geta tekið við öllum sætum sem í boði eru og einnig varamönnum. Hver listi yrði að vera með 126 nöfn. Væntanlega sem kjósendur myndu raða. Það gengi ekki að þú byðir þig fram sem einn maður á lista og landið myndi kjósa þig en enginn hina listana, yrðir þú þá einn á þingi?

Þetta verður auðvitað að útfæra betur. Mér sama hvvernig svo lengi sem við höfum hnífjafnan atkvæðisrétt. Til dæmis að taka upp bandarísku stjórnarskrána, þjóðkjósa forsetann/forsætisráðherrann/leiðtogann og svo fulltrúadeild og landshlutadeild. Það verður  að brjóta þessa kjördæmaskipan upp  sem nú ríkir.Einfalt og gagnsætt kerfi en ekki eitthvað flakkarakerfi sem fáir skilja.

Halldór Jónsson, 17.3.2010 kl. 15:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 12
  • Sl. sólarhring: 12
  • Sl. viku: 60
  • Frá upphafi: 3418211

Annað

  • Innlit í dag: 12
  • Innlit sl. viku: 60
  • Gestir í dag: 12
  • IP-tölur í dag: 12

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband