Leita í fréttum mbl.is

Þvert nei er Vinstri Gunnfáninn !

"Tilkynning frá E.C.A.

Ýmsar rangfærslur hafa verið settar fram um fyrirtækið E.C.A. í fjölmiðlum síðustu daga. Reynt hefur verið að slá ryki í augu fólks og gera fyrirtækið tortryggilegt með gífuryrðum og háðsglósum. Því vill E.C.A. koma eftirfarandi staðreyndum á framfæri:
• E.C.A .er ekki hernaðarfyrirtæki í beinum skilningi þess orðs. E.C.A. er þjónustufyrirtæki og verktaki sem þjónustar ýmsar aðildarþjóðir NATO.
• E.C.A. er skráð fyrirtæki sem þarf að fara eftir ströngustu reglum Evrópusambandsins.
• Stofnað hefur verið E.C.A. Program Iceland ehf.
• Allar staðhæfingar um hernaðarbrölt fyrirtækisins eru úr lausu lofti gripnar og vísar E.C.A. þeim á bug.
• Mikil undirbúningsvinna hefur verið í gangi til að kanna möguleika á að E.C.A. Program Ltd (European Combined Aircraft) geti starfrækt heimastöð á flugvallarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli.
• Ef verkefnið nær fram að ganga er um að ræða mikla lyftistöng fyrir svæðið og landið í heild.
• Húsnæðisþörf fyrirtækisins er í fyrsta áfanga er um 12.600m² og fyrirhuga aðilar að byggja nýtt flugskýli. Fjárfesting upp á 3-3,5 milljarða króna.
• Um er að ræða 150-200 tæknistörf.
• E.C.A. mun byggja starfsemi sína hér á landi á heimastöð fyrir óvopnaðar flugvélar sem munu þjónusta hinar ýmsu aðildarþjóðir NATO.
• Útseld þjónusta E.C.A. mun öll fara fram í öðrum löndum en öll viðhalds- og tækniþjónusta er fyrirhuguð á Íslandi.
• Ef verkefnið gengur eftir er um að ræða friðsamlega heimastöð E.C.A. í landi sem hefur uppá að bjóða vel menntað starfsfólk, góða aðstöðu og bestu mögulegu staðsetninguna.
E.C.A. mun halda blaðamannafund þegar nær dregur og koma á framfæri frekari upplýsingum."

Svar VG er þvert nei.

Hversu miklu tjóni á þetta fornaldarapparat sem kallast VG eftir að valda þjóðinni til viðbótar ? Þeir eru á móti því að fá fé inní landið. Þeir eru á móti stóriðju. Þeir eru á móti hagvexti. Þeir eru á móti atvinnutækifærum.

Þeir eru bara á móti öllu. Þvert nei er  Vinstri Gunnfáninn !

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: hilmar  jónsson

Halldór: Hefurðu velt fyrir þér af hverju aðrar þjóðir vilja þá ekki, eða þá af hverju þeir tjalda ekki sinni hergagnaleigu í heimahögunum ?

hilmar jónsson, 19.3.2010 kl. 00:26

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Það er nokkuð ljóst Hilmar að loftrýmið í kringum Ísland gefur meiri möguleika fyrir hraðfleygar þotur en stappan í Evrópu. Hversvegna flykkjast þær þjóðir´hingað í loftrýmiseftirlit og láta okkur borga ?

Halldór Jónsson, 19.3.2010 kl. 00:42

3 Smámynd: Björn Birgisson

Halldór, ert þú ECA formlegur talsmaður, eða ertu bara að tala frá eigin hjarta?

Eitt skaltu vita, minn kæri. Ég hef kynnt mér þetta mál eins vel og mér er unnt. Mín afstaða, sem Suðurnesjamanns og alvöru Íslendings, er ótvíræð. Vilji ECA koma til Keflavíkur, þá fagna ég því.

Þetta er frábær hugmynd hjá þeim og ber ekki á nokkurn hátt í sér vopnaskak á Íslandi.

Þar liggur pointið, minn kæri.

Vinnufúsar hendur hér suður frá bíða eftir verkefni sem þessu. Reyndar vinnufúsar hendur um allt Suðvesturland.

Ef VG vill þetta í ruslakörfuna þarf Alþingi, með fulltingi allra, nema þá hluta af VG, að hjálpa ECA og Suðurnesjamönnum (þjóðinni) að gera þessa hugmynd að veruleika.

VG menn hampa gjarnan lýðræðishugsjóninni og það er gott hjá þeim. Hún byggist alfarið á vilja meirihlutans hverju sinni. VG menn skilja það manna best.

Þeir eru skynsamari en svo að skjóta svona gott mál í kaf, í blóra við meirihlutavilja þjóðarinnar.

Skítt með Icesave, skítt með ESB. Það eru langtímaverkefni.

Þetta gerum við og þurfum að gera, ef ECA stendur við sitt.

Og hana nú.

Björn Birgisson, 19.3.2010 kl. 00:48

4 Smámynd: Halldór Jónsson

Nei Björn

Ég er bara atvinnusinni og hagvaxtareðjót. Ég trúi á að vinnan auki velsældina og ekkert annað. Gef oss meira puð stóð í kvæðinu.

Halldór Jónsson, 19.3.2010 kl. 02:35

5 Smámynd: Njáll Harðarson

Ég er reyndar búinn að segja mitt álit inni á mínu bloggi. En ég verð að bæta í að Ímynd Íslands hefur stoðir í hvernig landið er og fólkið hagar sér sem byggir landið, Icesave er gott dæmi um það.

Því miður gáfu Sjálfstæðis og Framsóknarflokkur jáyrði sitt við stuðning Íslands á stríðinu sem enn geysar í Afganistan, kannski vegna þess að lygar Breta (ekkert nýtt þar) villtu um. En engu að síður þá tókum við þátt í þessu stríði.

Spurningin er hvort við erum hlutlaus þjóð. Því verður að svara neitandi, við erum í Nato sem er hernaðarbandalag, á meðan við erum í Nato þá er okkur varla stætt á að vera með  múður. Á þeim forsendum getum við bara sagt ók strákar, komið þið með rellurnar og peningana.

Eini ljósi punkturinn sem ég sé í þessu máli væri ef við settum inn í samkomulagið að ECA sæi um eftirlitsflug í flugstjórnarsvæðinu. Ég held líka að það sé bull að halda því fram að flugvélarnar séu alltaf vopnlausar enda hljóta þær að vera hlaðnar þegar þær halda af stað FRÁ ÍSLANDI til stríðshrjáðra landa þar sem þær væntalega taka þátt í að drepa fólk.

Njáll Harðarson, 19.3.2010 kl. 09:47

6 Smámynd: Árni Gunnarsson

Þessi stríðstól eru aldrei notuð til manndrápa nema í afskaplega góðum og kristilegum tilgangi.

Árni Gunnarsson, 19.3.2010 kl. 10:27

7 Smámynd: hilmar  jónsson

Áfram kristmenn krossmann......

hilmar jónsson, 19.3.2010 kl. 10:55

8 Smámynd: Halldór Jónsson

Njáll,

Ætli þetta samnýtist ekki sem eftirlitsflug. Baunarnir myndu aldrei þora að skjóta á Rússa í eftirlitsflugi svo það skiptir engu máli hvort þessar vélar sé vopnaðar eða ekki. Það er interceptið sem skiptir máli í svona stríðsleikjum, ekki annað.

Halldór Jónsson, 19.3.2010 kl. 12:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 4
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 3417959

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 48
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband