Leita í fréttum mbl.is

Innrás Evrópubandalagssinna á landsfund ?

Umræðuhópar störfuðu  nú eftir einhverju þjóðfundarmódeli á landsfundi Sjálfstæðismanna. Setið var á hringborðum á gólfi Laugardalshallar og menn ræddu málaflokka í svona 7-12 manna hópum. Ég sat í utanríkismálum og fundust mér umræðurnar gagnvart ESB ganga nokkuð í þá veru sem rætt er í þjóðfélaginu. Var ljómandi skemmtilegt  að hlusta á vel greint og upplýst fólk á þessu borði og ekki gat ég greint neinn sérstakan útsendara Evrópusamtaka á þessu borði.  Því meiri undrun mína vakti samantekt Björns Bjarnasonar af öllum utanríkisborðunum 

Þegar Björn dró saman niðurstöður úr undirhópunum var niðurstaðan af umræðunum á allt annan veg en þetta og skoðanakannanir hafa sýnt að er uppi með þjóðinni. Það komu núna  sterkar raddir af mörgum borðunum fyrir inngöngu í ESB og halda áfram viðræðum um inngöngu. Þvert á það sem forystan hefur rætt.  Þannig mátti halda  að hlutföllin hafi gerbreyst innan Sjálfstæðisflokksins varðandi afstöðuna til ESB.

Ég átti hreinlega bágt með að trúa þessu eins og Björn lýsti þessu  og hallast að því að Evrópusinnar hafi skipulagt þátttöku á einhverjum borðum til þess að tala fyrir aðild og aðildarviðræðum þvert ofan í það sem uppi hefur verið um að hætta viðræðunum, sérstaklega eftir að ljóst er að Bretar og Hollendingar skilyrða inngönguna við það að við undirgöngumst skuldbindingarnar vegna Icesave.

 Ég hallast að því að það hafi verið gerð innrás á landsfundinn af skipulögðum baráttuhópi Evrópusinna. En þetta mun allt koma betur í ljós á morgun og illa þekkir forysta flokksins sjálfstæðismenn ef slík er niðurstaðan. Baugsmiðlarnir eru heldur ekki langt undan á fundinum  enda sprangaði forstjóri 365 miðla keikur um salina.  

Ég trúi ekki öðru en að atkvæðagreiðslur og umræður  á fundinum leiði sannleikann um afstöðu fundarmanna  til ESB í ljós á morgun. En það getur hugsanlega verið að þarna gerist eitthvað mjög óvænt. Við sjáum til.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristinn Karl Brynjarsson

Þetta er ljótt, ef satt er, Halldór.  Ég er samt á því að tillagan um að draga til baka umsóknina, verði að leggja fram á fundinum og kjósa hana.

 Samkvæmt nýjustu könnunum, þá er fylgi við umsóknina, undir kjörfylgi flokksins.  Það þýðir þá, að örsmár hluti kjósenda flokksins styður umsóknina, sé reiknað með því að kjósendur Samfylkingar styðji hana.

 Flokkurinn þarf að taka afstöðu gagnvart þessari umsókn.  Það er að pissa í skóinn sinn, að bakka með tillöguna, til þess eins að láta Landsfundinn líta út eins og að mikil "sátt" hafi ríkt á honum.

 Sjálfstæðisflokkurinn á ekki að taka upp þá stefnu að "sitja hjá" í stærstu deilumálum þjóðarinnar

Kristinn Karl Brynjarsson, 25.6.2010 kl. 22:54

2 Smámynd: Björn Birgisson

Frábær fundur fólks sem getur ekki tekið afstöðu. Lið sem ekki er á vetur setjandi.

Björn Birgisson, 25.6.2010 kl. 23:20

3 Smámynd: Árni Gunnarsson

Héðan af getur landsfundurinn ekki skilað auðu í þessu umdeilda máli. Allt of margar yfirlýsingar og ályktanir formannsins og margara annara áhrifamanna innan flokksins hafa gefið sterkar vísbendingar um að Sjálfstæðisflokkurinn krefjist þess að umsóknin verði dregin til baka.

Allar skoðanakannanir sýna þverrandi áhuga á ESB aðild og engar líkur til þess að umsókn yrði samþykkt í fyllingu tímans.

En þjóðin mun ekki sameinast um þetta mál hvor leiðin sem farin verður.

Árni Gunnarsson, 25.6.2010 kl. 23:36

4 Smámynd: Kristinn Karl Brynjarsson

Þessi svokallaða "ákvörðun" þjóðarinnar, verður tekin í "ráðgefandi" þjóðaratkvæðagreiðslu.  Miðað við skilning núverandi stjórnarmeirihluta á þjóðaratkvæðagreiðslum, þá efast ég um að þau muni hlýta "ráðgjöf" þjóðarinnar í málinu.

Kristinn Karl Brynjarsson, 25.6.2010 kl. 23:47

5 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Heldur þú að þessi áhugi nokkurra Sjálfstæðismanna á að gagna í Austur Evrópusambandið, tengist nokkuð tengslum hluta flokksmanna við Baug?

Sigurður Þorsteinsson, 26.6.2010 kl. 00:07

6 identicon

ljótt er það ef att reynist Halldór. Eitt er víst að ég mun segja mig úr flokknum ef að þetta verður ofan á og ekki kjósa hann næst eins og ég hafði hugsað mér.

Ef að þetta er staðreynd, þá eru þetta hræringar á landsfundinum sem eru langt frá vilja þjóðarinnar.

Ef að Sjálfstæðisflokkurinn fer í þessa átt, þá er hann búin fyrir mér.

Flokkurinn verður að taka harða afstöðu gegn ESB aðild.

sandkassi (IP-tala skráð) 26.6.2010 kl. 03:46

7 identicon

Sigurður, ekki spurning!

sandkassi (IP-tala skráð) 26.6.2010 kl. 03:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 9
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 57
  • Frá upphafi: 3418208

Annað

  • Innlit í dag: 9
  • Innlit sl. viku: 57
  • Gestir í dag: 9
  • IP-tölur í dag: 9

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband