Leita í fréttum mbl.is

"Þetta eru aular.."

upp til hópa, sagði vinur minn einn sem ég heimsótti.

Við höfðum minnst á Alþingi og síðustu afrek þess í landsdómsmálinu.  Ég hafði á orði að mér fyndist Alþingi hafa sett niður. "Af hverju ertu skúffaður?" sagði vinur minn, sem hefur verið þingmaður sjálfur. " Við hverju bjóstu? Ég hef kynnst þessu fólki náið. Yfirleitt eru þetta aular sem ekkert geta. Hafa farið inná þing í þeirri von að hækka um launaflokk, barnakennarar, opinberir starfsmenn og skrifstofufólk.  Hvar er  eitthvert fólk sem hefur einhvern tímann gert eitthvað sem máli skiptir?  Mest af þessu fólki er ekki hægt að nota annarsstaðar. Þetta eru bara aular sem þú þarft ekki að sjá í neinum hillingum af því að það getur blaðrað um allt milli himins og jarðar. Yfirleitt er bara gráðugt og  fégírugt fólk sem er auk þess auðvelt að flækja í allskyns spillingu."  Og svo taldi hann upp á fingrum sér hvern þingmanninn af öðrum.  Finnst þér þetta vera eitthvert fyrirmyndar fólk sem er ekki alveg hægt að vera án á Alþingi?"

Ég verð að viðurkenna að slíkar hugsanir hafa bærst innra með mér undanfarið þó ég hafi bægt þeim frá mér af því að lengi býr að fyrstu gerð.  Hvað er í rauninni svona merkilegt við þetta fólk niðri á þingi? Af hverju eru ung fífl alltaf betri en gömul fífl?  Af hverju á ég að taka ofan fyrir þessu fólki sem gamalt fífl þegar allar ellibætur eiga að skerðast en laun í stjórnsýslunni hækka stöðugt?  Eru þetta ekki bara venjulegir aular sem geta ekki neitt eins og þessi vinur minn segir?

Sjáið hvernig þeir geta ekki neitt í efnahagsmálum? Hvernig þeir geta ekki neitt til að stöðva hrun hinnar ungu  millistéttar landsins, sem missir hús sín á nauðungaruppboð, að sögn  AGS til dýrðar. Hvernig þeir geta ekkert til að lífga efnahagslífið?  Hvernig þeir þvæla um vexti og verðbætur þegar þúsundir heimila eru að missa aleiguna? Hvernig þeir stytta biðlistana með því að loka spítölunum? Horfa á lífeyrissjóðina kaupa fallítt fyrirtæki sem þeir eftirlifandi verða að kosta? Hvar eru afrekin ? Er hægt að segja að áratuga peningastefna Seðlabankans hafi gengið upp?

Þurfum við ekki að hætta þessu bulli um stýrivexti þegar enginn vill taka lán hvað þá að geyma peninga í bönkunum?  Stefnum við ekki beint í fótspor japanska hagkerfisins? Erum við hugsanlega að komast á sama stig í Íslandssögunni og þegar forfeðurnir gáfust upp á að stjórna sér sjálfir og gengu konungi á hönd í lok Sturlungaaldar?   Er ekki bara nýr Gamli Sáttmáli handa okkur í smíðum úti í Brüssel?  Hví skyldi Skrattinn eiga bara að skeina Gissur í sögunni?

Eigum við að halda þessu striki áfram eða stokka uppá nýtt? Það er eiginlega sama hvað við tekur eftir nýjar kosningar. Eigum við ekki bara að láta fólkið ráða því hverjir taka við. Hugsanlega mun flokkaskipunin riðlast og margir núna sjálfsánægðir detta af þingi fyrir nýjum grínurum og gnörrurum.  Ekkert endilega girnileg tilhugsun fyrir alla. En verður samt að ganga yfir ef við ætlum ekki bara að gefast upp fyrir vitleysunni.

Eru þetta ekki bara aular sem við verðum að losna við ?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Sigurðsson

Steinliggur hjá þér. Heyr heyr

Sigurður Sigurðsson, 30.9.2010 kl. 21:57

2 Smámynd: Aðalsteinn Agnarsson

Halldór, það er gott að þessar hugsanir

eru farnar að vakna hjá þér.

Aðalsteinn Agnarsson, 30.9.2010 kl. 22:25

3 Smámynd: Jón Ólafur Ólafsson

Góð skrif hjá þér frændi

Jón Ólafur Ólafsson, 3.10.2010 kl. 12:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 2
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 3417957

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 46
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband