Leita í fréttum mbl.is

BÖNNUM,bönnum,bö....

er lausn vinstrimennskunnar og ofstjórnarsinna við öllum vandamálum. Og leggjum á skatta til að aðfla fjár til að framfylgja bönnum.

Ég skrifaði fyrir nokkrum dögum svo:"...Er hægt að undirbúa varnir gegn svona með öðru en upphrópunum um bönn við byssum, bönn við áburði, bönn við andúð á Islam, bönn við því að vera á móti stjórnlausri fjölgun innflytjenda?... "

Það stendur ekki á því. Nú er Ögmundur farinn af stað með að endurskoða vopnalögin. Arnþrúður geysir sig á Útvarpi Sögu og hneykslast á lögreglunni að tala um að það sé auðvelt að búa til sprengjur úr áburði. Agalegt af löggumanni að tala svona segir hún. Og blessað fólkið hringir inn og óskapast yfir því að byssur séu ekki skráðar og gangi milli manna án þess að þær séu skráðar og bullar áfram um hluti sem það þekkir ekki.

Auðvitað er þessi umræða byggð á vanþekkingu. Byssur eru undir miklu og góðu eftirliti. Ef einhver gerist brotlegur með ólögleg vopn eða meðferð þá er það alvarlegt mál. Að halda það að að menn geti bara keypt sér áburðarpoka og búið til sprengju er bull. Það er getur enginn nema fleira komi til sem ekki liggur á lausu og Arnþrúður má alveg varpa öndinni léttara yfir því.

Það er nóg af hlutum í umhverfinu sem má nota sem vopn ef brotaviljinn er fyrir hendi. Skrúfjárn er til dæmis hættulegt vopn og maður hefur verið veginn með slíku verkfæri svo ég man til.

Mér finnst meira liggja á að við förum að horfa á okkur sjálf. Hvernig erum við?

Mér er sagt að það verði að fara heilar sveitir manna á göturnar í miðbænum til að hreinsa ruslið eftir skrílinn sem er blindfullur í miðbænum á nóttunni. Menn fleygja frá sér tyggigúmmí, brjóta flöskur ó götunni frekar en að láta þær í rusladall, henda sígarettustubbum frá sér, hegða sér eins og svín. Ætli þetta fólk hafi verð uppalið til að láta svona heima hjá sér? Af hverju eru veitingahúsin ekki gerð ábyrg fyrir þessum kostnaði borgarinnar sem af starfseminni hlýst? Af hverju hagar fólk sér illa? Eru heimilin ekki að standa sig, skólarnir ? Af hverju er ekki sekt við því að fleygja frá sér rusli á götuna? Og líka að selja mönnum eitthvað sem þeir verða vitlausir af ig verða að svínum?

Við leysum ekki skrílsmennskuna með bönnum. Vantar ekki heldur tilfinnanlega uppeldi og aga í þetta þjóðfélag ?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Arinbjörn Kúld

Sammála.

Kveðja að norðan.

Arinbjörn Kúld, 27.7.2011 kl. 09:44

2 Smámynd: Sigurður Alfreð Herlufsen

Jú Halldór, það vantar aga í fólkið. Það vantar virðingu fyrir sjálfum sér og öðrum. Þetta helst allt í hendur.

Virðing fyrir sjálfum sér. Virðing fyrir öðrum mönnum, dýrum og náttúrunni. 

Sigurður Alfreð Herlufsen, 28.7.2011 kl. 01:25

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Sæll Kúld og þakka þér fyrir innlitið. Ég leit við hjá þér og datt um þessa klausu:

"Nú veit ég ekki með ykkur en mér er það löngu ljóst að flokkarnir eru trúfélög og hagsmunasamtök pólítíkusa en ekki flokkar sem rúma margar skoðanir, þar sem hugmyndafræðileg gerjun og þróun á sér stað. Nei – heldur skaltu trúa á hina einu sönnu leið – sama hvað. Við höfum séð örlög þeirra fáu sem hafa vogað sér annað innan flokkana og sjáum enn. Trúfélög skipta ekki um trú og/eða skoðun. "

Ég er ekki sérlega ánægður með þessa skoðun þín sem er eiginlega í uppgjafartón og anarkísk. Maður heyrir þetta útbreitt að fólk helsur þvessu fram . Ég tel mig sjá að þú hafir aldrei gert tilraun til að ganga í flokk og taka þátt í pólitísku starfi. Þú ferð mikils á mis því að í flokkunum verða málin til, þar er stefnan mótuð og hún borin fram af flokknum. Það er enginn flokkseigandi til sem kúgar allt og alla nema þú viljir bara láta kúga þig. Ég hef oft séð formenn Sjálfstæðisflokksin verða hreinlega undir á landsfundum flokksins. Gakktu í Sjálfstæðisfélag í þinni heimabyggð og láttu kjósa þig fulltrúa á landsfund sem verðu í nóvember. Og ég skal taka ábyrgð á því að þú verður hissari en þú hefur nokkurntímann orðið. Ef ég verð þar þá skal ég taka á móti þér með mín sálarkeröld eins og Þórbergur sagði.

Félagi Sigurður

Kannski lagast þetta með uppeldið þegar ungir ÍSlendingar fara að gegna herþjónustu í Evrópuhernum. En það fylgir aðild þó að ´sera Þórir Stephensen leggis sig í líma við að finna undanþágur fyrir ÍSlendinga að axla samevrópska ábyrgð eins og í fiskveiðimálum. Ég hef séð marga unglinga sem hefðu gott af því að læra að bursta skó og temja sér kurteisi í framkomu eins og menn læra af því að vera opinberir ábyrgðarfullir embættismenn þjóðar sinnar eins og hermenn eru.

Halldór Jónsson, 28.7.2011 kl. 13:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 59
  • Frá upphafi: 3418162

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 55
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband