Leita í fréttum mbl.is

Kúbein

er verkfærið sem Hreyfingin virðist ætla að beita til að koma sér inn í Jóhönnustjórnina.

Þeir senda út fréttir um að þeir krefjist að forsetinn skipi þjóðstjórn. Svo greiði þjóðin þjóðaratkvæði um þessa þjóðstjórn. Og ef þjóðin vill ekki þjóðstjórnina þá verði bara Alþingiskosningar. Þeir segja ekki hvað þeir geri ef Jóhanna lætur undan.

Geta þessi "við eplin með" komið með stærri yfirlýsingu?

Það er skiljanlegt að þeir reyni að sprikla eitthvað meðan þeir eru enn á Alþingi. Því með ólíkindum væri ef þeir eigi einhvern hlut að máli eftir þingkosningar. Slík er afrekaskrá þeirra á þingi.

Þeir hafa þó komið einu fram sem halda mun nafni þeirra á lofti. Þeir hættu að mæta með slifsi á þingfundi. Það er að segja karlarnir. Ég veit ekki hvað konurnar gerðu?

Kannski þær hafi bara keypt sér kúbein?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Ríkharðsson

Þessi Hreyfing er mjög undarlegt fyrirbæri í íslenskri pólitík Halldór minn.

Það er nauðsynlegt að koma með nýjar áherslur og ræða alla hluti. Einnig er það til bóta að fá nýtt fólk á þing sem hristir upp í kerfinu, sem er að sumu leiti staðnað.

En Hreyfingin kemur ekki með neitt nýtt, hún gerir ekkert annað en að koma með reiðina út í ríkjandi vald, sem hefur grasserað í aldir, á þing.

Þau bjóða ekki upp á nýjar lausnir heldur skammast út í alla aðra flokka en sinn eigin.

Hvar eru tillögur þeirra um að slíta í sundur viðskipta og fjárfestinga banka? það er eitt af mikilvægustu verkefnunum sem fyrirliggja, en enginn hefur vakið athygli á því.

Ríkið hefur ákveðna peningaupphæð til ráðstöfunar, svo þarf að taka lán.

Ekki hef ég vitað til þess að þau séu að fara yfir peningaeign ríkissins og reyna að forgangsraða rétt, en það er eitt af því sem hefur vantað, einnig að upplýsa þjóðina betur um hina raunverulegu fjárhagsstöðu, ekki hef ég heyrt þau gera það.

Ég er reyndar mikið úti á sjó og heyri ekki alltaf fréttir, það er oft mikil vinna hjá okkur sem betur fer, en ég sé engar breytingar hjá þeim né tillögur um leiðir að sjálfbæru samfélagi.

Þau vilja ekki álver, en við höfum notið góðs af þeim.

Og þetta með að þingmenn þurfa ekki að bera bindi, það finnst mér afturför og lýsa skilningsleysi á anda siðmenningar.

Oft þarf að hugsa aðeins dýpra til að skilja hina ýmsu siði og venjur.

Við notumst við ýmsar siðvenjur til þess að undirstrika aga þann sem þarf að tileinka sér til að sinna ábyrgðarmiklum hlutverkum. Ég held að flestir skilji þetta.

Svo vildi Margrét Tryggvadóttir hætta að segja "hæstvirtur" og "háttvirtur" af því að hún bæri ekki virðingu fyrir þessu fólki sem sat með henni á þingi.

Hún áttaði sig ekki á því að ofangreind ávörp eru ekki til þess að gera einstaklinga háttvirta eða hæstvirta, heldur til þess að efla háttvísi í ræðustól. Svo er embættið sem viðkomandi gengir hæstvirt eða háttvirt, ekki endilega einstaklingurinn sjálfur.

Ýmsar siðvenjur tíðkast í siðmenntuðum ríkjum, þær eru mikilvægar undirstöður sem fá okkur til að bera virðingu fyrir lögum og reglum og ef þessar siðvenjur verða aflagðar, þá hefur það neikvæð áhrif á samfélagið í heild sinni, kannski gætir þeirra ekki svo mikið í fyrstu, en þá er lagt af stað í ákveðna vegferð sem ekki sér fyrir endann á.

Jón Ríkharðsson, 29.12.2011 kl. 13:57

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Sæll Jón Ragnar

Það er gaman að þú minnist á háttvirtan og hæstvirtan. ÞAð var nefnlilega langafi minn og nafni þinn , Jón Ólafsson ristjóri sem kom þessari hefð á.

 Og alveg eins og þú segir, til að efla háttvísi. Honum Jóni, þeim landsþekkta skammakjafti, ofboð lágkúra þingmanna eins og líklega Margrét líkist mest núna, sem báru enga virðingu fyrir fólkinu sem með með sat hvað þá stofnuninni þar sem þeir voru staddir í.

Þegar svona alþýðlegar flatlendistruntur komu ofan úr afdal  rmeðal manna, sögðu þeir hver  öðrum til syndanna á alþýðumáli sem þeir voru vanir að nota í réttunum, sem gekk fram af Jóni, sem var búinn að dvelja langdvölum vestanhafs og lært þar mannasiði. Honum ofbauð þessi hegðun og sá auðvitað að mannasiðir voru forsenda þess að þingstörf gætu skilað árangri en færu e kki í keppni í bölvi og ragni.

Svona drós eins og þessi Margrét skilur náttúrlega ekkert í  því sem að baki ávörpunum býr og ekki hægt að ætlast til þess þar sem hún endurspeglar kjósendur sína sem vissu  heldur ekkert hvað þeir vildu. Þeir eru vonandi einhvers vísari núna og kjósa þig vonandi.

Þú söngst My WAY fjandi vel á myndbandinu, hvort þú  náðir alveg síðasta tóninum?.En Geir Haarde fór langt á söngnum sem hann var óspar á við flokksmenn sína þannig að að slík list er ekki ónýt fyrir þann sem eitthvað vill áfram í pólitik.

Halldór Jónsson, 29.12.2011 kl. 14:59

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Já og þegar kommarnir komu því til leiðar að þéringar voru lagðar af þá tók þjóðin stórt stökk niður á við í siðmenningu. >Þéringar eru allstaðar notaðar meðal siðmenntaðra þjóða. Ekkert af neinu snobbi heldur til að ná meiri árangri í umræðum því menn vanda sig betur og gera kröfur til sjálfssín og annarra.

Halldór Jónsson, 29.12.2011 kl. 15:03

4 Smámynd: Jón Ríkharðsson

Það er víst rétt hjá þér Halldór, síðasti tónninn í laginu er ekki alveg hreinn og hann Gunnar vinur minn Waage vildi helst að ég sleppti honum.

En mér fannst undirleikurinn ekki bjóða upp á neitt annað en að ég tækist á við tóninn, þetta svona rétt slapp fyrir horn.

Ef ég hefði verið að taka upp lag sem ætti að kynna mig sem alvöru söngvara, þá hefði ég notað öðruvísi undirleik eða þjálfað röddina betur. En þetta var svona til gamans gert, ég ætla mér engan frama á söngbautinni.

En ég er sammál þér með þéringarnar, þær hefði ekki átt að leggjast af.

Jón Ríkharðsson, 29.12.2011 kl. 17:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 2
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 3417957

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 46
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband