Leita í fréttum mbl.is

Finnur

Árnason forstjóri Haga og arftaki Jóhannesar í Bónus var ekki trúverðugur frekar en fyrirrennarinn í mínum augum þegar hann sat fyrir svörum hjá Helga um kvöldið. Hann taldi ekkert vera gert í skjóli stærðar Haga sem þyrfti athugunar við. Það var heldur ekkert að dómi Jóhannesar þegar Bónuslögreglan ruddist inn í öll samkeppnisfyrirtækin og skannaði verð hjá þeim undir því yfirskyni að þeir væru að vernda neytendur. Allir vissu betur.

Nú ráða Högum þeir Hallbjörn Karlsson og Árni Hauksson. Hafi um Jóhannes leikið vafi þá nægir að lesa greinar Ragnars Önundarsonar um skuldsettar yfirtökur til að sjá hvílikar gersimar nú eru á ferð í því fyrirtæki. Menn sem greinilega eru holdgerfingar heiðarleikans. Um löglegar viðskiptaaðferðir þeirra má enn lesa í fræðilegri grein Ragnars í Morgunblaðinu í dag. Finni Árnasyni er áreiðanlega hollara að tala máli húsbænda sinna vel og Ragnari að gæta tungu sinnar á svelli sannleikans vilji hann halda fjárhagslegri heilsu.

Annars er merkilegt hvernig allmenningur lætur sig menn og málefni engu skipta. Fólki er skítsama hvernig er farið með það. Það er bara dagurinn í dag sem skiptir máli. Fæ ég ódýrara verð í Bónus en í Fjarðarkaupi kæri ég mig kollóttan hvaða myrkraverk að baki búa. Hvern varðar um hvað Steingrímur sagði fyrir kosningar og hvað hann gerir núna í þjónkun sinni við Evrópuhugsjónina?

Skiptir einhverju máli hver á Aríon banka núna af því að hann er núna svo góður að hann auglýsir gæsku sína við lítilmagnann í heilsíðu í lit í Mogga? Hann er ekki að styðja stefnu Sjálfstæðisflokksins í því að færa verðtryggðu lánin aftur í einni og gegnsærri færslu yfir línuna. Hann er ekki að tala um það hvaða verði hann keypti kröfurnar af fyrirrennara sínum, gamla glæpamannabankanum. Heldur auglýsir hann að hann sé að henda sporslum að eigin gæskuvali á valda reikninga. Og allir flykkjast auðvitað til þessa göfuga fyrirtækis sem gefur fólki peninga.

Finnst ekki mörgum banksterarnir og skilanefndirnar tröllríða þjóðfélaginu ennþá á kostnað almennings í umboði stjórnvalda? Að þeir hafi fundið leiðir til óskiljanlegra heljartaka á Alþingi? Að almenningur finni að á þingmenn er ekki að treysta? Finnur ekki almúginn ekki bara svipuhögg verðbólgunnar, spillingarsamráðsins, okursins og samtryggingarinnar á eigin skinni?

Finnur að hann er í raun vinalaus þó margir fagurt mæli?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Halldór. Arion-banki= (kaup(a)þing(ið)-banki), auglýsir sig á mjög lokkandi hátt. Ég man ekki alveg hvernig auglýsingin um 5 ára húsnæðisláns-gylliboð hljóðaði hjá Arion. Eflaust hefur honum tekist að narra og ná einhverjum skuldaþrælum til sín með þeim auglýsingum. 5 ár eru ekki lengi að líða. Það fylgdi ekki með í auglýsingunni, hvað yrði eftir þessi 5 ár!

Það er í raun stórmerkilegt að jafn vel menntuð þjóð og Ísland er sögð vera, skuli ekki átta sig á einföldum og auðskiljanlegum glæpaverkum KAUPÞINGS og allra hinna bankanna!!!

Hinir bankarnir eru nemar í starfsþjálfun hjá höfuðpaurnum Arion=Kaupþing!

Er einhver sem treystir ennþá því sem bankar segja á Íslandi? Ef svo er, þá er ekki snefill af sjálfstæðri hugsun eftir hjá nokkrum manni.

Það dugar ekki að sitja á sannleikanum, og bíða eftir að aðrir segi frá. Ef allir haga sér á þann þöggunarhátt, þá halda bankarnir allir áfram ásamt lífeyrissjóðunum, að kaupa þing og ræna almenning!

Kosningar breyta engu, ef almenningur áttar sig ekki á staðreyndum. Það er nefnilega almenningur sem kýs þingmenn!

Ég reikna ekki með að ránsaðferðir bankanna við að ræna þingið (þjóðina) séu mannúðlegar. Það er margt sem við ekki vitum nákvæmlega, en þetta er allt að koma. Almenningur er að átta sig á blekkingunni.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 28.1.2012 kl. 11:01

2 Smámynd: Erla Magna Alexandersdóttir

Bankarnir + Ríkið virðat einhvernvegin vera angar á sama kolkrabba- að NÁ ÖLLUM PENNINGUM LANDSMANNA og ekki til góðgerðarstarfa- til að drepa þann smáa og hampa bönkum - er þetta VINSTRISTEFNAN ? 

ÆTLUM VIÐ AÐ KJÓSA ÞETTA - AFTUR ?????

Erla Magna Alexandersdóttir, 28.1.2012 kl. 20:40

3 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Það er rangt hjá þér Anna Sigríður að kosningar skipti ekki máli.  Það þarf bara að uppræta lygara og undanbragða refi í stjórnsýslunni.  Til þeirra hluta er einfaldasta leiðin best.

Hrólfur Þ Hraundal, 28.1.2012 kl. 21:20

4 Smámynd: Erlingur Alfreð Jónsson

Hrólfur: Ég get ekki séð að Anna Sigríður haldi því fram að kosningar skipti ekki máli. Hún segir þær breyta engu ef almenningur áttar sig ekki á staðreyndum.

Erlingur Alfreð Jónsson, 29.1.2012 kl. 11:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 56
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 52
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband