Leita í fréttum mbl.is

Áfram niður

með lífskjörin. áfram með höftin, áfram með ringulreiðina. Hlustum áfram á Alþingi vort með sínni sundurþykku samsetningu ræða sín hjartans mál. Horfum á ný forsetaframboð sem leiða hugann frá hörmungunum, kosningar um stjórnarskrá og umræður um áhrif virkjana á laxagengd í Þjórsá eins og þjóðin lifi lengur á laxveiðigróða einstakra bænda en megawöttum fyrir milljónir manna. Engar vatnsaflsvirkjanir á næstu árum er lokahnykkur gjafa þessarar ríkisstjórnar og fagnaðarerindis fyrir land og lýð.

Ég horfi á landflóttann með skilningi. það er ekki furða að fólk gefist upp og nenni ekki að hanga yfir þessu. Við erum þjóð í hafti og fjötrum kommúnista sem hafa ekki önnur úrræði í efnahagsstjórn en að skipta skortinum einum.

Hvernig ætli kosningaloforðalisti Steingríms og Jóhönnu muni líta út? Hvað verða margir sem trúa? Vafalaust mun þeim verða tíðræddara um fortíð Sjálfstæðisflokksins og vafninga hans eða peninga Sigmundar Davíðs og pabba hans, kvóta Halldórs heldur en framtíð þjóðarinnar. Spurning hversu margir setja fortíðin ofar framtíðinni?

Vonandi eru lýðræðisöflin og þjóðrækið fólk farið að starfa eins og skuggaráðuneyti sem undirbúa byrjun virkjanaframkvæmda í neðri Þjórsá samfara nýjum orkufrekum iðnaði. Á fyrstu viku nýs þings verður vonandi öllum ráðstöfunum kommúnistastjórnarinnar sópað burtu í allri stjórnsýslunni, og nýtt fólk sett inn í nauðsynlegar lykilstöður. Slétað yfir öll unnin skemmdarverk stjórnarinnar og tekið til hendinni í að reyna að byggja þetta land upp og lýðinn sem þar þraukar ennþá.Og stjórnarskráin látin víkja fyrir öðru nauðsynlegra.

Ekki bara áfram niður.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Góður Halldór, bjargföst trú mín að þessu liði þurfi að sópa út.

Helga Kristjánsdóttir, 31.3.2012 kl. 13:59

2 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Í útvarpsfréttum áðan var sagt frá því að helmingur bílaumboðanna væri rekinn með tapi í stað þess að vera rekin með miklum gróða fram að Hruni.

Svo er að sjá sem margir haldi, að enginn vandi sé að fá aftur megainnflutning á bílum, helst sem dýrustum og stærstum, svo að umboðin geti farið að græða.

Fyrir Hrun voru smíðaðar íbúðir og byggingar sem standa nú auðar þúsundum saman. Samt heimta menn að fyrirtækin, sem stóðu fyrir þessu geti haldið áfram að græða eins og þau gerðu fram að Hruni í stað þess að tapa.

Eina leiðin til þess er auðvitað að tryggja það að þau geti komist aftur í 2007 farið og haldið áfram að fjölga auðum byggingum sem allra mest.

Í gróðærinu var haldið uppi loftbóluhagkerfi með krónuna skráða 30-40% of hátt með tilheyrandi innflutningi á varningi, þar sem 30-40% verðsins var gefins.

Þetta viljum við auðvitað fá aftur.

Haldið var uppi háum vöxtum og yrir bragðið fengu spekúlantar erlendir að hrúga upp innistæðum hér á landi upp á þúsund milljarða á núgengi sem þeir að sjálfsögðu hefðu rifið út eftir Hrunið og fullkomnað margfalt verra algert hrun.

En auðvitað mátti ekki hindra það, það átti bara að leyfa þeim það, eða hvað? Engin höft, - við viljum engin höft !!

Hvernig væri nú að íhuga aðeins orsakir og afleiðingar?

Ómar Ragnarsson, 31.3.2012 kl. 23:04

3 Smámynd: Kristján P. Gudmundsson

Ágæti Halldór, ég hefi verið í fríi um nokkurt skeið og lítið fylgst með gangi  mála hér heima. Það, sem helst blasir við hér heima, er að vinstri menn vilja ólmir bola forseta vorum burt frá Bessastöðum ! Slík háttsemi kemur okkur hægri mönnum ekki á óvart ? Nema hvað !

Við verðum að hindra slíkt slys eftir megni, því að nógu slæmt er að sitja upp vonda ríkisstjórn, þó að ekki bætist við forseti,sem lýtur vilja vilja núverandi ríkisstjórnar í einu og öllu ?

Ég tek undir lokaorð Ómars Ragnarssonar : "Hvernig væri að íhuga aðeins orsakir og afleiðingar "?

Með góðri kveðju frá Fjallabyggð, KPG.

Kristján P. Gudmundsson, 4.4.2012 kl. 19:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 57
  • Frá upphafi: 3418160

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 53
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband