Leita í fréttum mbl.is

Álfheiður Ingadóttir

var Sprengisandi hjá Sigurjóni. Hún fór þar mikinn í ánægju sinni með hvað VG hefði afrekað í ríkisstjórn. Hún hefði sýnt fram á að það væri hægt að gera eitthvað annað en að dreifa álverum í hvern fjörð á Íslandi.Já , rikisstjórnin hefur sannarlega gert eitthvað annað en það.

En þetta annað í atvinnumálum, hvað er það? Helst var að heyra að það væri sama hvað það væri meðan Sjálfstæðisflokknum væri refsað fyrir hrunið. Að hennar mati hefur mikill árangur náðst í hagvexti og flokkurinn stefndi ótrauður að endurkjöri Steingríms og flokksins. Illugi Gunnarsson benti á að eyðsla kynni að vera mæld sem hagvöxtur á meðan einn þingmaður hefði sagt síg úr vinstri græna flokknum á fjögurra mánaða fresti. Álfheiður lét það sem vind um eyru þjóta.

Getur verið að eitthvað annað þýði alveg eins ekki neitt? Er til nokkurs að biðja Álfheiði Ingadóttur um frekari útskýringar á hugstakinu? Skiptir nokkru máli héðan af hvað hún segir? Skyldi hún ómögulega ekki vera búin að fá nóg af Alþingi?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Hlustaði ekki á þáttinn, en - stóð til að dreifa álverum í hvern fjörð á landinu?

Ég dreg í efa að íbúarnir kærðu sig um það, en væru þeir þeirrar skoðunar, er þá ekki stjórnvaldinu a.m.k. skylt að hlusta? 

Alla vega þá held ég að fjarðarbúum sjálfum megi frekar þakka álversleysið en VG. 

Kolbrún Hilmars, 27.1.2013 kl. 14:36

2 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Þakka ykkur Halldór og Kolbrún.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 27.1.2013 kl. 15:24

3 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Álfheiður Ingadóttir is one crazy lady.

Sem betur fer þá skiptir engu máli havð hún segir úr þessu, þegar 45 mínútur eru til kosninga.

Það gengur svo langt að SJS kemst kanski ekki á þing, og ég held að Álfheiður Ingadóttir komi til að standa eins og álfur út á hól, og þarf að skrá sig til að fá atvinnuleysisbætur.

Kveðja frá Las Vegas

Jóhann Kristinsson, 27.1.2013 kl. 15:26

4 Smámynd: Eyjólfur G Svavarsson

Álfheiður ætti að flýta sér til Vestmannaeyja í Álfasteinin sem hún átti heima í,og ekki láta sjá sig meðal manna aftur!!!

Eyjólfur G Svavarsson, 27.1.2013 kl. 17:14

5 Smámynd: Jón Sveinsson

Sæll Eyjólfur ekki vil ég trúa því að þú viljir Vestmanneijingum svo slæmt að þessi tæfa flittist til Vestmaneija né í nokkurn Álfastein þar nei svona fólk á að vera í búrum fyrir þá sem langar að sjá hrillings persónu og hvernig eigi að leika þær...

Jón Sveinsson, 27.1.2013 kl. 17:28

6 Smámynd: Vilhjálmur Stefánsson

Hér í Eyjum var einn Framsóknarmaður Eygló Harðardóttir hún hrökklaðist burt og í staðin viljum við ekki óværu af vestu sort eins og Álfheiði Ingadóttir. Ekki einisinni sem gest hér..........

Vilhjálmur Stefánsson, 27.1.2013 kl. 20:43

7 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Ég skal segja þér hvað "eitthvað annað" er. Ef sex risaálver yrðu reist á Íslandi og öllum helstu náttúruperlum landsins slátrað fyrir þau myndu þau geta framleitt um 2,5 milljónir tonna af áli á ári.

Í þessum álverum fengju rúmlega 3000 manns vinnu, eða innan við 2% af vinnuaflinu. Segjum að við samþykkjum að með "afleiddum  störfum yrðu 12 þúsund manns í tengdum  störfum yrðu það 8% vinnuaflsins. 

"Eitthvað annað" er þá 92% af vinnuaflli þjóðarinnar.

Stagast er á því að þetta "eitthvað annað" sé afar ómerkilegt og að sjálfsagt sé að eyða öllu í langdýrustu störf sem hægt er að skapa á Íslandi og fórna mestu verðmætum landsins í það til að skapa arð, sem erlend stóriðjufyrirtæki flytja að mestu úr landi. 

Ómar Ragnarsson, 27.1.2013 kl. 21:44

8 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Hugsið ykkur að ef álver hefði orðið að staðreynd á Bakka, þá hefði þar orðið til stórskipahöfn.  Og hvað? Það þarf ekki að hugsa þetta lengi, nema til að deyja.  

Hrólfur Þ Hraundal, 27.1.2013 kl. 22:33

9 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Rétt hjá þér Jóhann Kristinsson.  Álfheiður er og verður alltaf Álfheiður hin ómerkilega. Við því er ekkert að gera. 

Hrólfur Þ Hraundal, 27.1.2013 kl. 23:26

10 Smámynd: Halldór Jónsson

Ómar. Mér finnst þú ekki svara því hvað eitthvað annað er. Ef eitthvað annað er ekki öll þessi álver sem þú nefnir að afstýrt hafi verið þá hlýtur það að vera eitthvað. Nema það sé bara ekki neitt.

Og mér finnst það vera nákvæmlega það hjá þessari ríkisstjórn. Það kom ekki neitt annað en ekki neitt í stað fyrir stóriðjustoppið. Eða hvað?

Halldór Jónsson, 27.1.2013 kl. 23:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 4
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 3417959

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 48
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband