Leita í fréttum mbl.is

Fylgispekt og gagnrýnislaus meðvirkni.

er eitthvað sem Ögmundur innanríkis veltir fyrir sér í grein í Morgunblaðinu í dag.

'Eg er ekki viss um hverja Ögmundur hefur sérstaklega í huga þegar hann skrifar þetta. Sjálfsagt frekar Framsóknarmenn eða Sjálfstæðísmenn fremur en Vinstri Græna, því þeir eru sem vitað er trúir sínum hugsjónum og láta aldrei teyma sig til gagnrýnislausrar meðvirkni. Má benda á Icesave málið, ESB málið og stjórnarskrármálið.

Hinsvegar virðist Ögmundur hneykslaður yfir því að hermenn fylgi skipunum. Sérstaklega flugmenn yfir VietNam sem voru að myrða saklaust fólk. Böðlar nasista í Auswitch voru líka hermenn. Þeir sem flugu sprengjuvélum Bandamanna yfir Þýskalandi voru að fylgja skipunum um að mylja hernaðarvél nasista. Eða að teppaleggja Dresden.  Var ekki  saklaust fólk þarna niðri líka? Líka í teppalagningu B52 véla yfir Sarajevo?

Ég hef hitt mann, og lesið bók hans, sem flaug B52 í stöðugum varðflugum með fullfermi af vetnissprengjum. Það kviknaði í vélinni hans og hún fórst með öllum farminum en hluti áhafnarinnar kom niður í fallhlíf við Thule. Áður hafði henn flogið árásarvélum í Kóreu. Hann virtist ekki vera annað en stoltur af því að hafa þjónað þjóð sinni og tilfinningaflækjur koma engar fram í bókinni. Hann er huggulegur kall á eftirlaunum, afi og langafi. Stórveldi eru stórveldi og hermenn þeirra eru knúnir af föðurlandstryggð. Mér finnst  ljótt að kalla þetta fólk ónefnum eins og Ögmundur gerir.  

Samt skrifar Ögmundur þessa grein og reynir að gera suma hermenn ómerkilega sem einskonar skepnur sem drepa fólk af " fylgispekt og gagnrýnilausri meðvirkni." 

Hvað er maðurinn að fara með þessum skrifum:

"....Þekkt er tilraunin sem gerð var til að kanna einmitt þetta. Búnar voru til mjög trúverðugar aðstæður fyrir tilraun sem gekk út á að leiða í ljós hve langt fólk væri reiðubúið að ganga í pyntingum og jafnvel drápi á mannlegu »tilraunadýri« sínu. Einstaklingur var látinn setjast í rafmagnsstól og sá sem tók þátt í tilrauninni átti síðan að gefa honum raflost, fyrst vægt og síðan meira, stig af stigi þar til sagt var að lostið væri orðið mjög kvalafullt og að lokum að það leiddi til dauða. Getur það verið að ég sé látinn drepa mann, hugsuðu eflaust einhver tilraunadýranna. Þetta er þrátt fyrir allt í bandarískum háskóla og þeir sem segja mér fyrir verkum eru í hvítum sloppum vísindamanna. Þetta hlýtur að vera í lagi. Svo var opnað fyrir strauminn.

 

Eflaust hugsuðu einhverjir á þennan veg í fangabúðum nasista þar sem fólk var myrt af fagmennsku, með tækjum og tólum hönnuðum af verkfræðingum á hvítum sloppum. Og flugmennirnir sem vörpuðu sprengjum úr háloftum yfir Víetnam hlýddu skipunum borðaklæddra manna og tóku við heiðursmerkjum úr hendi stífpressaðra fulltrúa samfélagsins.

 

Því nefni ég Víetnam að fyrrgreind tilraun var gerð á dögum Víetnamstríðsins og var tilefnið, ef ég man rétt, að leita svara við því hvernig á því stæði að hægt væri að fá fólk til að drýgja glæpi gegn öðru fólki.

 

Svarið var þetta: Fylgispekt og gagnrýnislaus meðvirkni.

 

Þess vegna þarf að vekja fólk. Fá okkur til að framleiða eigin skoðanir, styrkja eigin dómgreind, ekki »neyta« gagnrýnislaust skoðana annarra. "

 

Þetta eru furðuleg skrif sem eiga hugsanlega að tengja flokkshollustu venjulegra íslenskra kjósenda stjórnamálaflokka sem honum eru ekki þoknanlegir, við hermennsku og styrjaldir.

Mér finnst þetta vera lágkúra og veldur Ögmundur mér vonbrigðum með þessu skrifi því oft er ég annars sammála honum eins og í Nubo-málinu og ESB.

En það er ekki og verður ekki af neinni " Fylgispekt og gagnrýnislaus meðvirkni."

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Halldór. Það er vægast sagt hjartaskerandi og óhugnanlegt að sjá, hvernig gamlir stjórnmálapúkar á fjósbita stjórnsýsluspillingarinnar, beita fyrir sig saklausu, ó-eigingjörnu og heiðarlegu fólki!

Þetta er ógeðslegt spillingar-spil.

Sannleikurinn er sterkari en lygin, og heiðarleikinn er sterkari hræsnin.

Sálarlíf hvers einstaklings er eilíft, og sterkara en allt í þessari veröld. Öll svik komast sem betur fer upp um síðir!

Góðar stundir.

m.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 25.3.2013 kl. 18:32

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Satt segir þú góða vinkona Anna Sigríður. Solsjenitsín sagði að böðlar sínir hefðu getað tekið allt frá sér sem þeir gerðu. Þeir gátu bara ekki tekið það sem inní höfði hans bjó. Þegar það komst út hrundu Sovétríkin.

Halldór Jónsson, 25.3.2013 kl. 20:38

3 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Hvert er Ögmundur að fara spyrðu?

Jú nú þarf réttlætinguna fyrir því að hafa stutt fysrtu og síðustu vinstri stjórn á Íslandi. Alvarleg og gagnrýnislaus meðvikni. Munum eftir Svavarssamningnum og skjldborginn. Munum eftir viðræðum við ÉSB, sem skyndilaga varð aðildarumsókn. Munum eftir samkomulaginu við aðila vinnumarkaðsins. Munum eftir loforðunum um öll störfin, sem fækkaði svo á kjörtímabilinu. Munum eftir lýðræðisleu umræðuferlinu sem varð að kúun.

Auðvitað hefðum við átt að bjóða Ögmundi á fundi hjá Sjálfstæðisfélagi Kópavogs. Þar takast menn á, þora að hafa mismunadi skoðanir, ræða þær án vígaferla, (að mestu :)

Sigurður Þorsteinsson, 26.3.2013 kl. 06:04

4 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Öll fjögur árin hélt maður að Ömmi tæki sig til eins og Jón BJ. Atli og prinsessan Lilja og stöðvaði þessar pyntingar á þjóð sinni,en nei!!!

Helga Kristjánsdóttir, 26.3.2013 kl. 06:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 12
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 3418200

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 49
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband