Leita í fréttum mbl.is

Íslenskur stirðbusaháttur

lýsir sér ekki hvað síst í viðmótinu sem okkur kúnnunum er sýndur í þessum okursjoppum sem við verðum að skipta við heima.

Við sættum okkur við að borga fyrir pokana við kassana. Afgreiðslukrakkinn eða útlendingurinn segir HVAMARGAPOKA og stimplar inn stórfé á stykki og verðum sjálf að tína ofan í þá. Meðan hér  er einhver með bros á vör, ef ekki stimplarinn sjálfur sem setur ofan í ókeypis óýra poka á hringekju og málið er afgreitt.

Af hverju er allt svona frosið og fúlt hjá okkur? 

Af hverju getur ekki Súllenberger til dæmis gert þetta svona, hann ætti að hafa séð þetta?

Svo spýta íslenskir sóðar tyggjói hvar sem þeir eru og allar stéttir eru útbíaðar. Hér er bara stórsekt við svona athæfi auk þess sem fólkið bara hegðar sér ekki svona af uppeldislegum ástæðum.

Fólk er hér kurteist og elskulegt mótsett við íslenska dóna sem göslast áfram af ruddakap og tillitsleysi. Skólarnir okkar eru ekki að skila sívilíséruðu fólki því miður. Það er eitthvað að í þeim efnum.

Hér í Flórídu eru götur hreinar og sópaðar mótsett við íslenskt svínarí og stirðbusahátt margs fólks. 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Halldór. Takk fyrir þennan pistil. Þetta er snyrtileg lýsing á siðmenntuðu samfélagi á Flórída. Við íslendingar erum víst óalandi og óferjandi á margan hátt.

Okur er rétta lýsingin á Íslandi. Allir tapa á okri.

Það þarf nú nokkuð marga Sullgenberga til að kenna okkur gömlu íslensku hundunum nýja siði. Kurteisi og tillitsemi kostar ekkert, en gefur mikið.

Menntastefnan og áherslurnar í þeim málum á Íslandi síðustu áratugina hefur verið brengluð. Allt of mikið af sérfræðingum úr háskólunum, og allt of lítið af tæknimenntuðu fólki. Og auðvitað er það valdstjórnin og peningarnir sem stýra þessum málum eins og öðrum.

Það hefur ekki mátt ala börn upp á agaðan hátt á Íslandi í marga áratugi, án þess að ýmsar tegundir fræðinga, t.d. uppeldisfræðingar setji út á það. Börn áttu að fá vald til að ráða í málum sem þau eru ekki nógu öguð og þroskuð til.

Og í tilfellum þar sem börn virkilega ættu að fá að ráða, t.d. hvoru foreldrinu það vill búa hjá, þá fá þau ekki að ráða, sem ég held hljóti að vera brot á barnasáttmálanum.

Sumt fullorðið fólk er svo vanþroskað og sjúkt af heift og hatri, að það notar börnin sem bitbein, og til að hefna sín á hinu foreldrinu. Það er örugglega brot á mannréttindum barna.

Miðað við allt þetta og lögregluyfirvöld á Íslandi sem þverbrjóta lög og mismuna fólki eftir klíkum, þá er víst ekki von á neinum afburðar-árangri í siðferðis-samfélags-þroskanum. Mesta furða hvað blessað unga fólkið hefur staðið sig vel, miðað við öll fullorðins-vandamálin.

Hafðu það gott í samfélagi siðmenntaðra í Flórídu :-)

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 30.3.2013 kl. 13:21

2 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Er þetta bærilegt burbon sem þeir eru að selja á tombólu prís þarna í Florida Halldór?

Magnús Sigurðsson, 30.3.2013 kl. 18:48

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Heitir Ewan Williams og er frá einum fyrsta bruggaranum í Kentucky. Er búin að samakka margar sortir en merkilegt er að þessi sem er ódýruyst finnst mér best

Halldór Jónsson, 30.3.2013 kl. 19:25

4 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Það kemur ekki á óvart að þar fari ekki endilega saman verð og gæði frekar en með veferðarskatta helferðarhyskisins. Gleðilega páska Halldór.

Magnús Sigurðsson, 30.3.2013 kl. 19:40

5 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Magnús. Það eru gæðin en ekki magnið, sem raunverulega skiptir máli, ásamt raunverulega kaupmættinum.

Mér sýnist hinn stórveldis-armurinn, (ESB), vera falskur boðberi gæða og trausts, vegna þess að fólk þarf að hafa atvinnu og kaupmátt, til að standa undir ESB-gæða-hollustu-lifnaði.

Ef venjulegt launafólk hefur ekki efni á gæðavottuðu ESB-hollustunni, nema tilheyra yfirstéttum og klíkum, þá virkar ekki hollustustefna ESB-bankaræningja-höfðingjaklíkunnar fyrir almenna launþega/bótaþega/lífeyrisþega!

Þetta er tvískinnungs-vandamál ESB, sem þeir eiga alveg eftir að útskýra!

Það undarlega er, að í ESB er ekki pláss fyrir verklýðs-launakjara-baráttu, til að berjast fyrir að allir geti haft mannsæmandi kaupmátt af eðlilegri atvinnu, launum og lífeyrisbótum.

Hvernig getur þá ESB-hollustan komið atvinnulausum, verkafólki, eldriborgurum, atvinnuleysisbótaþegum og öryrkjum til góða?

Það vantar eitthvað mikið í þetta ESB-púsluspil ennþá, til að það standi undir öllum væntingunum.

M.b.kv.  

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 30.3.2013 kl. 20:19

6 Smámynd: Elle_

Halldór, ég svaraði þessu með pokana þarna Okursjoppan Ísland og vissi ekki að þú værir búinn að skrifa nýjan pistil.  Við eigum ekkert að sætta okkur við að vera rukkuð um plastpoka þar sem við eyðum stórfé. 

Við ættum ekki heldur að þurfa að búa við ruddamennsku og að fólk ryðjist fram fyrir mann og að enginn, nema einn og einn gamall maður, stoppi fyrir okkur eða víki neinsstaðar.  

Elle_, 30.3.2013 kl. 23:31

7 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Vitanlega á að bjóða  rikisstjóra Alaska ríkis að koma og kikja á okkur.Blessunin hún Sara Palin sem bauð sig fram til forseta er víst ekki ekkii í þeirri stöðu lengur.En það er mál til komið að íslendingar fái að vita það að Alaska ríki með 700.000. þúsund íbúa hefur sama vægi í Öldungadeildinni og Kalifornía sem telur 80.000.000.

Sigurgeir Jónsson, 31.3.2013 kl. 02:54

8 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Nú er bara að vinda sér í málið strax eftir kosningar.Helsti þverskuldurinn verður að sjálfsögu Bretland.

Sigurgeir Jónsson, 31.3.2013 kl. 03:07

9 Smámynd: G. Tómas Gunnarsson

Það sem mér finnst stærsti munurinn á því að versla á Íslandi og í N-Ameríku (ég hef þó aðallega haldið mig Kanada megin), er viðmótið t.d. hvað varðar skil á vörum.

Stórar keðjur, s.s. Home Depot, Best Buy, Costco, Canadian Tire, Sears, og margar fleiri, hafa einfaldlega ótrúlega gott viðmót þegar kemur að skilum.  Hvort sem varan er gölluð, eða einfaldlega kaupanda snerist hugur, eða hann komst að því að hann hafði keypt örlítið of mikið af einhverju.

Ef kassakvittun er við hendina er endurgreitt, án frekari málalenginga.  Ef greitt var með peningum er endurgreitt með peningum, ef greitt var með greiðslukorti er bakfært á greiðslukortið.  Svona einfalt er það.   Ef greiðslukvittun er ekki með, en kerfið þeirra þekkir strikamerkið, er varan tekin gegn inneignarnótu.

Ég hef meira að segja komið með vöru sem ég hafði rifið upp en uppgötvaði þá að ég hafði keypt vitlausa týpu.  Fór í verslunina með von um að þeir myndu endurgreiða að einhverju marki.   Varan fékkst að fullu endurgreidd.

Þetta er einfaldlega "bisness".  Þetta byggir upp viðskiptavild og það sem meira er, það gerir einstaklinginn svo mikið óhræddari við að versla.

G. Tómas Gunnarsson, 31.3.2013 kl. 05:51

10 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Til að ala upp börn að tvítugu svo vel fari, þá þarf að nota sömu aðferðir og við að  ala upp hund alla hans ævi. 

Þó til séu foreldrar sem leggja uppúr góðu uppeldi barnasinna, þá eru þeir of margir sem nenna því ekki og eru haldnir þeirri trú að þeirra afkvæmi séu merkilegri englar en börn annarra.  Þetta fólk skemmir fyrir vönduðum uppalendum, því unglingar eru ekki hafðir í ól.

Skólakerfið dugar hvergi í þessu sambandi.  Það er nú orðið langt síðan ég var í skólum, en fyrsti veturinn minn var í Laugarnesskóla og það´var ekki auðvelt.  Sá næsti var á Hvammstanga og það er besti skóli sem ég hef verið í.  Svo var það Austurbæjarskólinn og er hann sá vesti sem ég hef kynnst en þar var löngum tíma og miklum peningum eitt í framleiða óstýrilæti, þó að það tækist ekki að öllu leyti.  Þar bjargaði miklu að í tólfára bekk þá fengum við manninn í brúnufötunum, kennara sem hélt uppi aga frá fyrsta degi til þess síðasta og þann vetur lærði ég allt það sem ég lærði í Austurbæjarskólanum. Þó að það sé að jöfnu óþarfi að þakka mönnum fyrir að gera það sem þeir eru ráðnir til, þá er mér ofarlega í huga þakklæti til þessa lávaxna manns, því að í þessum skóla á þessum tíma var löngum tíma og miklum peningum eitt í framleiða óstýrilæti.

Það er að verða æ fleirrum ljóst að agaleysi stendur okkur fyrir þrifum og það lagfæra foreldrar sem aldrei hafa kynnst aga ekki og þá en síður skólarnir.  Það vantar hér her, þar er kennd regla, virðing og æðruleysi.  

Hrólfur Þ Hraundal, 31.3.2013 kl. 09:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 40
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband