Leita í fréttum mbl.is

Hvaða refsing?

mun fólki framtíðarinnar þykja hæfa hryðjuverkum eða þegar maður myrðir mann að tilhæfulausu?

Verður ekki skortur á refsingarúrræðum í framtíðinni þegar fleira fólk hnappast á takmarkaðar auðlindir? Geta hagkerfi heimsins endalaust tekið við nýju fólki sem sífellt finnur um nýjar leiðir til að gera öðru greiða?  Lifir hvort á öðru eða þar sem hver greiðir öðrum eins og sagt var í þá daga þegar maður spurði á hverju tiltekið þorp lifði. Mun mannúðin rúmast í yfirfullum þjóðfélögum? Eru ekki aðrar refsingar viðhafðar í Kína en hér í fásinninu?

Á Söguöld leyfðu efni manna ekki fangavist sem refsingu. Menn beittu útlegðardómum af landinu. Menn tóku upp fé sem bætur. Menn urðu að drepa hina seku þegar ekki var kostur á öðru betra. Drekkingarhylur og höggstokkur á Alþingi við Öxará. tala sínu máli. Annað var bara ekki í boði vegna aðstæðna.

Mun framtíðin treysta sér til að byggja fangelsi í Hólmsheiðarstíl þar sem hver klefi kostar eins og einbýlishús með lúxusbíl í bílskúr fyrir venjulega fjölskyldu með því að skattleggja þessa sömu fjölskyldu fyrst fyrir byggingunni og svo fyrir rekstrinum ár hvert?  Ráðstafa svo fangelsinu 80 % undir útlendinga sem hingað koma í glæpsamlegum tilgangi aðeins?

Hvaða refsingu myndum við hugsa okkur ef hér kæmi múslímsk hryðjuverkasveit eins og í Nairobi. Hertæki Kringluna eða Smáralind og dræpi svona 200 manns áður en til dæmis Ísraelsk hersveit gæti komið á staðinn til að skakka leikinn?  

Setjum svo að við sætum uppi með 10 fanga úr hópnum? Hvað myndi íslenskt réttarfar treysta sér til að gera í málum þeirra?  Hefja meðferð í Undirrétti? Svo í Hæstarétti?  Hvaða dómur yrði felldur?

Hver yrði hættan á að stéttarfélag hryðjuverkamanna myndi reyna að frelsa fangana á þeim árum sem líða?

Ráðum við Íslendingar við svona nokkuð?

Hvaða refsing myndi okkur þykja hæfa við þetta tækifæri? 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 55
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband