Leita í fréttum mbl.is

Karen Elísabet Halldórsdóttir

sem fólk sér á auglýsingu sem hún fékk að setja í hornið á þessari bloggsíðu, er einkadóttir okkar hjóna, fædd 19.febrúar á þjóðhátíðarárinu 1974. Hún er Sjálfstæðiskona og myndi aldrei vilja láta sjálfstæðið af hendi til Brüssel og Evrópusambandsins. Hún er með eldlegan áhuga á félagsmálum og pólitísku starfi. Hún er varaþingmaður hér í Kraganum og formaður í efnahags-og viðskiptanefnd Sjálfstæðisflokksins.

Hún er líka varabæjarfulltrúi hér í Kópavogi og formaður í lista-og menningarráði. Hún vill verða aðalbæjarfulltrúi og sækist því eftir 2. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins við bæjarstjórnarkosningarnar í vor. Til þess að komast þangað þarf hún á því að halda að Kópavogsbúar fjölmenni til að taka þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins  sem fram fer á laugardaginn kemur í Sjálfstæðishúsinu að Hlíðarsmára 19 frá kl 9-18 og greiði henni atkvæði.

Það er auðvitað mikið mannval sem býður fram krafta sína í þessu prófkjöri og sjálfsagt þræl erfitt fyrir fólk að velja á milli 15 frambjóðenda sem allir hafa ótvíræða mannkosti fram að færa. Ég verð sjálfur í hvínandi vandræðum að velja á milli vina minna.

En það er meðaltalið sem gildir og það er mála sannast að undantekningarlítið hefur dómur þáttakenda í prófkjörinu verið látinn halda sér við frágang listans. Sjálfstæðisflokkurinn er ekki með neinn kynjakvóta eða þesskonar fitl við val fólksins. Og það mega allir koma og kjósa.

Sjálfstæðisflokkurinn skilur sig þannig algerlega frá litlu vinstriflokkunum sem velja á lista sína yfirleitt í mun þrengra flokksvali og með alls kyns reglum um röðun á listana. Lýðræðislega er himinn og haf á milli aðferða þessara stjórnmálaflokka og þess sem Sjálfstæðisflokkurinn notar. Það er þessvegna grundvallarmunur á þessum flokkum sem fólk ætti að hugsa svolítið um þó ekki væri annað. Annarsvegar listi valinn af bæjarbúum, hvaða stjórnmálaskoðanir sem þeir annars aðhyllast og svo hinir. Auðvitað getur orðið um óhagstætt kynjahlutfall að ræða í slikri kosningu. En svo merkilegt sem það er þá hafa listarnir okkar yfirleitt verið í þokkalegu jafnvægi hvað þetta varðar. Það er eins og kjósendur hafi alveg vit á því sem þeir eru að gera án þess að spyrja mig. 

Ég get aðeins sagt frá minni mjög svo auðvitað hlutdrægu mynd af Karen Elísabetu, sem ber nafn ömmu sinnar og móður minnar. Hún níðist held ég hvergi á því sem henni er til trúað eins og Kolskeggur bróðir Gunnars á Hlíðarenda, sem hlýddi dómi kjósenda þess tíma og fór utan í útlegð þegar Gunnar snéri aftur sem sekur maður.

Karen mun gegna þeim störfum sem henni verða falin hver sem úrslitin verða. Hún er í mínum augum auðvitað alger prinsessa. En ég held að þar fyrir utan sé hún traustverð venjuleg kona og móðir með raunverulegan áhuga á að verða að liði fremur en að græða fyrir sjálfa sig. Því það er sannast sagna að bæjarfulltrúakaup er svo lítið að ekki margir nenna að leggja slíkt á sig þegar völ er á öðru betra. Sem betur fer er til fólk sem hugsar um annað meira en peninga og þannig er hún Karen og líkist mömmu sinni hvað það varðar.

Við Sjálfstæðismenn vonumst eftir því að sem allra flestir komi og kjósi í prófkjörinu okkar á laugardaginn kemur. Síðast komu held ég 3300 manns og völdu á listann. Nú vonum við að enn fleiri komi þar sem bærinn okkar hefur stækkað verulega síðan. 

Mikilvægt er að vanda sig við atkvæðagreiðsluna og vera ófeiminn að óska eftir aðstoð ef þörf gerist.   Ég fagna auðvitað sem Sjálfstæðismaður hverju atkvæði sem greitt verður. Og auðvitað gleðjumst við foreldrarnir svo mest yfir hverju atkvæði sem hún dóttir okkar hlýtur. Ég held í hreinskilni sagt að enginn þurfi að sjá eftir því að greiða henni Karen Elísabetu atkvæði sitt ásamt öðrum 5 glæsilegum frambjóðendum Sjálfstæðisflokksins en kosningin er bundin við að kjósa 6 frambjóðendur og hvorki fleiri né færri. 

Fjölmennum á kjörstaðinn á laugardaginn kemur og kjósum hana Karen með öðrum góðum kandidötum. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Jónsson

Amma hennar karen Elísabetar Halldórsdóttur og alnafna var fædd 6.febrúar 1913 dóttir hjónanna Halldórs Skaptason, somur Skapta Jósefssonar ritstjóra og kraftamanns, Jósefssonar Skaptasonar læknis og Alingismanns á Hnausum í Húnavatnssýslu, og Hedwig Wathne, Friðriksdóttur kaupmanns, bróðurs Ottos útgerðarmanns, og Elísabetar Þorsteinsdóttur frá Breiðdal. Otto hafði ávallt við orð þegar Syðfirðingar vildu fá hann til að kosta einhver framfaramál: "Ja, men detta kommer an på silla" Það þurfti nefnilega að afla fjárins áður en því væri eytt en ekki bara að hlaupa í bankann að slá. Ég held að Karen hugsi svolítið eins og Ottó gamli frændi.

Halldór Jónsson, 6.2.2014 kl. 20:00

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Bróðir Skapta hét Magnús og fór til Ameríku. Hann var prófastur í Canada og bjó á býlinu "Hnausar Farm" sem enn stendur þar. 'Eg veit lítið meira um hann en hann var í fremstu röð meða V-Íslendinga þar.

Halldór Jónsson, 6.2.2014 kl. 20:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 48
  • Frá upphafi: 3417956

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 45
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband