Leita í fréttum mbl.is

Heilalausir kjósendur

er þeir í Reykjavík sem ætla að falla fyrir gylliboðum Dags B. Eggertssonar um stórkostlegar byggingar félagsíbúða sem munu kosta "skid og ingenting" að kaupa eða leigja. 

Hefur þetta fólk aldrei séð mynd Alberts Engströms af manninum sem sker rófuna f hundinum sínum til að gefa honum að éta?

Dettur einhverjum í hug að Dagur dragi kanínur úr hatti og útvaldir njóti góðs af án þess að aðrir borgi með skaða sínum?  Hvað verður um þá sem hafa atvinnu af að byggja og selja? Mun ekki almenningur verða skattlagður tvisvar fyrir þessa dellu Dags þegar upp verður staðið?

Eitt er víst að það er himinn og haf á milli sígildra hugsjóna Sjálfstæðisflokksins um eign fyrir alla og þessarar "félagshyggju" nýkratismans, sem ætlar að gera allt fyrir útvalda með því að gefa þeim eigin rófur að éta. 

Það eru heilalausir kjósendur í Reykjavík að mínu mati sem láta  Dag kaupa sig með þvílíkri dellu. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Þormar Halldórsson

Kjósendur eru heilalausir. Það hefur sýnt sig síðustu 40 árin.

Halldór Þormar Halldórsson, 17.4.2014 kl. 10:49

2 Smámynd: Jack Daniel's

Enn heilalausara eru kjósendur og fylgjendur sjallana sem trúa því að "markaðurinn" sjái um að halda húsnæðisverði niðri fyrir leigendur.

Jack Daniel's, 17.4.2014 kl. 10:50

3 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Heilalausir kjósendur kjósa heilalausa stjórnmálamenn. Svo hefur verið og mun verða um aldir alda, amen. Íslenskt efnahagslíf og pólitík sennilega gleggsta dæmið, þessu til stuðnings.

Góðar stundir.

Halldór Egill Guðnason, 17.4.2014 kl. 12:31

4 Smámynd: Halldór Jónsson

Það má færa rök fyrir því nafni minn Halldórsson.

Jack Daniels, ef þú ferð upp í Breiðholt þá geturðu séð hverju samstarf sjallana og verkalýðshreyfingarinnar áorkaði í húsnæðismálumn um 1966. Heldurðu að við sjáum svona eftir Daginn?

Nafni minn Guðnason, Já það miðar svo sorglega hægt. Við togum líka alltaf í sinnhverja áttina. Jack Daniels trúir á forræðishyggjuna, tax and spend.

Halldór Jónsson, 17.4.2014 kl. 13:20

5 Smámynd: Halldór Jónsson

Hin eilífa barátta milli frjálshyggjunnar og forræðishyggjunnar.

Halldór Jónsson, 17.4.2014 kl. 13:21

6 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Sjallarnir trúðu því ekki á árum júlísamkomulags í tvígang 1964 og 1965 að markaðurinn myndi sjálfur sjá um að útvega efnalitlum húsnæði.

Nei, þeir gerðu í tvigang samkomulag við verkalýðshreyfinguna um að gera þetta að miklu leyti á félagslegan eða "kratískan" hátt og með því voru leystur vinnudeilur í tvígang.

Viðreisnarstjórnin var samstjórn raunsærra Sjalla og krata. En nú er öldin hugsanlega önnur?  

Ómar Ragnarsson, 17.4.2014 kl. 17:49

7 Smámynd: Kristmann Magnússon

Vel og réttilega mælt hjá Ómari

Kristmann Magnússon, 17.4.2014 kl. 18:33

8 Smámynd: Ólafur Als

Samstarf sjalla og krata undir viðreisn fól í sér að raunsæir kratar fengust til samstarfs um innleiðingu aukins frjálsræðis - ekki öfugt, minn kæri Ómar. Halldór bendir réttilega á farsælt samstarf, sem hafði það að markmiði m.a. að gera efnaminni fjölskyldum kleift að eignast eigið húsnæði. Þá hugmyndafræði hafa vinstrimenn alla jafna haft á hornum sér. Dagur mun kosta skattgreiðendur Reykjavíkur ófáa milljarðana með þessu brölti sínu en eins og menn þekkja þá er krötum og vinstrimönnum ekkert heilagt þegar kemur að því að úthluta gæðum á kostnað annarra en þeirra sjálfra.

Ólafur Als, 17.4.2014 kl. 18:43

9 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Íslandi hefur alltaf verið stjórnað af forræðishyggjumönnum.

Þess vegna erum við jú alltaf að borga skuldir annarra.

Ásgrímur Hartmannsson, 17.4.2014 kl. 18:47

10 Smámynd: Halldór Jónsson

Ómar,gleymir þú því ekki að á árum breiðoltsins voru allir byggingameistarar á fullu. Þeir gátu bara ekki framleitt í eftirspurnina, fáir og smáir. +Eg held að Framkvæmdanefndin hefi hugsað sitt hlutverk meðal annars þannig að hún ætlaði að framleiða með nýjustu tækni og peningum sem hún hafði umfram litlu meistarana ódýrar íbúðir. Hún kom með Guðmund Einarsson framkvæmdamann af Vellinum og hans félaga, unga menn og hrausta og spriklandi af fjöri og barmafullir af hugmyndum.

Það komu fyrstu byggingakranarnir, Peiner man ég, til landsins og kerfismót. Þetta hafði enginn annar. Þessvegna var framleiðslan í bygginagariðnaðinum svona lítil. Þetta breyttist um þetta leyti og verkmenningin jókst hröðum skrefum og leiddi til þess að fleiri fóru að gera sig gildandi.

Nú eru aðrir tímar. Tæknin er almenn og það geta margir byggt mikið. Ef Dagur ætlar að fara að byggja ódýrara en aðrir þá þerf hann að koma með tækninýjungar og fleira en niðurgreidda peninga.

En þá ætlar hann greinilega að nota og hvaðan koma þeir? Eru þeir ekki rófur af sama hundi og á að éta?

Halldór Jónsson, 17.4.2014 kl. 19:29

11 Smámynd: Júlíus Björnsson

Er ekki verið líka að tala um fermetra á íbúa hvers lálaunaeigna[reiknað PPÐ] innkomu heimilis?

  Vístölu  fjölskylda 2,1 vistmenn, sem dvelja í 25 fermetra húsnæði utan vinnu , geta greitt hærri húsleigu á fermetra en sami fjöldi í 60 fermetrum til 75 fermetrum, en lægri húsaleigu per heimili.

Ísland er mjög gamladags í hugsun og skilur greinilega ekki að 70% af lands framleiðslu Þýskalands er sala á hreinum launaeignum  með flötu 40% velferðagjaldi og vsk.  

Ísland  með flat [persónu tengt atvinnurekenda] lífeyrisjóðsgjald og atvinnutryggingar gjald max. 25% á útborgaða launveltu. Útsvar og tekjuskattur [inncome tax] byrjar svo við um 125 tíma láeignalaunasölu miðað við starfsmann og vex veldisvíslega lagt upp fyrir 50% álagninu þegar starfmenn er að nálgast mannsæmandi innkomu. 

Rekstur sem getur ekki nýtt sér persónu aflátt vegna lálaunaeigna farmleislu vsk [PPP] leitar annað.

þjóðverja þurfa um 28 tegunundur af prótínum  og 108 frumefni til geta rekið nút´´ima velferðar og tækni samfélag. 

Fasteign leigutekjur á Íslandi kaupa ekkert af þessu frá öðrum ríkjum.  Dollar og pund og evrur , út úr lögsögum útgefenda kosta fyrst og fremst frumefnis og prótín þætti.

Kenningar Maós sem er hér greinlega leiðarljósið,  um áherslur á mann fjölda aukingu til tryggja sér PPP-kaupmátt.

Allir ættu að sjá að fleiri ríkisborgar kosta meira magn af frumefnum. 

Fjámagstekjur er "abstarkt" eins og nútíma Tossamenntun.

Til að lifa á Íslandi  þarf rúmgóð og vistleg heimilli, og lið sem stendur undir skilum á ekki  minni velferðagjöldum í prósentu álagningu en flest OCED.

Lækka virðingu á vsk. þjónustulauna framlagi Íslands er til að lækka meðatal á þessu raunvirði mælt PPP yfir jörðina alla. 

Ísland getur ekki keppt við ríki sem sérhæfa sig í fjölda lálauna vsk. veltum, þar sem PPP  mælist nú .þegar alltof lágt miðað við úrval og fjölda náttúrauðlinda  Íslands.

Stríð er ekki unnin ekki unnin með mannfjölda í dag heldur efnislegum auðæfum og tækni. 

Kína fjöldframleiðir alskonar menntastéttir og ætlar sér öll nóbelverðlaun framtíðar.

Vsk. á minnka líkur á tvísköttun á sama skatt ári, sérhver lögaðili borgar nettó söluskatt á sínu hagvaxta framlagi eingöngu, en rukkar sína kaupendur um það sem hann greiddi sínum byrgjum. Loka kaupandi greiðir þann allan vsk. frá uppsprettu.  Loka kaupandi er þannig hin raunverulegi eignandi.

þjóðverja og Bretar eiga mest af veiddum sjávarafla hér í lok hvers skatta árs. 

Bókvitið hér er vart hæft til grunn:útflutnings.

=>  Service geirar eftir vsk. er skila hreinum mannlegum eða huglægum rauneingum.

EU segir að ríki mega ekki mismuna , ríki sem lækkar launveltu með velferðasköttum , til sölu í öðrum ríkjum getur ekki grætt velferðaskatta á því , þar sem öll gengi frá 1970 fljóta miðað við PPP raunvirði. PPP-dollar er vísitölu mynt , gengisvigt miða við heildar vsk. jarðarsölu á hverju ári.   

þetta er spurning um siðferðþrek , Austurríkis t.d. lækka ekki raunvirði sinnar vsk. þjónustu veltu. 

Júlíus Björnsson, 18.4.2014 kl. 00:27

12 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Hvað sem pólitíkusar heita hverju sinni, A, B, D eða annað, - ef lagt er kalt mat á stöðuna þá eru húsnæðismálin í ólestri í samfélaginu. Húsnæði hér er alltof dýrt, jafnt fyrir unga sem aldna. 

Gera þarf stjórnvaldslegar ráðstafanir til að leysa þann hnút sem verðtryggð húsnæðislán hafa komið þjóðinni í, sérstaklega þarf að gera ráðstafanair fyrir unga fólkið okkar.

"Markaðurinn" byggir bara það sem mestur hagnaður er af. Um þessar mundir er markaðurinn=verktakar að byggja dýrar eignir þó mest sé þörfin fyrir ódýrar íbúðir. Bankarnir sátu uppi með hálfbyggðar framkvæmdir verktakanna sem fóru á hausinn í og eftir bankahrunið. Samt fá sömu verktakar nú framkvæmdafé frá sömu bönkunum - í byggingar sem ekki er brýnust þörf fyrir.

Something is rotten in the State of Danemark.

http://www.mbl.is/vidskipti/frettir/2014/04/07/er_byggingarmarkadurinn_ad_ofhitna/

Marta B Helgadóttir, 19.4.2014 kl. 23:07

13 Smámynd: Halldór Jónsson

Það er hægt að byggja ódýrar ef við notum minna efni og vinnu og hættum að láta greiða lóðir fyrirfram

Halldór Jónsson, 19.4.2014 kl. 23:35

14 Smámynd: Halldór Jónsson

Án verðtryggingar væri ekkert fjármagn í boði Marta mín. Viltu það heldur?

Halldór Jónsson, 19.4.2014 kl. 23:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 48
  • Frá upphafi: 3417956

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 45
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband