Leita í fréttum mbl.is

Vatnaskil hjá Sjálfstæðisflokknum

eru líklega framundan að því að mér finnst.

Flokkurinn mun leita meira að ástríðufólki í pólitík en sléttmennum  til forystu. Flokkurinn fer ekki aftur í kosningar til þess fyrirsjáanlega að tapa eins og nú horfir. Taparar koma ekki aftur í foystusveit flokksins eftir því sem reynslan kennir okkur. Það verður kallað á nýtt fólk og nýjar áherslur. Ástríðupólitík og ástríðufullt fólk sem gefur sig allt í baráttuna.

Það verða mörg vinslitin í þeim átökum sem framundan eru. Flokksmenn munu verða að gera upp við sig hvað er best fyrir flokkinn áður en þeir hugsa hvað sé best fyrir þá og vinina þeirra. Það verður sárt en nauðsynlegt. Flokkurinn hefur ávallt verið stærri en einstakir menn og lifir ekki af nema svo verði.

það eru líklega að renna upp nýir tímar að mér finnst.  Tímar fólks sem hefur aðra sýn á lífið en við þeir gömlu höfðum. Þær bylgjur munu skella á gluggum Valhallar sem mun ekki halda áfram tilveru sinni eins og grafhýsi liðinna veltitíma fornra frægðarmenna. Nútíminn bankar á bak hvers manns. Hvað getur þú gert fyrir landið þitt og þína afkomendur? Þinn gamli tími er liðinn því nýir tímar eru í nánd.

Á þarnæsta landsfundi munu verða mörg andlit sem ég ekki þekki eins vel og var á næstliðnum landsfundum. Hugsanlega bara verð ég ekkert þar heldur?

Þó finnst mér líklegt að margt íslenskt  fólk framtíðarinnar  muni skynja grunninntak sjáflstæðistefnunnar eins og fólk skildi hana frá 1929 til dagsins í dag, Þessvegna held ég að Sjáflstæðisflokkurinn muni lifa af þá tíma sem framundan eru til þess að sjá aðra bjartari. 

En það eru trúlega einhver vatnaskil framundan hjá Sjáflstæðisflokknum. 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rafn Guðmundsson

'vatnaskilin' verða vonandi á þá leið að 'flokkurinn' klofnar í tvo hluti. þeir sem eiga von og þessir 'gömlu' verða bara eftir 'in the dust'

Rafn Guðmundsson, 31.5.2014 kl. 00:03

2 Smámynd: Jón Valur Jensson

Öflugur ertu, Halldór, eins og í nýjasta flugvallarpistli þínum.

En á ekki þetta, sem þú ritaðir: "Flokkurinn mun leita meira að ástríðufólki í pólitík en sléttmennum til forystu," líka við um Bjarna unga Benediktsson? Gengur það öllu lengur, að hann láti fjarstýra flokknum í meginmálefni af hinni ömurlegu Samfylkingu?

Og lét ekki varaformaður flokksins, Hanna Birna, sömu Samfylkingu -- og vitleysingana í borgarstjórnarmeirihlutanum -- fjarstýra sér í flugvallarmálinu?

Er þetta afleiðingin af "umræðustjórnmálum" í stíl Samfylkingar?

Ég er með tilgátu:

Að borgarstjórnarminnihlutinn hafi látið peningagráðugan meirihlutann "friða" sig og spilla sér: allir borgarfulltrúar skyndilega búnir að ca. þrefalda sín laun fyrir sína léttu vinnu upp í hálfa milljón á mánuði.

Komnir í eina sæng með ábyrgðarlausu flokkunum um þetta, var ekki við því að búast, að sjálfstæðismenn í borgarstjórn reyndust standa stöðugir, enda brugðust þeir í hverju málinu á eftir öðru, í skipulagsmálum, flugvallarmálinu, í því sem hefði átt að vera vörn fyrir kristinn sið gegn Nýja testamentis-andstöðu vinstri flokkanna -- og vitaskuld í MOSKUmálinu, þar sem sjálfstæðismenn í borgarstjórn og borgarráði SÁTU HJÁ! Þeir áttu vitaskuld að segja NEI, því að það var engin heimild til að gefa múslimum það sem er margra milljónatuga virði, hvorki lagaheimild (sjá HÉR!) né neitt umboð frá kjósendum vinstri flokkanna vorið 2010 (enda ekki um það beðið), og auðvitað þora þeir ekki að athuga með að fá slíkt umboð með íbúakosningu!

Á meðan verða þeir að tejast hafa misfarið með fé borgarbúa.

Og Sjálfstæðisflokkinn vantar alvörumenn með bein í nefinu til að takast á við þessa vesölu lúða, þessa ófyrirleitnu þykjustustjórnmálamenn í gervimennskuflokkunum.

Jón Valur Jensson, 31.5.2014 kl. 01:37

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Rafn, ég fer nálægt um af hvaða örlög þér hugnast fyrir sjálfstæðisflokkinn. En þér verður ekki að ósk þinni þar sem þú veist líklega margt ekki um Sjálfstæðiflokkinn eða þann merkilega sjálfhreinsibúnað sem virðist vera innbyggður í hann. Hann er að virka með stofnun nýja hægri flokksins ef hún þá sér dagsins ljós. Evrópumálin eru nefnilega að leysast fyrir okkur án þess að við gerum nokkujð í því. Marine LePen ætlar að sjá fyrir Evrunni fái hún nokkru þar um ráðið.

Já Jón Valur

Ekki sé ég langt fram á veginn. En þó hygg ég að hvorki moskumálinu né flugvallarmálinu ljúki í sátt og samlyndi. En S.Björn orðaði það þannig, að þeir hefðu völdin og ætluðu bara að nota þau.

Halldór Jónsson, 31.5.2014 kl. 09:35

4 Smámynd: Ómar Bjarki Smárason

"Gamla genginu" hefnist nú fyrir að hafa neitað að hlusta á gagnrýni og því er nú komið fyrir flokknum í dag eins og væntanlega kemur í  ljós þegar talið verður upp úr kjörkössunum í kvöld og nótt....

Ómar Bjarki Smárason, 31.5.2014 kl. 13:17

5 Smámynd: Kristmann Magnússon

Nei heyrðu mig nú Halldór - - ef þú heldur að Marine LePen eigi eftir að sjá fyrir Evrunni þá hefur þú gleymt bollureikningnum okkar úr Ísaks-skóla.

Þessir andstöðuflokkar EB í Evrópu fengu samtals um 120 þingsæti af 750 eða um 16-17% sem þýðir auðvitað að þeir sem vilja halda þessu samstarfi áfram eru með 83-84% fylgi.

Ég er hræddur um að Ómar Bjarki hafi rétt fyrir sér þar sem hann segir ykkur hafa neitað að hlusta á gagnrýni - og þetta verður nú bara æfing fyrir næstu þingkosningar

Kristmann Magnússon, 31.5.2014 kl. 14:19

6 Smámynd: Rafn Guðmundsson

halldór - við erum þá kannski bara sammála - ég vil sjá 'nýja' sjálfstæðisflokk sem vonandi kemur. gæti hugsað mér að kjósa hann - ég á samt ekki von á því að þú gætir kosið hann þar sem esb já sinnar verða.

nb - esb er ekki að fara neitt - verður bara betra þegar við förum þar inn

Rafn Guðmundsson, 31.5.2014 kl. 16:01

7 Smámynd: Jón Valur Jensson

Þvílíkir rugludallar. Og Marine Le Pen þarf ekkert á meirihluta í ESB-þinginu að halda til að leggja niður evruna í Frakklandi, heldur þarf hún einfaldlega lykilaðstöðu í franskri ríkisstjórn til þess. Sjá nánar merkilegt Reykjavíkurbréf Sunnudags-Moggans þessa helgina.

Jón Valur Jensson, 31.5.2014 kl. 17:36

8 Smámynd: Halldór Jónsson

LePen sagði það sem Jón Valur er að tala um. Fari Frakkar úr evru-samstarfinu þá er nú líklega lítið eftir. Því það voru þeir sem pressuðu hana í gegn á sínum tíma. Nú hafa þeir ekki geta stjórnað sér eins og Þjóðverjar og verða að fella gengið hjá sér.

Reykjavíkurbréfið var gott hjá Davíð að vanda.

Það verður nú seint sem ég verð í ESB flokki Rafn.Við förum ekkert þar inn því það samband er að verða sjálfdautt fyrir margra hluta sakir. Grunnurinn fer ef Frakkar fara.

Halldór Jónsson, 31.5.2014 kl. 19:23

9 Smámynd: Halldór Jónsson

Já Mannsi minn, 17 % núna, hvað næst?

Halldór Jónsson, 31.5.2014 kl. 19:23

10 Smámynd: Kristmann Magnússon

Já Halldór minn

21-22% núna - hvað næst ??

Kristmann Magnússon, 31.5.2014 kl. 20:18

11 Smámynd: Halldór Jónsson

Ég held að leiðin muni liggja upp á við úr þessu Mannsi. Bjarni gamli Ben sagði:"Munið þið piltar, þótt við séum vondir, þá eru aðrir verri." Þessi flokkaflóra til visntri er svo hræðileg. Horfðu bara á Samfylkinguna eða VG. HerreGud!

Halldór Jónsson, 1.6.2014 kl. 17:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 4
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 3417959

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 48
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband