Leita í fréttum mbl.is

Innlegg um Islam

er að finna í grein Jóhannesar L. Helgasonar í    í Morgunblaðinu í dag:(bloggari feitletrar )

"Blýantar Fréttablaðsins fara þessa dagana barnalegu offari í gagnrýni sinni á Famsóknarflokkinn og ekki síður á kjarnakonuna Sveinbjörgu, oddvita flokksins í Reykjavík, sem vann stórsigur í bæjarstjórakosningunum síðustu og fékk tvo bæjarfulltrúa kjörna.

 

Glæsilegur sigur og til hamingju, þið valkyrjur Framsóknarkvenna.

 

Strax eftir kosningarnar féllu blýantar Fréttablaðsins, sem er rauðleitt kratablað, þeir Ólafur Stef. og Bartoszek, í þá gryfju að hengja bakara fyrir smið.

 

Dögum saman níddu þeir niður Framsókn og Sveinbjörgu og um leið þau 11% kjósenda sem flokkinn kusu í kosningunum.

 

Það fólk er þá að þeirra mati vont fólk, rasískur öfgahópur, sem ekki er mark á takandi.

 

Skrif Bartoszeks varðandi þetta mál finnst mér vera ruglingslegt blaður og vitleysa út í gegn og líkist hann mest manni sem hefur verið haldinn slæmri ritstíflu í 12 ár, en svo þegar hún losnar skyndilega þá reynir hann að koma öllu uppsöfnuðu fyrir í einni smágrein í ofsafengnum flaumósagangi.

 

En aftur að ritstjóra Fréttablaðsins.

 

Allt í einu virðist ritstjórinn hafa áttað sig á því (Fréttablaðið 7. júní) að hann hefur vaðið í villu og svíma um að uppástunga Sveinbjargar um afturköllun lóðar undir mosku í Sogamýri og það að setja þyrfti sérstök lög sem bönnuðu nauðungargiftingar ungra stúlkna, séu af hinu vonda og að það sé ekkert við Framsóknarflokkinn að sakast, án þess þó að hafa kjark í sér til að benda á hina raunverulegu ástæðu kosningasigursins.

 

Auðvitað var þetta tímabært umræðuefni hjá kjarnakonum Framsóknar, svo geta menn kallað það kosningasprengju, eða hvað menn vilja láta það heita, en þessi umræða er fyrir löngu orðin tímabær og hefur verið tabú allt of lengi eins og svo margt annað á Íslandi sem liggur í þagnargildi.

 

Hvað skóp svo kosningasigurinn, jú nefnilega enginn annar enn músliminn sjálfur og andúð fólks á þeim trúarbrögðum sem hann stendur fyrir, ef hægt er að kalla þetta trúarbrögð.

 

Auðvitað er þessi alþjóðlega andúð á múslimum ekkert nýtt fyrirbæri, hvorki hér á landi né erlendis, og það er að sjálfsögðu músliminn sjálfur og hin furðulega múslimska trú með öllum sínum öfgum sem hefur skapað andúðina og ekkert annað.

 

Við skulum ekki vera bláeyg og barnaleg þegar kemur að íslam. Opnum augun og þá blasir við skelfileg kúgun og ofstæki af öllum toga í hinum múslimska heimi og þá fyrst og fremst gagnvart kvenþjóðinni og það alveg til yngstu stúlkubarna.

 

Bara þess vegna ættu allar konur á Íslandi að mótmæla kröftuglega þessari vondu trú og hætta að trúa því að þetta sé allt saman einhver misskilningur og bara áróður í vondu fólki og að íslamstrú sé alveg yndisleg fyrir konur. Hættið að vera barnalegar, opnið augun og þið munuð sjá.

 

Það nýjasta frá íslamsfræðingum vestanhafs er að hvergi í hinum íslamska heimi eru þau þjóðfélög rekin í anda Kóransins nema að mjög litlu leyti.

 

Og hvað erum við þá að tala um, íslamstrú sem er eitthvað allt annað og verra?

 

Er það eitthvað sem á að trúa á, er það ekki bara villutrú trúleysingjans?

 

Fjölkvæni. Danir hafa ekki enn getað leyst vandamálið með Írakann og konu hans sem byrjaði á því þegar fjölskyldan var komin með dvalarleyfi að flytja konu númer tvö til Danmerkur. Fjölkvæni er bannað í hinum kristna heimi en karlinn var aftur á móti löglega giftur tveim konum (kannski eru þær orðnar þrjár núna) í Írak. Óleysanlegur vandi. Góður er Allah við karla.

 

Í Íran var 12 ára telpu nauðgað á leið heim úr skóla. Hún sagði móður sinni frá því, sem gerði svo þau mistök að segja manni sínum frá ódæðinu. Þá var aðeins eitt að gera, fjölskyldan var orðin óhrein og smánuð, telpan varð að deyja.

 

Stuttu síðar skaut 17 ára bróðir hennar telpuna í höfuðið þar sem hún var að borða morgunverð. Heiðursmorð heitir það og fékk hann sex mánaða skilorðsbundið fangelsi. Það var aldrei leitað að nauðgaranum, hann skipti ekki máli í þessum ósköpum öllum. Mikill er Allah í karlrembuforaði múslima.

 

Ófrísk kona var grýtt til dauða í Pakistan og þótti heiður að fá að kasta fyrsta steininum.

 

Ólöglegar nauðungargiftingar múslimskra stúlkubarna á Norðurlöndum sem eru síðan fluttar með leynd til Arabalanda eru alveg forkastanlegar en um leið illmögulegt að stöðva. Stjórnvöld eru varnarlaus gegn þessu viðurstyggilega mansali.

 

Trúarleiðtogi múslima á Íslandi, Salmann Tamini, setti systur sína út í kuldann og út úr söfnuðinum af því að hún giftist kristnum manni. Sagðist svo hafa verið neyddur til þess vegna þrýstings frá söfnuðinum. Lítið lagðist fyrir kappann.

 

Ætlið þið ekki að kreppa hnefana íslensku konur, og krefjast jafnréttis múslimskra kvenna hvar sem er í heiminum? Þið hafið nú aldeilis hrópað hátt yfir minni mismunun en þessari hér á landi í gegnum tíðina.

 

Að endingu þá má berja með písk sex börn til trúar en þó ekki á meðan á trúarathöfn stendur.

 

Þetta viljum við ekki hafa á Íslandi. "

Líklega verður ekki löng bið á því að opinberir skoðanframleiðendur Íslands rjúki upp og lýsi þessi dæmi sem tilfærð eru lygi og uppspuna frá rótum. Svona verði Islam ekki á Íslandi. 

Er ekki kominn tími til að trúleysingjar á Íslandi taki höndum saman við þjóðkirkjuna á Íslandi, sem við jú notum vel flest að einhverju leyti, til að verjast innrás og ásælni Islams? Ég held í þó nokkurri   alvöru að þeirra siðir bara henti okkar þjóðfélagi hreinlega ekki og slíkir siðir muni aldrei samlagast því öðruvísi en að ná yfirhöndinni,

Canadamenn hafa skilgreinda innflytjendastefnu. Þeir gefa sér fyrirfram hversu margir innflytjendur geti komið. Síðan hvernig fólk vanti. Svona marga lækna, doktora í þessu eða hinu, svona marga smiði, rafvirkja. Svona marga milljónera sem ætla að stofna fyrirtæki. Ekki eftir því hversu margir flóttamenn séu í boði frá Sómalíu, Sýrlandi eða Lybíu.

Íslenskt þjóðerni og ríkisfang er það dýrmætasta sem þessi þjóð á. Það er illt að horfa á umboðslítið fólk sóa þessu tilviljanakennt  án þess að þjóðin fái rönd við reist pólitískt. 

Okkur vantar ekki meira Islam til Íslands heldur minna. 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Mjög góð grein og uppfull af dæmum um það hvað "vinstra umburðarlyndisliðið" er að kalla yfir sig og hversu bláeygir og undanlátssamir vestrænir íbúar eru gagnvart múslimum.  Það er alltaf talað um að lítill hluti múslima sé öfgasinnaður en það hefur alls staðar orðið þannig að það er þessi litli hópur öfgamanna sem nær völdum og ræður öllu hvað sem hver segir.....................

Jóhann Elíasson, 28.6.2014 kl. 14:56

2 Smámynd: Kristmann Magnússon

Halldór

ég vil fá skýringu á setningunni þinni. "Mikið er Allah góður við karla"

Ég veit ekki annað en að þú sért giftur alveg indælis konu en einhvern vegin finnst mér koma fram hjá þér öfund þegar þú segir þetta og ég vil fá skýringu

Kristmann Magnússon, 28.6.2014 kl. 15:15

3 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Jóhann skrifar:"Það er alltaf talað um að lítill hluti múslima sé öfgasinnaður” ef hann er svo lítill er hann mörgu sinnum öflugri. Í grein Halldórs þar sem hann greinir frá yfirgangi Salmann,s Tamini,gegn systur sinni,ber hann því við að hann hafi verið neyddur til vegna þrýstings frá söfnuði sínum. Ætla menn að þeir sem fjármagna moskubyggingu hér,séu ekki háttsettari en söfnuðurinn hér. Þeir munu örugglega vera með nefið ofaní öllu og gefa fyrirskipanir. hvað þá ef við látum það viðgangast að leyfa því að stækka og eflast. ----Tökum upp skilgreinda innflytjandastefnu.

Helga Kristjánsdóttir, 28.6.2014 kl. 15:32

4 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Ætli það sé ekki aðeins jákvætt að sem flestir íslenskir vinstri menn skrái sig sem múslimatrúar.

Vona má að íslenskir "vantrúarmenn" skapi eitthvað jafnvægi í söfnuðunum gegn shariatilskipunum sem kæmu að utan.

Þó þykir mér ólíklegt að margar íslenskar konur verði í þeim hópi - ja, nema etv Ólína.

Kolbrún Hilmars, 28.6.2014 kl. 16:25

5 Smámynd: Kristján Þorgeir Magnússon

Góð grein Halldór og það sem fram kemur í henni stendur allt heima.  Mæli  með að vinstrafólkið lesi bókina "Islamistar og Naivistar".  Vel skrifuð bók af éinstaklingum sem vegna reynslu sinnar vita um hvað þeir eru að tala.

Íslenzkir vinstriheimalningar er þó trúlega of fáfróðir og "naive" til að skilja bókina og því síður gera sér grein fyrir að höfundar hennar hitta naglann á höfuðið.

Ég er sammála þér í því, að við þurfum ekki meira Islam, heldur minna.  Þetta eiga allir að vita, telast mega sigldir og upplýstir.  Heimalningar hafa þó ekki forsendur til að hafa skilning á því.

Kristján Þorgeir Magnússon, 28.6.2014 kl. 20:15

6 Smámynd: Kristján Þorgeir Magnússon

Afsakið prentvillu.  Átti að vera sem  teljast mega sigldir og uppýstirj

Kristján Þorgeir Magnússon, 28.6.2014 kl. 20:18

7 Smámynd: Halldór Jónsson

Mannsi minn, hvað ertu að spyrja mig um það sem Jóhannes skrifar.

Mér finnst Allah bara býsna góður kall við alla. Það eru þessir trúbófar sem eru að sverta hans góða innræti enda ku hann vera sá sami Guð og þú trúir á.

Svona var þetta á miðöldum hjá okkur. menn myrtu og stálu í nafni Biflíunnar. Þetta Araba-og blámannalið sem nú slæst um á hæl og hnakka er bara frumstæður lýður sem ekkei er hægt að rökræða við, það hefur bara ekki þroska á við nútímamenn frekar en Egill skallagrímsson myndi hafa kæmi hann skyndilega hingað. Það er algerlega bí bí að flytja þetta dót hingað í nafni mannúðar eða vinstri kratadellu og internasjónale. Þetta lið getur ekki fúnkerað hjá okkur,látum þ.að vera kyrrt heima hjá sér og sendum þeim byssur og skot því það elska þeir við sitt trúboð,

Halldór Jónsson, 28.6.2014 kl. 20:28

8 Smámynd: Halldór Jónsson

Já Mannsi, það vantar ekki götustrákinn í þig þó liðin sé nokkur ár. Þú ert sami grallarinn og í Grænuborg þar sem Ísak bjargaði líklega því litla sem hægt var í þér cog svo við bekkjarbræðurnir sem leiddu þig til þess takmarakaða þroska sem þú flaggar enn í dag. Ég segi nú ekki margt hverni þú hefðir orðið án okkar Ísaks!

Halldór Jónsson, 28.6.2014 kl. 20:35

9 Smámynd: Jón Valur Jensson

Þetta var alls ekki fráleit grein hjá honum Jóhanni, hreinskiptið tal og stutt skýrum dæmum sem ættu að fá einhverja til að hugsa.

Það var líka vel skrifað um þessi mál í Reykjavíkurbréfi Mbl. í dag.

En þú ritar, Halldór, meðal annars þetta athyglisvert:

"Canadamenn hafa skilgreinda innflytjendastefnu. Þeir gefa sér fyrirfram hversu margir innflytjendur geti komið. Síðan hvernig fólk vanti. Svona marga lækna, doktora í þessu eða hinu, svona marga smiði, rafvirkja. Svona marga milljónera sem ætla að stofna fyrirtæki. Ekki eftir því hversu margir flóttamenn séu í boði frá Sómalíu, Sýrlandi eða Lybíu."

Gott var að þessi pistill þinn vakti athygli (mikið um heimsóknir á síður hjá þér, jafnvel í nótt). En hvar eru nú allir "vinstrifrjálslyndir"?

PS. Veiztu, Halldór, um einhvern einn tiltekinn eða fleiri, sem "myrtu og stálu í nafni Biflíunnar"?

PPS. Tek fram, að ég hafna því ekki að tekið skuli við flóttamönnum hér, eftir því sem við kunnum að ráða við, en ég fellst ekki á þá stefnu sænskra yfirvalda að lýsa því yfir við sýrlenzka flóttamenn (sennilega í tugþúsunda tali) að þeim sé velkomið að vera þar um aldur og ævi. Nóg ætti að vera að leyfa þeim að vera þar, unz ástandið hefur batnað í landi þeirra.

Jón Valur Jensson, 29.6.2014 kl. 02:39

10 Smámynd: Halldór Jónsson

PS. Veiztu, Halldór, um einhvern einn tiltekinn eða fleiri, sem "myrtu og stálu í nafni Biflíunnar"?

Ég vil ekki fara að ræða trúmál við þig Jón Valur þar sem við eigum ekki samleið í þeim efnum. En það má velta krossferðunum fyrir sér, Cromwell og fleiri athafnamenn

Halldór Jónsson, 29.6.2014 kl. 10:04

11 Smámynd: Halldór Jónsson

En þakka þér fyrir Jón Valur þínar glöggu athugasemdir.Þú ert mikill baráttumaður fyrir okkar þjóð og boðberi skynseminnar í flestum málum

Halldór Jónsson, 29.6.2014 kl. 10:06

12 Smámynd: Halldór Jónsson

Og Kristján, takk fyrir undirtektir.

Og Kolbrún, hvernig stendur á því að konur hafa ekki veið mjög áberandi í andspyrnunni gegn ISLAM.

Já Helga vinkona, það stendur ekki á skilningi hjá þér.Takk fyrir undirtektir. Við þurfum að lemja þetta inn í okkar trefu þingmenn:Skilgreinda innflytjendastefnu

Halldór Jónsson, 29.6.2014 kl. 10:09

13 Smámynd: Halldór Jónsson

Jóhann, þetta er skynsamlega orðað:"Það er alltaf talað um að lítill hluti múslima sé öfgasinnaður en það hefur alls staðar orðið þannig að það er þessi litli hópur öfgamanna sem nær völdum og ræður öllu hvað sem hver segir....................."

Er þetta ekki akkúrat svona? Guðjón bak við tjöldin stjórnar hér öllu og kúgar allt og alla, kallar mig og aðra nasista og rasista og kemst upp með það sem QED í r0kræðunni um innflytjendamál

Halldór Jónsson, 29.6.2014 kl. 10:13

14 Smámynd: Halldór Jónsson

?

Halldór Jónsson, 29.6.2014 kl. 10:14

15 Smámynd: Kristmann Magnússon

G Ó Ð U R Halldór

Kristmann Magnússon, 29.6.2014 kl. 10:18

16 Smámynd: Þorkell Guðnason

Þarna blés Mannsi örlítið í glæðurnar og þá spúði drekakjaftur Dóra eldi ;-)

Þorkell Guðnason, 29.6.2014 kl. 11:30

17 Smámynd: Jón Valur Jensson

Ljótir hlutir gerðust óneitanlega í krossferðunum og verstir í Jerúsalem. Þó voru þær upphaflega hvorki farnar í hefndar-, ráns- né trúboðsskyni.

Og morð og rán veit ég ekki til að hafi þar verið "í nafni Biblíunnar."

Þakka þér að öðru leyti skelegg svör hér, einkum til annarra en mín.

Og Reykjavíkurbréfið í dag má vera okkur öllum til leiðsagnar um heilbrigða og vel hugsaða skynsemi í þessum efnum, án allra öfga.

Jón Valur Jensson, 29.6.2014 kl. 16:47

18 Smámynd: Jón Valur Jensson

Eða: ... ekki síður til annarra en mín!

Jón Valur Jensson, 29.6.2014 kl. 16:48

19 Smámynd: Sigurður Haraldsson

VIÐ VERÐUM AÐ VERJAST OG BERJAST BRÆÐUR OG SYSTUR.

Sigurður Haraldsson, 30.6.2014 kl. 07:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 55
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband