Leita í fréttum mbl.is

Hvað vantar við Gullfoss?

Ekkert af því sem Umhverfisstofnun ætlar að fara framkvæmda fyrir marga tugi milljóna við Gullfoss á undan því sem vantar.

Það  sem vantar við Gullforss, Geysir, Goðafoss, Dettifoss,Dimmuborgir,Hveragerði og Þingvelli svo eitthvað sé nefnt er til sýnis á Seltúni við Krýsuvík. þar er búið að leysa þetta tæknilega stórvandamál sem íslensk ferðamálayfirvöld, Umhverfisstofnun og sameinaðir afdalamenn í ferðaþjónustunni hafa ekki getað leyst til þessa.

Hvað er þetta undraverk við Seltún? 

Litlar snyrtilegar klósettbyggingar með vöskum og handþurrkum. Lokaðar í frosti. Það er upplifun að sjá hversu feginsamlega ferðamennirnir taka þessum húsum. Þeir brosa í biðröðunum.

Það er ömurlegt að standa á neðra plani á Þingvöllum og útskýra fyrir ferðamönnum að geti þeir haldið í sér meðan þeir ganga upp Almannagjá,  þá séu klósett þar uppi.  

Sem eru þó sýnd veiði en ekki gefin. Því að á Hakinu á Þingvöllum ræður  íslensk afdalamennska ríkjum. Ferðamenn eru gráti næst með því að geta ekki komist á klósett sem taka ekki annað en íslenska hundraðkalla og íslensk kreditkort. Steinsteypubyggingar upp á milljónatugi hafa verið reistar þarna sem eru ónothæfar fyrir ferðamenn.  Það er ömurlegt að standa í þvi að skýra þessa fötlun íslenskrar þjóðar fyrir ferðamönnum. 

Eða biðraðirnar út á götu á örfá klósett í verslunarmiðstöðinni í Hveragerði?  Þar koma rútur í röðum og jafnvel sjoppurnar eru lokaðar  þegar ferðaskrifstofurnar demba ósamhæft 10-15 rútum í einu á bílaplanið.

Eru þessu ferðaskrifstofufólki allar bjargir bannaðar í skipulagsmálum? Hvað er að því eiginlega?

Ég legg til að Umhverfisstofnun geri sér ferð að Seltúni til að kynna sér hvernig hægt er að leysa klósettvandamál langt að rekins fólks sem er komið hingað til að heimsækja  land og þjóð. Leysa þau á snyrtilegan hátt og án mikils tilkostnaðar.

Af hverju þarf maður endilega að skammast sín fyrir afdalamennsku þjóðar sínnar sem leiðsögumaður fyrir útlendinga á mestu  náttúruperlum Evrópu? Sigríðarstofa var lokuð í allt fyrrasumar með sín klósett. 

Það sem vantar á neðra plan  Gullfoss eru seltúnsk klósett á undan einhverjum tréprílum upp og niður sem Umhverfisstofnun ætlar nú að fara að smíða.

 

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Hey, heyr! Hjartanlega sammála.

Halldór Egill Guðnason, 8.7.2014 kl. 22:34

2 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Það þyrfti að hafa sambærilega áróðursmaskínu fyrir salernum hjá umhverfiskontóristum eins og Hamas kynnir börnunum fyrir því sem þau eiga að taka sér fyrir hendur þegar þau verða eldri :

https://www.youtube.com/watch?v=X8fRMqWOBuM

Mætti sýna grunnskólabörnum, sem ætla að verða ferðamálakontóristar þegar au verða stór, samsvarandi myndband - þau svínvirka eins og við höfum séð um langan aldur.

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 9.7.2014 kl. 02:40

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Takk fyrir þetta báðir tveir

Halldór Jónsson, 9.7.2014 kl. 09:37

4 Smámynd: Jónas Gunnlaugsson

Farið þið strax og skoðið uppbygginguna við Dimmuborgir. Þarna selja þau frábæra þjónustu.

Enginn latte lepjandi auðlindagjalds rukkandi ég.

Jú ég er að flýta mér.

Eg. 09.07.2014  Jónas Gunnlaugsson

Jónas Gunnlaugsson, 9.7.2014 kl. 13:02

5 identicon

Ég tek að mér með glöðu geði að smíða hreinlætishús af öllum stærðum og gerðum.

 http://husbondi.is/

Kári S. Lárusson (IP-tala skráð) 9.7.2014 kl. 23:31

6 Smámynd: Halldór Jónsson

Kári, þetta eru akkúrat húsin sem vantar, falleg og einföld en greinilega vönduð smíð. Blessaður reyndu að koma þessu að.

Jónas, átt þú Dimmuborgir? Kom þar í fyrra og þar var nú hús með aðstöðu minnir mig, var að ekki?

Halldór Jónsson, 10.7.2014 kl. 18:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 55
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband