Leita í fréttum mbl.is

Pétur Gunnlaugsson

á Útvarpi Sögu fannst mér lengi vera helst til gagnrýninn á Sjálfstæðisflokkinn án þess að hafa komið  þar inn sjálfur. Í seinni tíð stend ég mig að því að líka betur og betur við Pétur og hvernig hann talar við fólkið, sem auðvitað er ekki allt með því spakara.  Pétur er orðinn mun yfirvegaðri finnst mér og ég hugsa mér oftlega að fengur yrði að honum í Sjálfstæðisflokknum þar sem skoðanir hans eru margar orðnar bæði markaðsstefnandi og skynsamlega hófstilltar.

 Í innflytjendamálum vil Pétur nota skynsemina og draga lærdóm af reynslu grannþjóða. Og ekki sér hann bara grænar grundir hjá Evrópusambandinu þó margir reyni að slá hann útaf laginu.

En Pétur er mikill áhugamaður um það sem hann kallar beint lýðræði. Mér skilst helst að það þýði þjóðaratkvæðagreiðslur í sem flestum málum. Pétur var líka á Stjórnlagaþingi og er greinilega mjög hrifinn af því sem þar gerðist, Og er þetta beina lýðræðistal hans væntanlega ættað þaðan.

Rómverjar sögðu eitthvað í þessa veru um háttvirta kjósendur í hinu beina lýðræði sem þeir viðhöfðu í einhverjum málum: " Vulgus, indoctus, mobile, horrendum que" sem ég held að útleggist ó þú hræðilegi óupplýsti hvikuli múgur(ef ekki bara skríll). Skrílræði er nefnilega niðurstaða sem æsingamenn á öllum tímum hafa skapað og kallað það beint lýðræði eða Alþingi götunnar eftir hentugleikum.

Til þess þarf innblásna menn eins og Adolf Hitler, Cicero, Demosþhenes eða Kléon sútara. Slíkir menn geta æst upp lýðinn til að taka ógrundaðar skyndiákvarðanir sem ekki verða aftur teknar, Svo eru aðrir lítið skárri sem dreifa röngum upplýsingum og fá sinn vilja þannig. Þjóðrægjendur til forna(psykofantar)voru þeirrar tegundar.  Af seinni tíma körlum má nefna George W.Bush sem teymdi okkur með sér til að drepa Saddam Hussein verkfræðing og merkismann. En það hefði betur aldrei verið í ljósi sögunnar og því blóðbaði sem af því leiddi. 

Ég held að við Íslendingar höfum nógu góðan farveg fyrir allt það beina lýðræði sem nokkur þjóð þolir. Það er málskotsréttur Forseta Íslands sem hann beitti til að losa okkur undan Icesave helsinu sem kommúnistarnir og afglaparnir Steingrímur J. og Svavar Getsson voru nærri búnir að koma á okkur.  Hugsið ykkur ef þeim hefði tekist það?  Aðeins í örþrifatilvikum getur þurft að grípa fram fyrir hendurnar á lýðræðislega kjörnum fulltrúum. Þá er eins gott að á Forsetastóli sitji stjórnmálamaður með bein í nefinu en ekki einhver menningarleg tuskudúkka sem engu þorir. 

Ég vildi heyra nánar um það hvernig Pétur hugsar sér beint lýðræði í framkvæmd og með hvaða takmörkunum. Mér finnst núverandi stjórnarskrá duga Íslendingum  ágætlega og hafa sannað sig. Langhundurinn sem Pétur og félagar sömdu hér um árið var að mínu viti ekki til þess fallinn að greiða úr neinum vanda. 

En áfram með Pétur Gunnlaugsson  á Útvarpi Sögu því hann er  vaxandi maður að mínu viti. 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 44
  • Frá upphafi: 3417961

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 41
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband