Leita í fréttum mbl.is

Orð af viti

um brjálæðislegar hugmyndir elítunnar um nýjan Landspítala sem átti víst upphaflega að byggja fyrir Símapeningana eina og sér eftir vel heppnuð veikindi frammámanns.

Þorsteinn Valur Baldvinsson Hjelm skrifar:(Bloggari feitletrar að vild)

"Við áformum að byggja nýtt hátæknisjúkrahús utan á gamla Landspítalann og tengja þar saman gamlar og nýjar byggingar með löngum niðursprengdum dýrum göngum sem er vísun á mikla óþarfa vinnu, kostnað og tímasóun við að flytja fram og til baka vörur og sjúklinga næstu áratugina.

 

Þetta er sennilega dýrasta aðferðin við að byggja og þótt settar séu fram kostnaðaráætlanir vitum við skattborgarar af biturri reynslu að þær standast ekki, gera má ráð fyrir að kostnaðurinn við að tengja saman nýja og gamla byggingu ásamt þeirri endurbyggingu á gömlum innviðum sem fylgir slíku muni margfaldast.

 

Nýtt hátæknisjúkrahús hlýtur að þurfa að byggja þannig að öll kjarnastarfsemi sé fyrir miðju til að lágmarka flutninga á sjúklingum ásamt því að halda niðri kostnaði við lagnir vegna tæknibúnaðar sem og styrkleikaþörf burðarvirkis, sjúkralega yrði þá í léttbyggðum aðliggjandi álmum.

 

Gamli Landspítalinn sómir sér vel sem hjúkrunarheimili, sjúkrahótel, rannsóknasetur, hús Íslenskra fræða og/eða heilsugæslu, varðveitum þessar gömlu byggingar í upprunalegu ytra formi.

 

Ábyrgðarleysi ráðamanna og rörsýn vegna þessara áforma er sláandi, kostnaður virðist engu skipta enda eru þeir ekki sárir á almannafé þegar þeir reisa sjálfum sér minnismerki. Öryggi sjúklinga virðist litlu skipta í þessum áformum því þótt búið sé að loka nánast öllum skurðstofum í nágrenni höfuðborgarsvæðisins til að réttlæta nýtt hátæknisjúkrahús virðist horft fram hjá því lykilatriði sem flutningstími með sjúkrabifreiðum er en það dýrmætasta í lífi okkar allra er tíminn.

 

Veika og slasaða verður að flytja að sjúkrahúsi um langan veg með sjúkrabílum nú þegar búið er að loka öðrum skurðstofum og í stað þess að horfa á gatnakerfið og staðsetja nýtt hátæknisjúkrahús þar sem greiðast yrði aðgengi og stystur tími færi í flutninga er ákveðið að troða nýjum byggingum utan á gamlar vestur í bæ þar sem fara þarf um þegar yfirfullar aðflutningsleiðir og fyrir liggja nú þegar hugmyndir um að þrengja að þeim akstursleiðum.

 

Það hafa þegar verið byggðar hátæknisjúkrastofnanir víða erlendis og óþarfi að finna upp hjólið enn einu sinni, X- eða Y-laga byggingu tekur stuttan tíma að reisa og ódýrara verður að reka slíka. Minna fé fer í bygginguna sem þýðir að meira fé verður til tækjakaupa og til að byggja upp mannauðinn.

 

Hvort það verður byggt nýtt hátæknisjúkrahús á lóð ríkisins við Vífilsstaði, á fyrrum hesthúsalóðum við Smárahverfið í Kópavogi eða á öðrum þeim stað þar sem minnstar tafir og stystan tíma tekur að flytja sjúklinga að skiptir öllu máli.

 

Hér er slóð á rannsókn sem staðfestir að dánartíðni fólks eykst í hlutfalli við akstursvegalengd með sjúkrabifreið: http://www.ncbi.nlm.nih.gov/pmc/articles/PMC2464671/

 

Það er verið að taka ákvarðanir um líf þeirra 21.470 manna á Suðurnesjum, 23.780 manna á Suðurlandi, 10.282 manns á Vesturlandi auk þeirra 208.210 íbúa á stór-höfuðborgarsvæðinu; út frá þeirra öryggi verður fyrst og fremst að hugsa og horfa til þess hvar miðja sjúkraflutninga verður.

 

Í vesturbæ Reykjavíkur búa 16.378 af þessum 263.742 Íslendingum sem verða að treysta á skjóta sjúkraflutninga með bifreiðum, er verið að gæta hagsmuna meirihluta landsmanna eða er það rörsýn á aðra hagsmuni sem ræður för?"

Varðandi kostnaðaráætlanir ráðamanna almennt  þá vísast til pí-lögmáls Halldórs(það er ég). Það hljóðar svo:

Í hvert sinn sem stjórnmálamenn leggja fram áætlun um nýtt þjóðþrifamál þá verður lokakostnaðurinn fyrir skattgreiðendur  N x pí-sinnum hærri en hann áætlar. Sannanir  lögmálsins má sjá í byggingu Hörpu, óperuhúss í Hamborg, flugvallar í Berlín,Noregi og víðar. Lögmálið rúmar N-Faktora frá 1-3 eftir því sem breiðari samstaða fæst um framkvæmdina og skal meta í hverju tilviki fyrir sig. Þannig ber að skoða kostnaðaráætlanir um viðbyggingu Landspítalans. 

Hvernig í veröldinni stendur á því að þetta stóra mál fæst ekki einu sinni rætt? Þorsteinn segir allan sannleikann í þessu skrifi sínu og er þar engu við að bæta. Nema að spyrja um þessa óhuggulegu þöggun um gang málsins?

Af hverju má ekki segja orð af viti um þessa miklu framkvæmd áður en farið er af stað? 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Þórhallsson

Ertu búinn að finna besta staðinn fyrir nýtt sjúkrahús?

Jón Þórhallsson, 29.8.2014 kl. 09:25

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Þorsteinn nefnir Vífilsstaði. Allt það land og golfvöllurinn til vara.

Halldór Jónsson, 29.8.2014 kl. 11:45

3 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Hárrétt og skynsamlegt hjá Þorsteini Val.

Ágúst H Bjarnason, 29.8.2014 kl. 12:48

4 identicon

Það er búið að ræða þessa framkvæmd í eithvað yfir 10 ár núna. Helling af rökum fram og til baka en búið er að taka þá ákvörðun af þremur heilbrigðisráðherrum sem ég veit af, tveimur frá xD og einum frá xS, að hann verður á þessari lóð.

.

Samkvæmt greinini sem þú bendir á þá er sýnt fram á að dánartíðni eykst um 1% fyrir hverja 10km í loft línu af fjarlægð. Fluttningur á vífilstaði er um 6,5km í loftlínu þannig að dánartíðni lækkar um innan við 1% ef spítalinn er staðsettur þar.

Á móti þeirri lækkun í dánartíðni þá þyrfti að líta á kostnað, það er, í staðin fyri að byggja nýjan LSH í áföngum þá þyrfti að byggja hann allan þar sem það væri að vera fórna byggingum sem á að nota í millitíðini áfram.

Elfar Aðalsteinn Ingvarsson (IP-tala skráð) 29.8.2014 kl. 13:01

5 identicon

Ég sendi þér hlekk í teikningu af nýja lsh í síðustu viku Halldór. Ef þú hefðir litið á hana þá hefðiru séð að ekki er verið að byggja utan á gömlu byggingarnar heldur verður ný bygging reist í svolítilli fjarlæg. Þessi göng sem talað er um eru síðan bara göng sem verða framlengd frá núverandi ganga kerfi LSH til að einfalda fluttninga.

.

Öll kjarnastarfsemi ásamt skamtíma dvöl verður í einni byggingu og síðan verða göng þannig að hægt er að flytja sjúklinga yfir á sjúkrahótel til dæmis.

Elfar Aðalsteinn Ingvarsson (IP-tala skráð) 29.8.2014 kl. 13:09

6 Smámynd: Halldór Jónsson

Takk Elvar, ég skoðaði teikningarnar af flæminu. Hvaða loftlínu ertu að tala um? Frá Vatnsmýrarflugvellinum sem á að fara?

Halldór Jónsson, 29.8.2014 kl. 21:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 40
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband