Leita í fréttum mbl.is

Gjaldmiðlastefna?

er eitthvað sem bögglast fyrir fólki sem ekki hefur hugleitt til hlítar hvað séu gjaldmiðlar og hvernig þeir verða til.

Gunnar Rögnvaldsson sá góði bloggari hefur að mörgum ólöstuðum, sökkt sér niður í þetta hugtak og velt því fyrir sér. Hann skilur manna best að ekkert varir að eilífu. Krónan eða dollarinn í dag er ekki sama og krónan og dollarinn fyrir áratugum. Verðbólga hrjáir alla peningaseðla heims. Það er innbyggt í hagkerfin sem nota peninga, að allskyns áhrif og hræringar verða sem gefa engin grið. Allt verður að vera á fleygiferð og ekkert stendur kyrrt nema dauðinn. Hagkerfi sem ætlar að standa kyrrt er dautt og allir sem ætla að lifa með því.

Gengisfelling íslensku krónunnar gagnvart dollar er ekki nema hálf sagan því dollarinn hrynur sjálfur ár frá ár. Það eru víst aðeins eftir fáein cent eftir af dollaranum hans Rossewelts og enn minna af dollaranum hans Lincolns. Það eru 100 cent í dollaranum hans Obama sem Kínverjar safna í gríð og erg og láta sitt strit fyrir. Þeir skilja ekki að Kanarnir hafa þá í greip sér, ekki öfugt eins og margir halda.

Gunnar Rögnvaldsson skrifar pistil um gjaldmiðilinn okkar sem í tísku er að níða niður við öll tækifæri. Af fullkomnu þekkingarleysi eða vísvitandi undirferli leiðir málflutningur margra gegn krónunni til eflingar þeirra sem vilja landið efnahagslega feigt  og varnarlaust fyrir fyrirhuguðu  framsali fullveldisins  til Brussel. Gunnar ritar pistilinn til þeirra sem flykkja sér undir merki Bjartrar Framtíðar en hann á erindi til miklu fleiri í öllum flokkum. 

Hann hljóðar svona:

"In the long run we are all dead"

John Maynard Keynes

Það er átakanlegt að hlusta á talsmenn hrópsins "Björt framtíð" óska eftir "gjaldmiðlastefnu til framtíðar” (já, í fleirtölu, fliss) —þ.e.a.s. óska eftir mótun stefnu í peningapólitískum málum hins peningapólitíska hluta hagkerfisins inn í framtíðina— þegar enginn kjósandi hefur hugmynd um hver framtíðarstefna þessa flokks er næstu klukkustundirnar

Þessi hópur af einhverju, eða öllu heldur, þessi hópur af hverju sem er hvenær sem er, óskar sér framtíðarstefnu í peningamálum þjóðar, svo að flokkurinn geti gert hverjum kjósanda hvað sem er hvenær sem er, á hinu háa Alþingi Íslendinga. Enginn veit hvað flokkurinn stendur fyrir þar, nema ef vera skyldi þokulúðrun og spunnar gaddvírsflækjur til að festa sig við stólana á kostnað skattgreiðenda. Enginn veit einu sinni af hverju flokkurinn er til

Öll þau ríki sem vegna stórfelldra kosningasvika stjórnmálamanna áratugum saman, eru svo ólánsöm að þurfa búa viðgjaldmiðilsstefnu munaðarlausrar myntar, eru öll evruríki

Þau ríki sem hins vegar sjálf eiga raunverulegar myntir sem búa við þjóðríkið og þjóna því, eru afar lánsöm; þau þurfa ekki að búa við mynt, heldur kjörna fulltrúa þeirrar þjóðar sem á myntina. Myntin þjónar þjóðríkinu. Þjóðríkið þjónar ekki myntinni; er ekki þræll hennar, nema þegar um perverst malignant gjaldmiðilssvæði er að ræða eins og evrusvæðið

"Mig langar", er hið gegnum gangandi falska stef of margra stjórnmálamanna sem kjósendur þurfa að búa við án þess að þeir geti hvorki séð fyrir haus né sporð á stefnu þeirra, nema svo sem einn centimeter inn framtíðina. Nær væri að trallsmaður Bjartrar þátíðar upplýsi kjósendur um til hvers hann stendur þarna. Hvert er hlutverk hans annað en að sitja fast og búa til gaddavírsflækjur

Það sem Björt framtíð ætti hins vegar að auglýsa eftir er þetta; Framtíðarstefnu fyrir nýtt fjármálakerfi þjóðarinnar. Fær fjármálakerfi lýðveldisins aftur að koma sér upp uppblásnum og allt of stórum spákaupmennskuknúnum (e. speculative driven) hluta innan íslenska fjármálakerfisins, sem er án nokkurs samhengis við þjóðhagslegt hlutfall fjármálakerfisins í þjóðarbúskapnum í heild? Og fjármálakerfið, það er ekki það sama og peningakerfið, bara svo það sé á hreinu

Að fjármálakerfið verði ekki eins og flokkurinn Björt framtíð: pólitískt spákaupmennsku knúinn hluti lýðræðisins, með ófyrirsjáanlegum afleiðingum fyrir þjóðarbúið og sjálft lýðræðið í landinu. Við höfum fengið of stóran skammt af svoleiðis pólitískt-spákaupmennsku-knúnum stjórnmálamönnum

"Fixed fortifications are monuments to man's stupidity."

George S. Patton 

Íslenska þjóðríkið býr ekki við mynt. Það er hins vegar myntin okkar sem býr við þjóðríkið Ísland. Það er hið fróma hlutverk alvöru myntar. Að þjóna, en ekki drottna. Og það hefur íslenska krónan svo sannarlega gert. Eins og happafleytan sjávarútvegur og landbúnaður. Skipin þjóna sjávarútveginum sem um leið þjónar þjóðinni sem einn allsherjar björgunarbátur knúinn V8 strokka mynt lýðveldisins; íslensku krónunni. Þannig land sekkur ekki til botns, eins og til dæmis evrulönd eru að gera

ESB- og evrulöndin sökkva og sökkva. Ár eftir ár, áratug eftir áratug, þar til allt er um seinan; ERM fasarnir I og II og III hafa sökkt meginlandi Evrópu allar götur frá 1977, er hið peningapólitíska ERM-viðrini og drápsvél velmegunar á meginlandi Evrópu var í heiminn borið af valdasjúkum á öxli Lotharinga.

Að búa við Bjarta framtíð er hins vegar engin framtíð, heldur er það þátíð, því flokkurinn byggir á því sem búið er að gerast; þátíðinni sjálfri. Hann hefur ekkert lært. Ekkert lært

"A good plan, violently executed now, is better than a perfect plan next week."

George S. Patton

Mitt ráð til allra stjórnmálamanna er þetta: Labbið ykkur vinsamlegast niður í Seðlabanka íslenska Lýðveldisins og biðjið um að fá að skoða gjaldmiðilsstefnur þessarar æðstu stofnunar íslenska lýðveldisins í peningamálum. Það er til nóg af þeim stefnum og þær koma í öllum regnbogans (xL) litum. Og þær hafa í sameiningu haft þau áhrif að þjóðríkið Ísland er á undraskömmum tíma orðið eitt af ríkustu löndum veraldar

Þegar þeirri heimsókn er lokið, þá er hægt að símhringja inn íAlþjóða Gjaldeyrissjóðinn og spyrja hvers vegna sú stofnun sé rétt nýlega búin að henda 31-árs gamalli gjaldmiðilsstefnu sjóðsins til framtíðar, ofan í ruslatunnur sjóðsins. Það gerði sjóðurinn á þessu ári. Hin ómögulega þrenna hefur jafnvel kennt þursunum þeim eitt og annað; e. the impossible trinity"

Man einhver eftir Bretton Woods samkomulaginu? Man einhver eftir því þegar  Nixon sveik dollarann með einu pennastriki og rauf gullfótinn? Man einhver nýkrónuna íslensku og hvað Gunnar Thoroddsen sagði þá? Man einhver lengur hvað Einar Oddur og Guðmundu Jaki sögðu um verðbólguna?

Bak við íslenska fimmþúsundkallinn stendur akkúrat ekki neitt annað en það, að landsmenn hafa komið sér saman um að nota hann sem reiknieiningu sín á milli. Bara af því að Seðlabankinn skiptir honum í dollara fyrir þá sem óska. sættir landslýður við þessa bréfsnuddu sem skuldaviðurkenningu. Þannig er hægt að kaupa vörur frá útlöndum.  Hvaðan fær Seðlabankinn dollara? Vegna skilaskyldu á þeim gjaldeyri sem útflutningsaðilar fisks og ferða afla í útlöndum. Allt annað er bara bródéring og blekking. Ríkið þykist skulda einhver ósköp en skuldar ekki neitt þar sem það á fyrir skuldunum í lífeyrisjóðunum.  Það þorir hinsvegar ekki að sækja þá vegna hávaðans í Samfylkingunni og VG. Og ríkið þorir heldur ekki að rugga bátnum því þá beinist athyglin að lífeyrismálum opinberra starfsmanna sem eru stikkfrí í fjárhagsáhyggjum hins venjulega öldrunarfólks.

Að halda því fram að það sé nauðynslegt vegna sálarheillar landsmanna  að banna verðtryggingu á sama tíma og bannað er að taka erlend lán og tala um leið um vaxtaokur á Íslandi sem sé ekki annarsstaðar, þar sem lán eru í erlendri  mynt,  er ekki nema kverkataki  vinstripressunnar á opinberri umræðu að kenna. Það er ekki hægt að ræða vitrænt um fjármál öðruvísi en að öskuraparnir upphefji sinn hávaða. það er ekki hægt að ræða skattamál við ASÍ af sömu ástæðum. Það er raddstyrkurinn  í elítunni sem stjórnar efnahagslífi Íslendinga, ekki skynsamlegt vit. Því fer sem fer.

Gjaldmiðlastefna til framtíðar eða fortíðar, skiptir ekki nokkru  máli miðað við framleiðslu og frið.

  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 48
  • Frá upphafi: 3417956

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 45
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband