Leita í fréttum mbl.is

Losunarkvóti

gróðurhúsalofts gengur kaupum og sölum. Loftslagsbreytingabullið ríður húsum. Al Gore hefur skapað sjálfum sér auðævi og lifibrauð meðan Sólin sjálf sleppur að mestu.

Við Íslendingar eigum að fara efir einhverjum útreikningum frá Brussel um brennisteins- og koltvísýringslosun vegna stóriðjunnar okkar. Það er hægt að fá borgað fyrir að planta skógi í skiptum fyrir kolefniskvóta. Og Dagur B. Eggertsson með fína hjálminn lætur mynda sig við að hjóla til til að minnka útblástur brennisteins í borginni hans. En allir bílar Íslendinga, fiskifloti og Hellisheiðarvirkjun eru að blása út kannski einhverjum 2-4 tonnum af brennisteini út árlega.

Ekki er að efa að það er meinhollt fyrir Dag B. að hjóla.  En það er þetta fjárans eldgos í Holuhrauni. Það er búið blása út 20-60  þúsund  tonnum af brennisteini, 15 sinnum árlegt magn Íslands! OG NÓTA BENE :  BARA FRÁ ÞVÍ UM SAMA LEYTI Í GÆR ! Heildin af brennisteini í Holuhrauni er orðin kannski 10 milljónir tonna eða verður það bráðum. Ekkert lát er á gosinu.

Hvað hafa þessar Evróputilskipanir og Kyotobókanir verið að færa okkur ? Hvernig getur Dagur B. hjólað í kapp við þetta?

Hversu mikið magn af losunarkvóta þurfum við Íslendingar að kaupa af Brussel  fyrir Holuhraunsgosið? 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Baldinn

Ekki get ég skilið hvað þú ert að fara með þessum skrifum.  Spurningin er hvort þú skiljir það sjálfur.  Að blanda borgarstjóranum inn í þessa umræðu finnst mér ósmekklegt og síðan toppar þú þetta með orðunum " Loftslagsbreytingabullið ".

Síðan segir þú " Hvað hafa þessar Evróputilskipanir og Kyotobókanir verið að færa okkur ? Hvernig getur Dagur B. hjólað í kapp við þetta?

Þá spyr ég.  Hvað vilt þú eiginlega eiginlega fá ut úr þessum tilskipunum, meiri framlegð eða langar þig bara að fá að menga meira.

Baldinn, 25.9.2014 kl. 11:10

2 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Baldinn.

Þú mantrar sleggjudómum að venju hægri vinstri !

Það eru engin vísindsleg rök fyrir þessu gróðurhúsabulli Al Gore. Einungis er um að ræða tilg´stu vísindamanna sem enn aðrir og fleiri fleiri vísindamenn segja glórulausa. Þetta er eins og þróunartilgáta Darwins. Enginn vísindamaður hefur getað sannað þá tilgátu með akademískum aðferðum í þau hátt á annað hundrað ár sem þeir hafa í þúsundum ef ekki tugþúsundum talið hafa rembst við það. Þetta eru tilgátur sem þeim finnst trúverðugar en eiga sér enga vísindalega sönnun.

Steingervingafræðin kippir raunar flestum eða nánast öllum stoðum undan þróunartilgátu Darein sem og styður söguna um Nóaflóðið.

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 25.9.2014 kl. 11:17

3 Smámynd: Baldinn

Þú ert mikill spaugari predikari og átt mína virðingu fyrir það.

Baldinn, 25.9.2014 kl. 11:28

4 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Baldinn.

Þökk fyrir það, en þú slærð fram sleggjudómum ósönnuðum sem staðreyndir væru - það er lítt virðingarvert.

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 25.9.2014 kl. 11:45

5 Smámynd: Sigurjón Jónsson

Bílafloti heimsins spúir út 200 t af so2 á dag. Eldgosið spúir út 10.000 tonnum af so2 á dag.

Auk þess eru 30 önnur eldgos í gangi í heiminum í dag, þó svo flest þeirra séu eitthvað minni en Holuhrauns gosið.

Við sendum því 50 sinnum meira af so2 út í andrúmsloftið á dag en allur bílafloti heimsins.

Við verðum að borga. Við getum ekki verið þekkt fyrir að vera svona vond við hann Al Gore blessaðan öðlinginn. Hann sem bauð Óla G. með sér á suðurskautið. Þetta er sannur heiðursmaður.

Sigurjón Jónsson, 25.9.2014 kl. 14:17

6 Smámynd: Sigurjón Jónsson

Þetta var tóm þvæla hjá mér hér áðan.

Magnús Tumi segir að Eldgosið gefi frá sér 10.000 til 60.000 tonn á dag.

Við verðum að borga meira, við erum mestu umhverfissóðar allra tíma.

Hjálpi mér allir Alar Gorugir.

Sigurjón Jónsson, 25.9.2014 kl. 14:33

7 Smámynd: Þorkell Guðnason

Auðvitað...og það er borðleggjandi.

Alþingi verður að finna sér tilskipun til að staðfesta sem bannar þetta gos!

Nú er Svandís illa fjarri. Sú hefði ekki verið lengi fljót að redda banni á þessi náttúruspjöll.

Þorkell Guðnason, 25.9.2014 kl. 15:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 8
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 65
  • Frá upphafi: 3418159

Annað

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 59
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 8

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband