Leita í fréttum mbl.is

Hin raunverulega staða mála

er ef til vill ekki sú sem birtist á rásum fjölmiðlanna? Því miður virðist það landlæg stefna fjölmiðla að tala allt niður sem bærist, telja úr og mála myndir á veggi sem sýna að allt sé nú með öðrum og verri hætti en var á síðasta kjörtímabili.

Gamlir Íslendingar spyrja sig stundum: Þykir engum lengur vænt um landið, þjóðina,menninguna eða söguna? Er þetta eitthvað sem var aldrei neins virði til að stofna lýðveldi um?  Passalaus fjölþjóðamenningin sé það sem taka skuli við á hinu nýja Íslandi innan Evrópusambandsins? Fyrr eða síðar?

Sigmundur Davíð forsætisráðherra okkar hafði þetta að segja við flokksmenn sína í dag:

„Aldrei hef­ur verið jafn mik­ill mun­ur á raun­veru­legri stöðu mála í ís­lensku sam­fé­lagi og framtíðar­horf­um okk­ar góða lands og birt­ing­ar­mynd stöðunn­ar í umræðu og vænt­ing­um um framtíðina. Og þótt umræða um þjóðfé­lags­mál hafi oft verið óbil­gjörn á Íslandi hef­ur hún lík­lega sjald­an eða aldrei náð því marki sem við sjá­um nú. Ill­mælgi, sleggju­dóm­ar og niðurrifstal hef­ur aldrei átt jafn­greiða leið að al­mennri umræðu og nú. Að mestu leyti verður þetta til hjá fá­menn­um hópi fólks sem er alls ekki er lýs­andi fyr­ir sam­fé­lagið en tíðarand­inn er þó slík­ur að þessi brenglaða sýn nær at­hygl­inni og gef­ur tón­inn fyr­ir umræðuna. Það get­ur haft raun­veru­leg og mjög nei­kvæð áhrif fyr­ir sam­fé­lagið.“..

.."Þetta eru þeir sem litu á fall fjár­mála­kerf­is­ins, banka­hrunið, sem staðfest­ingu þess að hug­mynd­in hefði ekki gengið upp. Þeir töldu áfallið vera ein­hvers kon­ar rétt­læt­ingu á sjálf­um sér og því viðhorfi að Ísland væri og hefði alltaf verið von­laust. Nú, sex árum seinna ótt­ast þeir hins veg­ar að draum­ur­inn um von­lausa Ísland sé að fjara út. Viðbrögðin birt­ast oft sem furðuleg heift og því miður hef­ur þessi heift og nei­kvæðni fengið meiri at­hygli og verið meira ráðandi í umræðunni en eðli­legt, hvað þá æski­legt, get­ur tal­ist."

Eru hér öfl starfandi, jafnvel kostuð erlendis frá,  sem hafa það að boðorði að sjá fyrir neikvæðum fréttum  fyrir íslenskan almenning?  Birta rangfréttir um hug og hjörtu almennings? Einhver öfl sem nærast á seinheppni landsmanna og gera það sem þau mega til að flytja þeim vond tíðindi og verri en sönn eru?

Það getur hvarflað að manni hvort allt sé með felldu í íslenskri stjórnmálaumræðu? Hin raunverulega staða mála sé ekki jafn slæm og stjórnarandstaðan gefur til kynna á öllum þeim rásum sem hún stjórnar? Getur hugsanlega verið bjartara fyrir stafni en rætt er um í dagsins önn?

Er einhver að tala í þjóðina kjark? Af hverju heyrum við það ekki? Hlustum við ekki? Hugsum við ekki?

Hin rauverulega staða landsmála er hugsaanlega allt önnur en stjórnarandstaðan prédikar okkur sme veruleika í bölsýninni?

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Meðan Rúv. fær að "pönkast" á stjórninni í hverjum fréttatíma,er ekki allt með felldu.

Helga Kristjánsdóttir, 23.11.2014 kl. 02:07

2 Smámynd: Rafn Guðmundsson

ja - það eina góða við þessa grein og svar helgur er að bráðurm verðum við laus við ykkur gamlingjanna sem vilja hald í 'gamla góða tíma'

Rafn Guðmundsson, 23.11.2014 kl. 02:39

3 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Sæll frændi

Þetta ættu allir að hlusta á.

Anna Valdís verkefnastjóri og stjórnarmaður Fjölskylduhjálpar Íslands á Suðurnesjum lýsti 19. nóvember einstökum yfirgangi og frekju Tony Omos og félaga hjá þeim í Útvarpi Sögu. Greinilegt er að þarna voru ekki neinir englar á ferð, enda varð starfsfólkið mjög óttaslegið í hvert sinn sem þeir birtust með Omos í fararbroddi.

Hlustið á viðtalið á Útvarpi Sögu.

Veljið "Línan laus - 1. hluti, 19. nóvember 2014" Skrunið til mínútu 15:00 (eitthvað mismunandi) þar sem viðtalið byrjar.

http://www.utvarpsaga.is/eldri-thaettir-2.html?start=16

Þetta er nokkuð sem einginn heilvita maður ætti að láta fram hjá sér fara. 




Ágúst H Bjarnason, 23.11.2014 kl. 07:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 6
  • Sl. sólarhring: 15
  • Sl. viku: 54
  • Frá upphafi: 3418205

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 54
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband