Leita í fréttum mbl.is

Til hamingju

íslenskir elítu- og ofsamenn. Búið að skila baunabyssunum til Noregs.

Ísland er sem því nemur fjárhagslega skaddað. Nú verðum við að kaupa það sem við hefðum sloppið við að borga ef þið hefðuð haldið ykkur saman.

Til hamingju með að hafa haft meira en milljónatug af íslenskum öryrkjum og einstæðum mæðrum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristmann Magnússon

Tek undir þessar "hamingjuóskir" - Þetta er rannsóknarefni hverju þetta lið (lesist hyski) getur komið til vegar.  

Kristmann Magnússon, 23.11.2014 kl. 13:56

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Takk fyrir það Mannsi, þú fattar greinilega hverjir þetta eru.

Halldór Jónsson, 23.11.2014 kl. 15:28

3 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Þetta fólk ( lesist hyski ) niðurlægði lögregluna, gæsluna og okkur öll. 

En það sem verra er þá skapaði þetta Norsku gæslunni, hernum vanda sem segir þeim og reyndar öllum að það sé hættulegt að eiga vinsamleg samskipti við okkur.

 

Hrólfur Þ Hraundal, 23.11.2014 kl. 15:52

4 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Bloggher Samfylkingarinnar er iðinn.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 23.11.2014 kl. 16:58

5 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Í öðrum löndum er það opinbert hvar vopn eru keypt. Af hverju ekki hér?

Ef þeir, sem spurðir voru um málið, hefðu þegar í stað sagt sannleikann um það í hverju málið lá, hefði því lokið þann dag. Þá hefði aldrei þurft að hafa samband við norska herinn til að fá upplýsingar.  

Í staðinn fóru svarendur undan í flæmingi í næstum tvær vikur í viðleitni sinni til að fela þetta óttalega leyndarmál.

Ég sé að það er talið eðlilegt að á vegum skattborgaranna séu leynilega gerðir bindandi kaupsamningar við útlendinga sem aldrei er ætlunin að standa við, og að þeir séu kallaðir hyski sem finnst eitthvað bogið við slíka viðskipta- og stjórnarhætti.. 

Ómar Ragnarsson, 23.11.2014 kl. 17:26

6 Smámynd: Halldór Jónsson

Ómar minn og þið hinir

Ég minnist þess frá í gamla daga hvað persónuleg tengsli frammámanna og fyrirmanna færðu Íslendingum mörg djásnin.

Ég veit að það vaxa mjög mörg tré á Íslandi sem nú myndu ekki vaxa þar,ef allt hefði farið fram eftir paragröffum og greinaskrifum í DV. Margir námsmenn hefðu ekki fengið þá styrki sem þeir fengu ef kunningsskaparins hefði ekki notið við.

Það er kallað diplómatí þegar menn klappa hvor öðrum á bök til framdráttar góðum málum. Ein heimsókn á prívatheimili, einn sjúss, brauðsneið og hlátur getur flutt fjöll. Það hef ég sjálfur séð sem áhorfandi.  

Liðið( sem sumir kalla hyski) getur aldrei skilið slíkt. Kannski heyra mannleg tengsli sögunni til þar sem ekkert má segja sem ekki birtist á samfélagsmiðlunum.

Það verður þá svo að vera.

Halldór Jónsson, 23.11.2014 kl. 19:32

7 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Halldór minn og þið hinir. Ef þetta hefði strax legið allt á borðinu þegar DV spurði fyrst um það er alveg eins líklegt að menn hefðu látið þar við sitja og þakkað fyrir upplýsingarnar. 

Í staðinn kusu málaðilar að vera með undanbrögð og verða margsaga í næstum hálfan mánuð. 

Ómar Ragnarsson, 23.11.2014 kl. 22:33

8 Smámynd: Halldór Jónsson

Einn vinur minn  ráðlagði mér: Það borgar sig alltaf að segja sannleikann. Þá þarf maður ekki að muna hvað maður hefur sagt.

Því eldri sem ég verð sé ég fleiri dæmi um sannleikann.

Halldór Jónsson, 23.11.2014 kl. 23:18

9 Smámynd: Wilhelm Emilsson

Ég sé ekki betur en að Ómari hafi tekist að fá Halldór til að endurhugsa afstöðu sína og er það hið best mál. Svona getur opinber umræða verið af hinu góða.

Wilhelm Emilsson, 24.11.2014 kl. 02:46

10 Smámynd: Halldór Jónsson

Nei Wilhelm,þetta er almennt sagt.Færslan stendur.Kjafthátturinn eyðilagði það sem hefði verið gjöf. Bullararnir höfðu þessa peninga af fólkinu okkar.

Halldór Jónsson, 24.11.2014 kl. 07:28

11 Smámynd: Wilhelm Emilsson

Takk fyrir svarið, Halldór. Það borgar sig semsagt almennt sagt að segja alltaf sannleikann, en ekki í þessu máli? 

Wilhelm Emilsson, 24.11.2014 kl. 08:07

12 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Ómar vill sannleikann í málinu. Er sá sannleikur kominn fram?

Getur ekki verið að Landhelgisgæslan hafi verið að segja sannleikann strax í upphafi, að þetta væri gjöf frá norska hernum, gjöf sem vegna bókhalds þyrfti að að setja einhvern verðmiða á? Getur ekki verið að þegar málið er gert að deilumáli hér á landi, hafi norski herinn ekki lengur getað staðið á gjöfinni og neyðst til að segja þetta sölu?

Það er ekki síðri leyndarhyggja yfir norsa hernum, en þegar hún rofnar verða þeir að spila eftir þeim gögnum sem liggja fyrir. Þá duga ekki munnlegir samningar.

Það sem Gæslan getur kannski hellst lært af þessu máli er sá sannleikur sem allir sem eiga í viðskiptum við Norðmenn þekkja; þú gerir aldrei munnlegann samning við Norðmann.

Því spyr ég; er sannleikur þessa máls kominn á borðið? Mun hann einhverntímann gera það?

Það er sorglegt hversu fámennur bloggher, með fjölmiðlaveldið að baki sér, getur áorkað í þessu annars ágæta landi.

Gunnar Heiðarsson, 24.11.2014 kl. 09:15

13 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Þetta var ekkert tjón, ekkert þannig.  Ekki nema því aðeins að til hefði staðið að selja byssurnar strax aftur.

Tilvera þeirra til eða frá jók hvorki né dró úr öryggi eins eða neins.  Veit ekki hvernig nokkrum dettur slíkt í hug, og það gleymist alltaf að útskýra það fyrir mér.

Annars þætti mér vænt um að fá að vita hvað Ögmundur vildi með þær.  Það var jú hann sem pantaði þær.

Ásgrímur Hartmannsson, 24.11.2014 kl. 09:16

14 Smámynd: Halldór Jónsson

Wilhelm, það átti bara ekkert að vera að kjafta um þetta um fjölmiðlum. Það eyðilagði málið.

Thompson byssurnar sem Agnar Kofoed keypti eru 45 ACP sem er "manstopper" kaliber.Þær eru hinsvegar klettþungar. Þær verða aldrei úreltar, algerlega klassísk smíði og þaulprófaðar í hernaði. Voru standard í Kóreustyrjöldinni. Ef þeir vilja ekki eiga þær þá skal ég athuga með kaupendur.

Mér skildist að þessar norsku væru 9mm sem er  miklu minna en 45. Veit eki hvort þær eru stríðsprófaðar sem skiptir máli. Kostir AK47 til dæmis eru þeir að hann skýtur alltaf, hvort sem hann er dreginn í gegnum drullu eða sand. Ameríkanarnir hentu sínum M.. og tóku Akkinn af þeim dauðu því hann var svo miklu áreiðanlegri.Það skiptir máli í stríði. Ameríski Colt 45ACP djammar varla nokkurntímann en Lugerinn gerir það oftar en ekki. Svo ég veit ekkert um það hvort einhver sérstök eftirsjá er í þessum norsku byssum á þessu verði.En það er til hérna fólk sem hefur vit á svona græjum sem mætti spyrja.

Halldór Jónsson, 24.11.2014 kl. 11:38

15 Smámynd: Halldór Jónsson

Ásgrímur,

Voru Nojarar ekki bara að losa sig við þetta sem drasl sem var ekki nógu gott fyrir þeirra eigið fólk?

Halldór Jónsson, 24.11.2014 kl. 11:40

16 Smámynd: Skeggi Skaftason

Varla var mikil þörf á þessum græjum, ef ríkið tímir ekki að kaupa byssurnar á 12 milljónir.

Ber vitni um dómgreindarbrest ef lögreglan hélt að þetta myndi bara áfram vera leyndarmál, að komnar væru hríðskotabyssur í lögreglustöðvar um land allt og einhverja almenna lögreglubíla að auki.

Skeggi Skaftason, 24.11.2014 kl. 13:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 57
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband