Leita í fréttum mbl.is

900 milljóna flipp

er boðað á fjárlögum til að ráða eitthvert gæludýragengi arkitekta og verkfræðinga  til að teikna spítala eftir sérvisku læknastóðsins. Þetta er bara byrjunin og hönnunin verður örugglega pí sinnum þessi upphæð til viðbótar því sem sem er búið að eyða sem skiptir hundruðum milljóna.

Hversvegna eru ekki sendir menn til að finna þann besta spítala í heimi og fá afnot af teikningunum fyrir lítið.Öll útboðsgögn, magntölur, útfærslur. deili,efnisval Það er búið að gera þetta allt áður en nú á að fara að finna upp hjólið aftur hér á Íslandi. Nógu miklar glansmyndir, renderingar og grafík  sem þekja hundruð fermetra. Í stað þess að fá þrautreynda hönnun á spítala sem nýtur alþjóðlegrar viðurkenningar og ráða svo lækna inn í hann sem geta lagað sig að teikningunni.

Spítali er bara nokkurskonar risastórt bílaverkstæði  þar sem allskyns meikarar vinna. Viðfangsefnið er allstaðar það sama, tvífætt hjólalaust spendýr sem er alltaf eins í laginu með sama innvols. Ætti að vera auðveldara en allur þessi aragrúi bílategunda með 100 númer á hverja beygju í púströri.(Hm; Að vísu flækja hömlur á úreldingu málið talsvert spítölum í óhag. En þetta eru áreiðanlega talsvert endurekningar á því sama eins og á réttingaverkstæðunum)

Það er ömurlegt að horfa upp á svona sóun á skattfé borgaranna þar sem lögfræðingahjörðin í stjórnmálunum lætur uppskrúfaða tæknimenn segja sér fyrir verkum af því þeir hafa ekkert vit á því sjálfir sem verið er að ræða. Hér er þörf fyrir almenna skynsemi en ekki einhverja ofurtrú á menn sem ganga með nefið upp í loftið, sletta latínu eða ganga með þverslaufur.

Af hverju má ekki athuga þennan möguleika sem þarf ekki að kosta nema sáralítið. Svona þriggja manna teymi sem leysir málið á þremur mánuðum. Miklu ódýrara en hvaða skilanefnd sem er. Og skilar niðurstöðu sem hægt verður örugglega að nota. 

Horfið bara á kostnaðarskandalann Hörpuna til að sjá hvað er hægt að eyða miklu fé í heimatilbúna vitleysu þegar hægt er að gera svona hús fyrir brot af kostnaðinum bæði einfaldara og jafnskilvirkt án þess að byggja eitt fyrst og svo annað utanum eftir innblæstri sérvitringa.Allt pí sinnum dýrara en upphaflega áætlað. 

Nei, snobbið, pompið og fruktið hafa síðasta orðið. 900 milljóna byrjunarflipp, er það eitthvað sem vert er að gera veður út af?

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristmann Magnússon

Af hverju segir þú læknastóðið - Ekki eruð þið verkfræðingarnir hótinu betri og eiginlega miklu verra stóð en blessaðir læknarnir.
Af þierri ástæðu tek ég undir með þér að fá bara teikningar erlen dis, sem eru teiknaðar af alvöru arkitektum g verkfræðingum sem vita hvað þeir voru að gera.  Annars eru nú til íþróttamarnnvirki í Reyykjavík sem eru algjör kopía af slíku mannvirki á Norðurlöndunum þótt íslenskur arkitekt hafi eignað sér verkið.
Þetta er alveg rétt hjá þér spítali er bara eins og risavaxið verkstæði þar sem gert er við okkur mannverurnar, en að sjálfsögðu eiga læknar að fá að koma að verkefninu - það eru jú þeir sem eiga að vinna á staðnum og vita sennilega mörgum sinnum betur en þið verkfræðingstóðið hvernig hanna á svona byggingu

Kristmann Magnússon, 27.11.2014 kl. 00:46

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Betra eða verra stóð, það er spurningin se, Hamlet Danaprins spurði sig að. Margar starfsstéttir reyna að upphefja sjálfa sig af því þeir séu svo og svo menntaðir. Heyrirðu ekki í ungu fólki nýskriðnu úr námi (sem ekki vita neitt praktískt frekar en nýútskrifaður verkfræðingur eða læknir)fimbulfamba um að það sé ekki metið í samanburði við menntunina sem það sé með? Sucks. Þú ert að drepast úr monti Mannsi og heldur að þú vitir allt betur en Sjálfstæðisflokkurinn í heild sinni.

En þú ert þó væntanlega þeirra skoðunar að það þurfi ekki alltaf að vera að finna hjólið upp á nýtt.

Halldór Jónsson, 27.11.2014 kl. 07:20

3 Smámynd: Þórir Kjartansson

Alveg sammála Halldór. Það er með ólíkindum að horfa á hvað er hægt að gera alla hluti dýra með hreinni vitleysu. Menn hafa t.d. haft lag á því að byggja skítakamra fyrir ferðamenn hér og þar á landinu, sem kosta eins og meðal íbúðarhús.  Dæmin eru óteljandi.

Þórir Kjartansson, 27.11.2014 kl. 08:16

4 Smámynd: Jón Magnússon

Það er vont þegar stjórnmálamenn forgangsraða ekki heldur henda peningum í eitthvað sem þeir telja að geti verið til vinsælda fallið. Sammála þér með þetta gæluverkefni. Sama á við varðandi óskilgreindar eða lítt skilgreindar viðbótargreiðslur til heilbrigðismála. Þar er ekki um neina forgangsröðun að ræða heldur peningum hent í hít sem getur tekið endalaust við. Þess vegna öll fjárlögin.

Jón Magnússon, 27.11.2014 kl. 10:54

5 Smámynd: Kristmann Magnússon

Halldór minn 

Mikið rorsalega hefur aldurinn farið illa með þig - þú ert að verða eins og fyrrverandi forngjinn þinn - Þið getið hvorugur talað vel um nokkurn mann - alloir eru asnar, ræflar, stóð eða monthanar - þið eigið mjög gott með að sjá flísina í annarra augum en sjáið ekki bjálkann í ykkar eigin augum.
Þér var innrædd kurteisi hjá Ísaki Jónssyni á sínum tíma, en þú virðist algjörlega hafa gleymt því sem hann kenndi þér í þeim fræðum.  Farðu nú fram og líttu í spegil - jafnvel þótt sýnin sé ófrýnileg - og talaðu nú við þann sem þú sérð og segðu honum að fara að verða aðeins kurteisari.  Svona blótyrði, og tala niður til allra kemur bara þér sjálfum í koll.  Þetta er MJÖG ljótur löstur á þinum annars ágætu skrifum, þótt mér finnst nú vera of mikið af endurrtekningum annars staðar frá - þú varst ágætur penni hér áður fyrr, en eitthvað hefur aldurinn haft slæm áhrif á þig upp á síðkastið Þú ert sennilega á einhverjum yfirgangsaldri.

P.S.  Svo er nú ekki mikill vandi að vera gáfaðri en þetta lið (lesist STÓÐ)ykkar sjálfstæðismanna ! ! ! 

Kristmann Magnússon, 27.11.2014 kl. 14:36

6 Smámynd: Hörður Þormar

Nú þegar er hægt að horfa á fyrirlestra um flestar greinar vísinda á YouTube frá Yale háskóla og e.t.v víðar. Þetta eru yfirleitt almennir fyrirlestrar fyrir byrjendur. Í náinni framtíð verður vafalaust hægt að fá aðgang að fyrirlestrum fremstu vísindamanna heims í hverju fagi og flytja þá á tjaldi í Háskólabíói eða annars staðar þar sem því verður við komið. Geta þá margir prófessorar sparað sér mikla vinnu og einbeitt sér að sérhæfðari verkefnum, nema þeir vilji taka slaginn og taka þátt í alþjóðlegri samkeppni um bestu fyrirlestrana.

Hörður Þormar, 27.11.2014 kl. 17:02

7 Smámynd: Halldór Jónsson

Hörður,

ég held að fyrirlestrar Richard Feynmanns í eðlisfræði, 10 easy pieces and 10 not so easy pieces verði seint toppaðir. Þú gætir sýnt þá í Háskólabío og þeir hefðu alltaf sömu áhrifin.

Já Mannsi minn, the grumpy. Það er greinilega einhver í ættinni hjá þér læknir. Annar værirðu ekki að horfa upp í asklokið þitt sem er þinn himinn og ekki sjálftæðisblár. Málefnalegt kom ekkert frá þér í þetta sinn greyið mitt sem ég þarf að svara.

Jón, það væri betur að þú værir á þingi til þess að einhver þar fylgdist með. Þetta lið er um margt heilalamað og lætur mata sig eins og þú þekkir.Virðing mín fyrir AlÞingi fer þverrandi eftir því sem ég hlusta meira á suma þar.

Þórir. Það er dæmi um sveitamennskuna og óskilvirknina að menn þrátta á þinginu um arðsemi ferðaiðnaðarinn og náttúrupassa  en geta ekki séð ferðameönnum fyrir stað til að pissa á hvað þá stærri stykki.

Halldór Jónsson, 29.11.2014 kl. 07:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 56
  • Frá upphafi: 3418167

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 52
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband