Leita í fréttum mbl.is

Öryggissveitir

er eitthvað sem Íslendingar þurfa að hugleiða vegna hryðjuverkaógnar.

Mér hefur dottið í hug að lögreglan myndi finna sér einhver hundruð fullorðinna manna sem andlega og líkamlega eru til þess heppilegir, að bera á sér daglega litlar faldar skammbyssur af stórum kaliber með leysimiðun. Menn mynduðu öryggissveitir á stríðsárunum og fengu hjálma merkta HS sem þeir settu upp þegar loftvarnamerki var gefið svo eitthvað sé nefnt.  

Þessir menn myndu sinna sínum daglegu störfum þar sem þeir fari helst víða um en geti borið vopn sín með sér án þess að nokkur viti um þau þannig að launakostnaður yrði lítill. T.d.leigubílstjóri, strætóbílstjóri, skólavörður, lögregluþjónn á frívakt eða stöku lögregluþjónn, póstmaður, sendibílstjóri eða hver sem er. Einhverjir gætu líka verið í þessu sem aðalstarfi sem eru annars á atvinnuleysisbótum.

 

Þessir menn eru í mínum huga nokkurskonar aðstoðarlögreglumenn og gætu fengið frekari þjálfun sem slíkir og myndað varalögreglu. Þeir geta líka verið aðeins vopnaðir öryggisverðir í öðrum störfum.

Þessir menn myndu láta miðstöð vita hvenær og hvar þeir eru úti vopnaðir þannig að kerfið hefði yfirsýn um þá. Þeir mega aldrei láta neinn vita af vopnum sínum og mega aldrei sýna þau nema vopnuð árás sé gerð. Þetta væri leynileg öryggisvarðstaða um borgarana sem gæti skipt sköpum ef..."Only a good guy with a gun can stop a bad man with a gun."

Og hryðjuverkamaðurinn má ekki þekkja þá né vita um þá. Því það er forsenda fyrir þessa sveit að hún sé algerlega leynileg og hvorki fjölmiðlar fréttamenn eða jafnvel vissir þingmenn hafi minnstu vitneskju um hvaða menn þetta eru eða hvernig þeir eru vopnaðir.

En stofnun hennar er auðvitað gerð með heimild Alþingis með trúnaðarákvæðum svo að tilfallandi innanríkisráðherra haldi ekki blaðamannafundi um vopnabúað síðar. 

Auðvitað verða einhverjir vitlausir yfir þessum hugmyndum. Þá það. En aðrir munu velta þessu fyrir sér kalt og yfirvegað. Einn svona varðmaður í Útey eða í einhverjum skóla hefði kannski getað..?

Ég þekki mikið af fólki sem ég treysti fyrir svona ábyrgð. Þó veit ég ekkert um það hverjir af þeim vildu taka svona að sér þar sem að þetta getur auðvitað verið hættulegt ábyrgðarstarf sem krefst mikils af viðkomandi.

Ef til vill er þetta hugmynd sem flestum finnst vitlaus eða óþörf. Kannski er hún það líka.  Af svörum aðspurðs fólks í fréttum er líka frekar ólíklegt að almenningur telji þörf á að eiga svona öryggissveitir eins og okkar frábæru björgunarsveitir sem sýna fórnfýsi sínu  fyrir oft misvitrann náungann.  

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Þórhallsson

Kannski þú ætti að skoða stefnu þíns sjálfstæðisflokks betur ef að þú vilt koma í veg fyrir aukna áhættuþætti:

Hvaða hugmyndafræði aðhyllist þinn  xd-flokkur?

http://hrydjuverk.com/category/al-qaeda/

http://www.t24.is/?p=5993

Jón Þórhallsson, 27.2.2015 kl. 17:04

2 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Allir flokkar aðhyllast aðra hugmyndafræði en ég.

En það á sér náttúrlega einfalda skýringu: ég er til hægri.

Ásgrímur Hartmannsson, 27.2.2015 kl. 21:03

3 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Það undarlega er, að menn sem eru "til hægri" og ættu því að vera boðberar frelsis og friðar, skuli vera spenntastir fyrir því að koma hér á vopnuðu lögregluríki með víðtækum persónunjósnum, svipað eins og kommarnir gerðu í Austur-Evrópu á sínum tíma. 

Ómar Ragnarsson, 27.2.2015 kl. 21:35

4 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Sem er einmitt það sem ég er á móti, Ómar.

Get ekki svarað fyrir Halldór.  Eg man hinsvegar ekki eftir að hann hafi verið að lobbía eitthvað fyrir svoleiðis.

Það merkilegasta í öllu málinu er að VG skuli vera á móti vopnaðri lögreglu og leyniþjónsutu.

Það er sérkennilegasta hægri slagsíða á þeim flokki, eða flokki í þeirra deild, sem ég veit um.

Ásgrímur Hartmannsson, 27.2.2015 kl. 23:38

5 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Ómar heldur ef til vill að frelsi og friður kosti ekki neitt. Að það sé gratís. Komi bara ókeypis. Að ríkisvaldið (government) hafi kannski verið fundið upp til að reka Ríkisútvarp og til að deila út bótum og þægilegri innivinnu.

Enginn hefur reynt eins heiftarlega að koma frelsi og firði fyrir kattarnef eins og vinstri menn hafa gert hér á landi. Bæði með skrílshætti, óeirðum og vopnaðri aðför gegn lögum og reglu réttarríkisins.

Þegar að frelsi og firði kemur eiga borgarar þessa lands engan hauk að finna í hornum sósíalista. Markmið sósíalista er alltaf að auka óöryggið í ríki borgarana. Að koma á varanlegum óstöðugleika í þeim tilgangi að leysa ríkið upp svo þeir geti látið greipar sópa og klæðst illa fegnum völdum.

Tilgangurinn með að hafa lögreglu í réttarríki er að koma í veg fyrir að borgararnir þurfi sjálfir að verja líf sitt, limi og eignir. Það getur ekki verið rétt að þeir sem hafa einkaleyfi á valdbeitingu séu þeir einu sem í praxís óvopnaðir eru.

En til að komast megi hjá því að lögreglan þurfi að ganga vopnvædd til daglegra löggæslustarfa, er meðal annars hægt að fela henni það hlutverk að njósna sér til um þær hættur sem eru að búa um sig meðal glæpamanna, sem eru hinir vopnvæddu í þessu samfélagi.

Styðjum því við lögregluna, sem er eini rétti handhafi valdbeitingar og vinur borgarana. Gerum henni kleyft að sinna því starfi sem hún af borgurunum er kosin til að sinna.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 28.2.2015 kl. 03:34

6 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Það er ekki vitlaus ef það sést ekki sögðu menn fyrir austan, og víst er um, að það sem sést ekki er ekkert endilega vitlausara en hitt.

Svo var til auglýsing sem hljóðað á þann veg að þú tryggir ekki eftirá, og það hafa menn  margreynt á eiginskinni að er nokkuð rétt.

Því hlýtur það vera okkur mikil náð að eiga til á meðal okkar menn sem alfarið hafna hverskins öryggis vörslu, sem gerir það að verkum að við sjálf verðum að vera á vaktinni daga og nætur og hafa okkur tiltæk, verkfæri sem á Íslandi eru bönnuð öllum nema óaldarmönnum.

Hrólfur Þ Hraundal, 28.2.2015 kl. 11:15

7 Smámynd: Halldór Jónsson

Ómar minn, ekki ertu á móti því að verja okkar konur og börn svo og allan almenning? Fyrirgefurðu ekki löggunni sem er að bera þig úr hrauninu?Eru öll yfirvöldf þá bara fíbjakk. Hvað gerirðu viðhryðjuverkamann sem skýtur æa þig en hittir ekki? Stendurðu bara kyrr og leyfir honum að reyna aftur?

Mér finnst að þú eigir að svara þessu áður en þú ferð að fimbulfamba um mínar sðskiljanlegu vondu náttúrur og Sjálfstæðisflokksins

Halldór Jónsson, 28.2.2015 kl. 17:20

8 Smámynd: Halldór Jónsson

Gunnar

lögreglanokkar eer óvopnuð opinberlega. Þig varðar ekkert um það þó þeir geti verið með falda byssu undir jakkanum eða á fótleggnum eins og James Bond. Ég vil alveg njóta vafans

Halldór Jónsson, 28.2.2015 kl. 17:22

9 Smámynd: Hörður Þórðarson

Halldór. Passaðu þig á vonda kallinum.

Hörður Þórðarson, 28.2.2015 kl. 18:47

10 Smámynd: Halldór Jónsson

Hörðurminn, ég held að hann vilji alveg eins ná í þig eins og mig ef ekki bara frekar

Halldór Jónsson, 1.3.2015 kl. 00:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 44
  • Frá upphafi: 3417961

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 41
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband