Leita í fréttum mbl.is

Stríðsvindar

fundust mér blása af ræðu Benjamíns Netanyahu fyrir fjölskipuðu þingi Bandaríkjanna í þessu.

Benjamín var ómyrkur í máli þegar hann lýsti þeim valkostum sem  við Ísraelum blasa hvað varðar kjarnorkuvígbúnað og stríðsáform klerkastjórnararinnar í Íran.

Hann lýsti því hvernig þessi stjórn Islamista sem þar ræður ríkjum án lýðræðis hefur svikið öll loforð til þessa. Hvernig hún hefur logið og svikið til hægri og vinstri, hvernig hún styrkir  hryðuveerkastarfsemi um allan heim. Hvernig þessi stjórn fjöldaframleiðir kveikjur í kjarnasprengjur, hvernig hún framleiðir langdrægar eldflaugar til að skjóta um heima alla, hvernig hún auðgar úran á laun, hvernig hún lýgur og svíkur og blekkir meðan nokkur vill trúa.

Benjamín sagði að Ísraelar myndu ekki kvika, ekki hætta við að berjast til síðasta blóðdropa gegn þessu þó að þeir þyrftu að fara einir í stríðið.  Ef ekki yrði fengisr við þessi myrkraoöfl núna yrði ennþá verra að fást við þau síðar. Þetta ríki ætlaði opinberlega að tortíma Ísrael og drepa alla gyðinga.

Núna í fyrsta sinn í sögunni myndu Gyðingar hinsvegar ekki láta slátra sér bardagalaust eins og í fyrri ofsóknum.

Bandaríkjaþingmenn risu hvað eftir úr sætum og klöppuðu allir sem einn undir ræðu Benjamíns. 

Þegar maður gerir sér grein fyrir því að Bandaríkjaþing er ekki einhver ályktunarsamkunda eins og við þekkjum landsfundi stjórnmálaflokka heldur máttugasta stjórnmálasamkunda veraldar, þá er ástæða til að sperra eyrun.

Það er að byggjast upp vilji og ásetningur meðal Bandaríkjanna og Ísrael til að láta til skarar skríða gegn einræði múllanna og  Íslamista í Íran.

Það verður stríð.

Auðvitað verður lítills styrkur að ræflabandalaginu í Brussel. það mun sjálfsagt mótmæla og mótmæla því að Bandaríkin og Ísrael ætli að uppræta hin illu öfl og færa Írönum frelsi til að láta ekki einræðisöflin og Islamista leiða sig í glötun.  Hugsanlega munu Bretar fylgja Bandaríkjunum einir þjóða ESB. 

Iran er um þesar mundir þorpararíki rétt eins og Norður-Kórea. Hinn siðmenntaði heimur getur ekki átt viðskipti við slík ríki frekar en 1939.

Það blása stríðsvindar um vestræna veröld.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Það blésu líka stríðsvindar 2003 við innrásina í Írak sem var framkvæmd til að uppræta gereyðingarvopn Saddams Husseins. Við Íslendingar vorum settir óspurðir í hóp innrásarþjóðanna. 

Aldrei fundust nein gereyöingarvopn. 

Ómar Ragnarsson, 5.3.2015 kl. 09:20

2 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Ómar.

Ertu búinn að gleyma því að íslendingur var á meðal þeirra hermanna sem voru í vinnu við stríðsreksturinn gegn Saddam og sá fann ásamt meðreiðarsveinum sínum gjöreyðingarvopn hjá Saddam.

Þetta var í fréttum síðasta sumar eða vetur í öllum fjölmiðlum ásamt viðtölum við þennan mann.

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 5.3.2015 kl. 09:59

3 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Ómar.

Þú, ásamt svo mörgum, minnir óþyrmilega á „söguhetjuna“ Gottlieb Biedermann í hinni frábæru sögu Max Frisch, Brennuvargarnir.

Gottlieb Biedermann sagði :

,,Ég lánaði þeim eldspýtur. Og hvað með það. Það lánuðu allir eldspýtur, næstum hver einasti maður. Annars væri borgin varla brunnin til ösku. – Svo gerði ég þetta líka í góðri trú og af því að ég treysti þessum mönnum.“

Þannig svarar Gottlieb Biedermann fyrir og afsakar gjörðir sínar eða fremur afdrifaríkt athafnaleysi í lok leikritsins Brennuvargarnir í þann mund er húsið hans glæsta logar ásamt gasstöð og nærliggjandi stórhýsum með miklum mannskaða og eignatjóni.

Ómar  - við verðum að læra af sögunni - ekki hvað síst brunanum allt í kring um okkur á vorum dögum og horfa ekki upp ´brennuvargana bera inn eldsneytistunnurnar inn í leiguíbúðir í okkar eigu svo notuð sé samlíkingin.

Stöðvum brennuvargana, gerum eldsneytistunnurnar upptækar sem þeir bera inn í húsin okkar.

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 5.3.2015 kl. 10:04

4 Smámynd: Sigurður M Grétarsson

Það var nú ekki fjölskypað þing sem hlustaði á Netanyahou því fjölmargir þingmenn kusu að hunda hann þar með talið flestir ef ekki allir þingmenn Demókrata. Einnig var sá gerningur Rebúblíkana að bjóða honum að ávarpa þingið fordæmdur hagðlega af mörgum. Forsetinn neitaði að hitta hann. Bandaríkjaþing tekur niður með því að bjóða þessum vibjóðslega stríðsglæpamannai að ávarpa þingið. 

Hvað kjarnorkuvopnaeign varðar þá eiga Ísraelar slík vopn þó þeir neiti því og það er ekki síður áhyggjefni að jafn grimmir stríðsglæpamenn og þeir hafi yfir slíkum vopnum að ráðe heldur en Íranir.

Og ef við förum að meta hveða þjóðum er ekki treystandi fyrir kjarnorkuvpnum eru þá ekki ofarlega á blaði þjóðir sem hafa notað slík vopn svo ekki sé talið á boraraleg skotmörk eins og Hirjosima og Nagasaki.

Sigurður M Grétarsson, 6.3.2015 kl. 06:27

5 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

SMG

Þú ert gersamlega blindur í aleggjudómum Þínum að venju, eða líkast til hatri í bland hér.

Hér ferð þú varla með eitt orð rétt af nokkuð miklu innslagi. Þú lítur ekki til staðreynda frekar en þú átt vanda til í þeim tilgangi að koma sleggudómum þínum í höfn. Þú lætur ekki góða sleggjudóma gjalda sannleikans.

Það er þér ekki til álitsauka fremnur venju.

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 6.3.2015 kl. 10:16

6 Smámynd: Sigurður M Grétarsson

Predikarinn. Þú heldur hér því fram að ég fari með rangt mál án þess að nefna neitt sem ég sagði með úskýringum á því hvað er rangt í þeim ummælum. Slíkt getur ekki talist málefnanleg ummæli.

Hvað er rengt í mínum ummælum?

Er það rangt að stór hluti bandarískra þingmanna hundsaði mæðu Netanyaho?

Er það rangt að Obana hafi ekki viljað hitta Netanyaho?

Er það rangt að ljóst er að Ísraelar eigi kjarnoruvopn þó þeir neiti því?

Er það rangt að Ísraelar fremji reglulega strísglæpi gagnvart Palestínumönnum meðal annars með viísvitandi fjöldamorðum á almennum borgurm eins og þeim tvð þúsund almennum borgurjm þar með nokkur hundruð börum sem þeir myrtu síðasta haust? 

Er það rangt að Ísrelar hafa aldrei getað sannað fullyrðingar sínr um að þeir óbreyttu borgarar sem þeir drepa hafi verið notaðir sem mannegir skildr af Hamas né heldur hafi fulltrúar Sameinuðu þjóðanna og Amnesty Internationarl sem hafa menn á svæðinu getað fundið dæmi um slíkt þrátt fyrir ítarlegar rannsóknir á því?

Er það ekki rétt að þeir sem fyriskipa fjöldarmorð á óbreyttum borgurm eru stríðsglæpamenn?

Sigurður M Grétarsson, 7.3.2015 kl. 10:32

7 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

SMG

þú ert brjóstumkennanlegur vægast sagt í sleggjdómum þínum.

Það hafa verið birt myndbönd hér á blogginu sem t.d. hollenskir blaðamenn tóku á nokkurra daga tímabili út um hótelgluggann sinn þar sem Hamas var að byggja skotpall undir segli, sem og þegar skotið var frá honum. Þetta var við hlið hótelsins. Smuleiðis eru myndbönd sem sýna að þeir nota íbúa, ekki hvað síst börn sem mannlega skildi. Það er viðurkennt af alþjóðastofnunum að skólar hafa verið notaðir og ótal fréttir fluttar í heimsfjölmiðlunum. 

En þú lætur ekki sannleikan eyðileggja sleggjudóma þína þannig að það þýðir ekki að leggja sannanir fyrir þig það hefur sýnt sig. Þessar sannanir liggja fyrir og hafa verið sýndar í heimsfjölmiðlunum og hér á blogginu.  En sannleik, varðar þig lítt um.Fólk með greindarvísitölu aðeins yfir stofuhita veit að ísraelar heyja varnarsdtríð gegn Hamas þegar þeir grípa til vopna auk þess að stökus innum að sækja fram til að loka göngum sem Hamas grefur yfir til Ísraels fyrir milljarða og nota til þess þræla sem mest eru börn og eyða í þetta milljörðum í stað þess að mennta ffólkið sitt og koma upp heilsugæslu.

Á síðasta ári sendu þeir flugskeyti yfir til ÍSraelskra borga til að murka lífið úr almennum borgurum fyrir 1,4 milljarð bandaríkjadala.

Það er ekki HAmas að þakka að skeytin náðu ekki á borgarana - heldur járnhvolfi því sem ísraelar hafa komið upp fyrir mikið fé en hefur þyrmt borgurum Ísraels fyrir morðoðum Hamas samtökunum.

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 7.3.2015 kl. 12:34

8 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Hvað hafa egyptar að segja um Hamas ?

.

https://www.youtube.com/watch?v=7VtENBF_yjo

.

.

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 7.3.2015 kl. 13:46

9 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Líttu á þetta :

https://www.youtube.com/watch?v=6DCuRzzsKnk

.

iVðurkenna að Hamas hafi gert göng til þess að ræna ísraelskum hermönnum

https://www.youtube.com/watch?v=s58aGaQ2OXU

 

ummæli araba sjálfra um að þeir beiti börmnum fyrir sig sem skildi :

https://www.youtube.com/watch?v=htRpQ4kUX2A

.

https://www.youtube.com/watch?v=SoYmuH3NOv8

.

https://www.youtube.com/watch?v=SoYmuH3NOv8

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 7.3.2015 kl. 13:47

10 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Á þessum myndböndum má sjá lýsandi dæmi um það hversu skítt "Palestínumenn" á Gaza hafa það.  Á fyrra myndbandinu bregður fyrir kunnuglegum andlitum.

.

http://www.youtube.com/watch?v=yM7_R8Oih-k 

.

http://www.youtube.com/watch?v=6f21_mj8fz0

.

.

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 7.3.2015 kl. 13:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 56
  • Frá upphafi: 3418215

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 54
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband