Leita í fréttum mbl.is

30 % af þinginu

eða 17 þingmenn af vinstri vængnum, þar á meðal formaður stærsta stjórnmálflokks þjóðarinnar, virðast ekki vita hvað fram fer í þjóðfélaginu síðan 2012.

Staksteinar í Mbl.vekja á því athygli í dag að alls 17 þingmenn hafa endurtekið flutt  þingsályktunartillögur um að fella niður gjöld á vistvænu og endunýjanlegu lífeldsneyti.Göfugur er tilgangurinn sjálfsagt þó að fyrirtækið Carbon Recycling tengist þinginu óþarflega mikið. En  þessi evrópska blöndunardella er ekkert annað en óþarfa skattlagning á þá sem minnst mega sín,einstæðar mæður, aldraða og öryrkjar sem fá dýrara og verra bensín. Enn ein skattlagningin sem á upptök sín í eins máls og eins atkvæðis krateríinu sem nú vill ekki bora á Drekasvæðinu 

Allt um það þá er  tillagan óþörf að því að Staksteinar hafa eftir Andríki því að það séu engin gjöld á þessu eldsneyti.

Það er talað um skort á virðingu þjóðarinnar fyrir Alþingi. Vinnubrögð þessa vinstra fólks er tæplega til þess fallin að bæta upp þennan skort þegar tæpur þriðjungur af þingmönnum virðist ekki fylgjast með því sem er að gerast í kring um þá.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Dæmigert fyrir froðusnakkana.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 30.3.2015 kl. 11:24

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Heimir,

hefur ekki verið viðurkennt opinberlega að þingmenn hafi í raun engan tíma til að kynna sér ESV lögin sem embættavaldið snjóar inn í þingið til stimplunar? Ég stórefa að það eigi að bvera þessi löngu frátafir frá þingstörfum sem eru og miða við að þingmenn geti stundað heysskap og fráfærur og svo þurfi að heimsækja kjördæmin á sleðum og fótgangandi þess á milli.þetta lið sem maður horfir á er nú ekki þesslegt að það vinni mikla yfirvinnu kauplaust

Halldór Jónsson, 30.3.2015 kl. 13:14

3 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Nefndarstörfin eru tímafrek, en öll frí að meðtöldu sumarfríi eru allt of löng og gjörsamlega úr takti við þjóðfélagið.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 30.3.2015 kl. 13:20

4 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Það hefði verið nær að vinna að því að hafna þessu matarolíu íblöndunar kjaftæði, sem gerir ekkert annað í svona litlu magni en að auka jarðolíu brennslu.  Evrópusambandið er vitleysa frá upp hafi og verður það til enda, þökk sé hinum vitlausu Frökkum sem héldu að með því væru þeir að tryggja sig fyrir Þjóðverjum, en hvernig er staðann ?  Þýskaland er vefurinn og Merkel er köngulóin í miðjum vefnum.

Þeir sem komnir eru á spenann hjá ESB sleppa honum ekki, heldur reyna að gera sig gildandi með því að smíða reglugerðir sem  líta það vel út á pappír að þær verði samþykktar á tillits hvort af þeim hlýst gagn eða ógagn.

Evrópusinnar á Alþyngi Íslendinga eru vitlausari en svo, að þeir skilji það að þeir komast aldrei allir í reglugerða klúbbinn hjá Evrópusambandinu, hvað þá að þeir hafi möguleika til að smíða reglugerð sem yrði samþykkt.  Og þó heimska hjápar þarna.         

Hrólfur Þ Hraundal, 30.3.2015 kl. 21:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 58
  • Frá upphafi: 3418169

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 54
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband