Leita í fréttum mbl.is

Óli Björn Kárason

var ásamt Jón Kristni Snæhólm á ÍNN í gærkvöldi. Jón vinur minn er skemmtilega greindur og upplýstur í stjórnmálafræði svo fáir standa honum á sporði. Hann er líka oft ótrúlega fundvís á kjarna málsins.

Ingvi Hrafn var í venjulega froskagervinu frá Flórída þar sem myndgæðin breyta honum talsvert mikið. En ekki talandanum sem var á sínum stað og mörgum þykir í meira lagi.En hann áetta og máetta.

Í þetta sinn fór ég að hlusta mest á Óla Björn, hugsanlega af því að ég hef verið að lesa bókina hans Manifesto hægri manns. Ég fór að láta hugann reika yfir þinglið Sjálfstæðismanna og bera saman hans málflutning og annarra. Meira og meira fór ég að hallast að því að Óli Björn varaþingmaður er eiginlega einn í hópi þingliðsins sem er Sjálfstæðismaður að algerri sannfæringu og trúarhita. Sýn hans á grunnhugsun Sjálfstæðisflokksins er svo einlæg og traust að ég get ekki jafnað honum við neinn annan. Ef Sjálfstæðisflokkurinn hefur ekki prédikara sem fólk hlustar á, þá er ekki furða þótt flokknum verði lítt ágengt og hann festist í því fylgi sem hann er nú kominn í.

Hvar heyrir maður fagnaðarerindið flutt af vettvangi Sjálfstæðisflokksins, um nauðsyn skattalækkana, samdráttar í bákninu, eign fyrir alla, nauðsyn þess að gjöra rétt og þola ekki órétt, stétt með stétt? Heyrir maður ekki meira lofsöngva um besta fiskveiðistjórnarkerfi í heimi sem varla á neitt sameiginlegt með einstaklingsfrelsi og athafnafrelsi en prýðilega með hagsmuni valdra stétta fyrir augum? Heyrir maður ekki um hóf í bankabónusum í stað niðurfellingar?.Heyrir maður ekki talað um að fjölga félagslegu húsnæði og leiguíbúðum af því að unga fólkið standist aldrei greiðslumat bankanna? Hvar heyrir maður talað um eign fyrir alla? Hvar heyrir maður talað um einokun bankanna og samráð? Hvar heyrir maður talað um nauðsyn sparnaðar? Hvar heyrir maður talað veerðtryggðan sparnað í peningum án fjármagnstekjuskattamínusa?

Sem er ekki furða þegar sveitarfélög skipuleggja bara lóðir fyrir stórverktaka sem byggja skotheld steinsteypuvirki með margra alda endingu fyrir augum á 400.000 kr á m2 þegar í Bandaríkjunum er nægt húsnæði byggt á 100.000 kr. á m2. Ef einhver heldur að ég sé að ljúga þá fari sá sami út á Pershing Avenue í Orlando þar sem slíkt húsnæði er til sölu og í framleiðslu. Enginn sveitarstjórnarmaður ansar manni þegar maður stingur upp á 500 m2 lóðum fyrir lítil hús sem fólkið getur byggt sjálft í Smáíbúðahverfisstíl og að fólkinu sé gert kleyft að byrja ekki að borga lóðirnar fyrr en það greiðir útsvar á heimilisfanginu.Eða jafnvel að byggja gámahús fyrir 50.000 kall á m2. Valkost við Hótel Mömmu?  Í stað þess halda Sjálfstæðismenn í Kópavogi happdrætti þar sem 5 vinningshafar með 150 íbúðir í blokkum eru ánægður en 25 aðrir eru fúlir og kjósa kommana næst?

Mér finnst Óli Björn tala mál sem ég skil. Hann er bara ekki mikið í náðinni hjá Sjálfstæðisflokknum. Væri það ekki þess virði að reyna  að breyta því?

Sjálfstæðismenn gera vel í því að hlusta betur á Óla Björn  Kárason sem er heilsteyptur í sinni lífsskoðun en ekki bundinn á klafa sérþarfa og meininga.   

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Í þingliði sjálfstæðisflokksins eru ekki margir afgerandi menn. Óli Björn þarf að vera í liðinu.

Í framsóknarflokknum eru aftur á móti fólk sem þorir að hafa skoðanir og flíka þeim, má þar nefna Vigdísi Hauksdóttur, Karl Garðarsson og Ásmund Daða Einarsson.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 18.4.2015 kl. 10:47

2 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Tek undir með þér Halldór varðandi Óla Björn og tel að það væri heppilegt að í þingliði Sjálfstæðisflokksins væru fleiri tegundir en hagfræðingar, lögfræðingar og handsnyrtir peninga plokkarar.   Að vísu er í samstarfsflokknum dýralækir sem sýnist ætla að ská jarðfræðinemanum við hvað varðar áníð á útgerð og annan atvinnurekstur.     

Hrólfur Þ Hraundal, 18.4.2015 kl. 12:29

3 Smámynd: Hjörtur Örn Hjartarson

Ég er mjög sammála þér um Óla Björn.  Greinarnar hans í Mbl. á miðvikudögum eru líka stórgóðar.

Hjörtur Örn Hjartarson, 18.4.2015 kl. 16:28

4 Smámynd: Ívar Pálsson

Óli Björn Kárason talar máli þess Sjálfstæðisflokks sem ég kýs.

Ívar Pálsson, 18.4.2015 kl. 16:59

5 Smámynd: Óðinn Þórisson

Áslaug Friðriks.borgarfulltrúi sagði í fyrra að Sjálfstæðisflokkurinn væri sósíal - demókrtískur flokkur.

Sammála varðandi Óla Björn en því miður þá eru fáir enn innan flokksins sem hafa hans hugsjón.



Óðinn Þórisson, 18.4.2015 kl. 18:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 57
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband