Leita í fréttum mbl.is

Pólitískt verkfall

BHM skýrist með kjöri hins nýja formanns. Sjálfur framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar, Þórunn Sveinbjarnardóttir, er tekinn við formennsku í félaginu af Palla komma. Þannig er sama framkvæmdastjórn í báðum þessum samtökum og því væntanlega greiðar boðleiðir milli formannanna. 

Verkfallið gengur samkvænt björtustu vonum og baráttuandinn vex með hverju nýju áfalli á á spítölunum. Svona myndi þetta ekki vera ef Íslendingar væru í ESB og hefðu Evruna? Þá væru launin verðtryggð og rödd Íslands myndi heyrast alla leið til Þýskalands þar sem launin hafa ekki hækkað neitt í langan tíma vegna algers skorts á verkföllum. Fyrir misskilning þá halda menn það sumstaðar, að launahækkun í einu Evrulandi hafi ekki áhrif á það næsta. Þórunn yrði ekki í vandræðum með aðstoð Árna Páls að skýra það út fyrir þessu ósstéttarmeðvitaða fólki undir Brussel hvernig Ísland færi að með árlegar 10 % launaleiðréttingar sem yrðu nauðsynlegar vegna fallandi gengis Evrunnar? Hagfræði hinna vinnandi stétta kunna Íslendingar upp á hár.

Markmiðið er auðvitað í og með að kynda undir ríkisstjórninni eins hægt er auk þess að fá einhverjar verðbólguhækkanir í vasann sem auka efnahagsvandann.

Þannig virka pólitísk verkföll best.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Þormar Halldórsson

Já ég man það núna að þegar ég kaus um það hvort ætti að fara í verkfall eða ekki, þá stóðu bæði Þórunn og Palli (eða hvað hann heitir) yfir mér. Ég hef m.ö.o. engann sjálfstæðan vilja frekar en aðrar þúsundir félaga í BHM.

Halldór Þormar Halldórsson, 24.4.2015 kl. 10:55

2 Smámynd: Haraldur Rafn Ingvason

Sé ástæðu til að þakka blogghöfundi sérstaklega fyrir þennan skemmtilega pistil, sá hæfileiki að geta komið bláókunnugu fólki til að hlægja er afar verðmætur.

Takk fyrir mig :)

Haraldur Rafn Ingvason, 24.4.2015 kl. 16:08

3 Smámynd: Sindri Karl Sigurðsson

Mér finnst þessi pistill ekki bjóða upp á fyndni nema þá einhverja sér íslenzka fyndni sem gefin var út í bókarheftum undir sama nafni og ekki nokkur leið er að hlægja að.

Finnst almenningi ekkert að því að pólitíkusar með sínar þvermóðskufullu skoðanir sitji, líkt og Þórunn gerir, andspænis viðsemjendum, sem í þessu tilfelli er Ríkisstjórnin?

Þessu fólki er skítsama um það að launafólk borgi kaupið þeirra. Það hefur ekki einu sinni áhuga á því að vita það.

Sindri Karl Sigurðsson, 24.4.2015 kl. 23:53

4 Smámynd: Halldór Jónsson

Nafni, ég veit ekki hversvegna fólk saþykkir verkföll eins og sjálfsagðan hlut.Einhver samkennd eða ótti?

Samt er nú auðvelt að reikna út að mánaðar tekjumissir í verkfalli og 30 % taxtahækkun færir launþeganum ekki neitt fyrstu fjóramánuðina eða svo, ríkið verður að hækka skatta til að geta borgað nýja taxtann og svo að vinna upp minnkun landsframleiðslunnar um tólfta part. Verðbólgan byrjar um leið og gengið fellur þannig að það vita allir að þetta gefur minna en núll. En heimskan blífur alltaf umfram skynsemina sem segir að kaupmáttur lægstu launa hafi hækkað verlega síðustu tvö ár. Nú er líka farið að greiða full laun í verkfalli og laun afturvirkt svo þetta er bara gaman.

Takk fyrir vinsamleg orð Haraldur Rafn og gaman ef þú getur hlegið að mér.Ertu nokkuð skyldur Pírötum?

Sindri, mér fannst gosið í Strokk fjandi flott til tilbreytingar. En auðvitað á að rassskella manninn og reka hann svo úr landi.

Halldór Jónsson, 26.4.2015 kl. 09:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 40
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband