Leita í fréttum mbl.is

Valdimar H. Jóhannesson

 er enn á ferð með hugleiðingar sínar um Islam. Ég held að Íslendingar almennt hafi gott af því að lesa það sem Valdimar skrifar um .eta efni. Ég leyfi mér að endurbirta bloggskrif hans:

"

Ákvæði stjórnarsrár Íslands um trúfresli er ekki án skilyrða.  Í 63. gr. segir:
„Allir eiga rétt á að stofna trúfélög og iðka trú sína í samræmi við sannfæringu hvers og eins. Þó má ekki kenna eða fremja neitt sem er gagnstætt góðu siðferði eða allsherjarreglu."  Þeir sem þekkja íslam vita, að íslam samræmist ekki góðu siðferði eða allsherjarreglu. Vandinn er sá að þekking á íslam er lítil á Íslandi, í stjórnsýslunni, í sveitarstjórnunum, hjá menntakerfinu, hjá kirkjunni, fjölmiðlum og hjá almenningi.

Ef við tökum okkur ekki á í þeim efnum er líklegt að skaðinn verði áður en við áttum okkur og við sitjum uppi með tröllaukin vandamál sem alls staðar hefur fylgt í kjölfarið á innrás íslam inn í hvað samfélag sem er. Nágrannalönd okkar glíma við vaxandi vandamál af hömlulausum innflutningi múslíma og vandséð hvernig þau leysa vandann.

Hér er áréttað að 80% múslíma er ekkert verri né betri en 80% t.d. nasista í Þýskalandi Hitlers, sem var ágætt fólk nema það hafði ekki döngun í sér til þess að standa gegn ómennunum sem réðu lögum og lofum í krafti ógnarstjórnar. Illskeyttasti hluti þeirra ræður ferðinni jafnt hjá múslímum sem nasistum á Hitlerstímanum.

Fyrri samfélög kristinna manna í Mið-Austurlöndum og á Balkanskaganum, samfélög Búddatrúarmanna í Austurlöndum (t.d. Afganistan), samfélög Hindúa á Indlandsskaganum, Zaraþústra dýrkanda í Persíu og samfélög gyðinga í Mið-Austurlöndum eru enn rústir einar eftir eyðileggjandi áhrif íslam. Íbúar þessara landa sem nú teljast flestir múslimar eru aumkunarverð fórnarlömb ofstækis sem einkennir íslam.Misskilningur er að halda að vandinn sé einskorðaður við róttækan islamisma.Íslam sjálft er vandinn og aðeins til marks um þekkingarleysi eða blekkingar ef slíkt fer fram hjá mönnum.

Fórnarlömbum íslam og almenningi í múslímskum löndum verður best hjálpað með því að leiða í ljós hvað íslam er í raun og veru, eins og Rússum er best hjálpað með því að upplýsa um hrylling komúnismans og Þjóðverjum um hið fjandsamlega eðli nasismans gegn heill og hamingju.

Það er ekki tilviljum að íslam, kommúnismi og fasismi eru nefnd í sömu andránni. Þetta eru allt náskyldar alræðisstefnur sem hafa að markmiði að kúga heiminn undir sig með hreinsunum og blóðfórnum og halda völdum með níðingsskap gagnvart minnihlutahópum. Flestum yfirsést að íslam er ekki fyrst og fremst trúarbrögð til einkanota heldur aðallega pólitískt stjórnkerfi sem nær til einkalífs fólks sem og opinberrar stjórnsýslu og til þess ætlað að ná heiminum öllum undir Allah, sem er hatursfullur guð og alls óskyldur guðsmynd annarra trúarbragða.

Heimurinn mun að endingu snúa baki við íslam sem þjónar alls ekki hagsmunum neinna nema  múslímskra karlmanna. Íslam þjónar herskáum þjóðum til að leggja undir sig önnur lönd. Þessi trúarbrögð voru búin til fyrir 14 öldum til þess að auðvelda arabískum ribböldum þess tíma að leggja til atlögu við nágranna sína til þess að ræna þá eigum og til þess að næra valdagræðgi og fullnægja kvalar- og kynlífslosta ribbaldanna. 

Heimurinn hefur liðið fyrir íslam í 14 aldir. Ekki sér fyrir endan á þeim hörmungum en hingað til hefur okkur Íslendingum lánast að vera að mestu lausir undan þessu oki vegna legu landsins ef frá er talið Tyrkjaránið á 17. öld. Mikið blóð mun áfram renna í heiminum næstu aldir vegna íslam og gerir á hverjum degi.

Nú ætla ólánsmenn að greiða götu þessa ofstækis til landsins með því að auðvelda yfirlýstum fjandmönnum okkar að vinna bug á samfélagi okkar með því að skemma það og sundra því innan frá. Bygging mosku er liður í markvissum hernaði íslam gegn samfélagi okkar. Allar moskur heimsins eru að fyrirmynd mosku Múhameðs sem múslímar kalla spámann.  Sú moska var fyrst og fremst stjórnsetur  í stríði gegn öllum sem ekki féllust á undirgefni undir hann og hugmyndafræði hans. Múmameð er í íslam sagður hinn fullkomni maður til fyrirmyndar fyrir múselmenn. Á mælikvarða hins vestræna samfélags er vandfundinn andstyggilegri maður.

Í stað þess að leyfa byggingu mosku ber að stöðva alla starfsemi tengda íslam hér á landi með tilvísun til stjórnarrkárinnar. Ef einhver skyldi vera svo grænn að sjá ekki að boðun íslam stríðir gegn góðum siðum og allsherjarreglu er þarft að rifja upp sitthvað sem íslam boðar:


Misrétti milli karlmanna og kvenna.

Misrétti milli múslíma og annarra trúarhópa.

Dauðarefsingar fyrir að ganga af íslamstrú

Dauðarefsingar fyrir samkynhneigð

Limlestingar fyrir t.d. þjófnað.

Dauðarefsingar fyrir að hallmæla íslam.

Bann á tjáningarfrelsi um íslam.

Dauðarefsingar fyrir að hallmæla Múhammeð.

Karlmönnum er leyft að eiga 4 konur.

Fullorðnir menn mega giftast stúlkubörnum og hafa við þær mök eins og Múhammeð gerði.

Við þennan lista má bæta við fleira hryllilegu eins og limlestingar á kynfærum stúlkna í mörgum löndum múslíma (yfir 90% kvenna í Egyptalandi eru umskornar), heiðursmorð (vansæmdarmorð er betra orð), grýtingar fyrir ótrúsemi, rétt karlmanna til lemja eiginkonur sínar til hlýðni, afhausingar, verndartolla (jizya sem kristnir og gyðingar greiða til að fá að halda í trúarbrögð sín um leið og þeir fallast á kúgun og 3. flokks borgararéttndi). Og margt annað miður fagurt.

Það er ekki ofstæki að banna þessi ósköp. Það er heimska og fáfræði að gera það ekki. Ég bið lesendur vinsamlegast að athuga að það er ekki ofstæki að segja frá ofstæki og við eigum ekki að halda í heiðri umburðarlyndi gagn umburðarleysi íslam. Ég læt mér í léttu rúmi liggja þó að illa upplýst fólk muni kalla mig rasista. Sá sem slíkt gerir afhjúpar sitt eigið þekkingar- og dómgreindarleysi enda ekki von á góðu þegar það er talið vottur um aðdáunarvert umburðarlyndi að vera fáfróður um eðli íslam og hörmungar af þess völdum í 14 aldir."

Allt þetta segir Valdimar. Mér finnst þetta fráleitt vera ofstæki heldur skynsemi. Við höfum haft hér þjóðfélag sem við þekkjum og vitum hvernig hefur gengið. Hversvegna skyldum við fara að kollsteypa því á grundvelli einhverrar kratískrar alþjóðahyggju?

Mér finnst rétt að kynna sér aðvaranir og rök Valdimars H. Jóhannessonar hvað varðar þær breytingar sem aukin Múhameðsvæðing hefur í för mmeð sér.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Hárrétt hjá þér kæri Halldór - grein Valdimars bloggvinar míns ber skynsemi hans og þekkingu vitni.

Enn á ný rifjast upp fyrir manni Herr Biedermann í Brennuvörgum hins svissneska Max Frisch, Biedermann und die Brandstifter - þorri íbúa vesturlanda eru í hlutveki Herr Biedermanns.

Nú er næsta víst að Biedermenn þessa heims bruni fram á ritvöllinn hérna að fornum sið bloggsins og öskra um að kristnin sé ekkert betri. Þess vegna skil ég hér eftir fræðslu í örstuttu myndbandi sem sýnir á myndrænan hátt framrás Jihad um heiminn versus krossferðir um árhundruðir. 

Þeir sem fara í sögubækurnar munu sjá að allt sem þarna er fjallað um stenst skoðun.

Þá skil ég einnig eftir fyrir þá sem vilja lengri og ítarlegri fræðslu um sama efni frá sama höfundi auk frekari lesningar fyrir þá fróðleiksþyrstu.

.

Stutt myndband um krossferðir vs. Jihad

https://www.youtube.com/watch?v=I_To-cV94Bo

.

Lengri útgáfa með fyrirlestri :

https://www.youtube.com/watch?v=SO5_QQVYlpA&list=UU0Uu4XnRS1hiz3JCpNFIuUg

.

Fundamentalism and out-group hostility:

 

http://www.wzb.eu/sites/default/files/u6/koopmans_englisch_ed.pdf

.

Nánari greining.

.

Religious fundamentalism and out-group hostility among Muslims and Christians in Western Europe :

.

http://www.wzb.eu/sites/default/files/u8/ruud_koopmans_religious_fundamentalism_and_out-group_hostility_among_muslims_and_christian.pdf

.

.

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 25.5.2015 kl. 15:41

2 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Til þess að framfylgja því sem hér er verið að mæla meö, verður samkvæmt sömu stjornarskrá að sanna sök hinna ákærðu. 

Ef það er talin næg sök að í trúarritinu séu atriði sem gangi gegn almennu siðferði eða allsherjarreglu vandast málið. 

Því að til dæmis er Bibliunni er að finna setningar sem dæmis telja rétt að taka málfrelsi af konum, viðhafa þrælahald og telja þræla og konur vera eign karlmanna, banna samkynhneigð og hafa ákvæði um kristniboð, sem fyrr á öldum var notað sem réttlæting á því að fara með hernað á móti þeim þjóðum sem ekki eru kristnar. 

Ómar Ragnarsson, 25.5.2015 kl. 23:08

3 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Er ekki hægt að segja að flestir Krisnir hafi þróast og taka ekki orð Biblíunnar bókstaflega á síðustu árum? 

Má segja að það hafi sama og enginn þróun verið hjá all flestum múslimum síðustu árin og taka orð Kóransins ennþá bókstaflega?

Hvort er meira frelsi til trúariðkana, persónulegt frelsi og lýðræðislegs frelsi í Sádi Arabíu eða t.d. á Íslandi?

Ég spyr, kanski að Ómar geti svarað þessu?

Kveðja frá Houston actually frá Las Vegas 

Jóhann Kristinsson, 26.5.2015 kl. 00:14

4 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Hér virðast hvorki Ómar né Jóhann hafa lesið skrif Valdimars um múslima - hvað þá ýmsa aðra pistla en þennan eina.

Það er ekki neitt að finna í Biblíunni að það skuli fara með hernaði til að kristna menn. Orðin um þ0gn kvenna er enn eina ferðina snúið á hvolf þar sem menn lesa Biblíuna eins og skrattinn.

Jóhann - Valdimar nefnir einmitt þetta með bókstafsmennina í þessum tilvísaða pistli.

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 26.5.2015 kl. 01:33

5 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Elsku predikari.

það er nú það sem ég er að benda á, Kristnir hafa þróast í gegnum árin og taka ekki Biblíuna bókstaflega það er góð þróun að mínu viti, semu sagt krossferðin heyra sögunni til.

Muslimar sitja ennþá með hugsunar hátt sjöundu aldarinnar og taka Kóraninn bókstaflega, þannig að jihad þykir sjálfsagt til dagsins í dag. Þessi hugsunarháttur á ekki heima í þjóðfélagi heimsins í dag.

Lesa rólega predikari og setja pennan af stað að athuguðu máli.

Kveðja frá Las Vegas

Jóhann Kristinsson, 26.5.2015 kl. 16:45

6 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Sæll Jóhann.

Krossferðir, upphaf þeirra og lok, hafa ekkert með það sem stendur í Biblíunni að gera.Ekkert í Kristni ætlar m0nnum að fara slíkar ferðir.

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 26.5.2015 kl. 18:10

7 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Sama hvað þú tautar og raular predikari, þá voru Krossferðirnar gerðar í nafni Kristinar trúar hvað svo sem Biblían kennir áhangendum sinum. Lesa bara mannkynssöguna maður, þú þarft ekkert að trúa mér.

Kveðja frá Las Vegas

Jóhann Kristinsson, 26.5.2015 kl. 20:00

8 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Jóhsnn.

Ég þekki mannkynssöguna vel og veit un krossferðirnar ig endurtek - það er ekkert í kristni og Biblíunni sem segir mönnum að fara krossferðir, En Kóraninn, eins og Valdimar hefur margsýnt fram á í pistlum sínum. beinlínis hvetja til óhæfuverkanna, eins og sést í myndbandinu sem ég setti inn í fyrsta innlegg mitt að ofan þá hafa þau verið endalaus og kostað mikið mannfall í vígum múslimanna við Jihadd sitt.

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 26.5.2015 kl. 23:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 44
  • Frá upphafi: 3417961

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 41
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband