Leita í fréttum mbl.is

Það er innrás

flóttamanna til Evrópu i gangi og hugsanlega  skipulögð innrás Sauda, ISIS og annarra Sunnia til Vesturlanda, þegar þeir ryðja þessum straumi flóttamanna sem er að miklum hluta vopnfærir karlmenn á besta aldri til Evrópu. Þetta er hugsanlega partur af Jihad, sem er heimsyfirráðastefna Islam. Þeir ætla að leggja undir sig Vesturlönd.

Þeir geta það ekki ennþá með vopnavaldi. Til þess vantar þá bombuna. Þegar þeir hafa hana þá gefumst við Evrópumenn upp fyrir þeim. Alveg pottþétt mun ESB erða ófært um að taka nokkra ákvörðun til varnar.

Þess vegna hafa þeir séð hvernig þeir gera það á fljótvirkastan hátt. Með þjóðflutningum. Frjósemi þeirra múslímakvenna er svo miklu meiri en Vesturlandakvenna, sem eru frjálsar að ákveða sínar barneignir. Konur í Islam eru bara ófrjáls, menntunnarlaus vinnudýr og keyptir undaneldisgripir sem hafa ekki um neitt annað að velja en að láta eigandann barna sig að vild.

Dr. Angela Merkel er sögð gera sér grein fyrir því að Þýskaland í núverandi mynd mun hverfa og við taki múslímaríki. Séð hef ég talnaspádóma um þau ártöl sem verða skrifuð þegar Bretland og Frakkland fylgja með.

Mér sýnist af tilskrifum ýmissa athugasemdamanna sem mislíka mín skrif, að þeir leiði ekki hugann að afleiðingum þessara þjóðflutninga. Þó hefur þetta mest gerst áður eða á Spáni á miðöldum.

Þá voru Márar búnir að leggja undir sig Spán þegar Ferdínand og Isabella settu þeim stólinn fyrir dyrnar.Þá gátu margir kastað trúnni fyrirhafnarlítið þegar múgsefjun trúarinnar  var gert erfiðara fyrir. Skýldi það ekki geta endurtekið sig?

Ég held að innrás flóttamanna til Evrópu um þessar mundir sé skipulagðari en margan grunar. Henni er stefnt að veikleika siðaðra manna sem þola illa að sjá fólk afhausað eða börnum drekkt. Eftirleikurinn er hinsvegar ekki tilkynntur en liggur þó nokkuð í augum uppi.

Eða hversvegna er ekki rætt um það að Saudarnir eigi tilbúin fullkomin híbýli með loftkælingu fyrir 3 milljónir manna? Þeir taka við núll bræðrum sínum meðan við eigum að fá þá alla.

En opinberlega er þetta víst flótti og okkar vandamál en ekki Saudanna og alls ekki skipulögð innrás. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

"Séð hef ég talnaspádóma..."  Eiginlega segir þetta allt sem segja þarf.

Hilmar (IP-tala skráð) 12.9.2015 kl. 09:47

2 Smámynd: Jósef Smári Ásmundsson

En ef þetta fólk gengur nú af trúnni þegar það er komið til vesturlanda ? Ertu viss um að allir þessir vopnfæru ungu menn sem hafa þurft að flýja glæpamennina í heimalandinu séu svo tilbúnir til að ganga til liðs við þá. ? Er samsæriskenningin ekki komin á svolítið flug hjá þér? Þarftu ekki að fara að lenda rellunni?

Jósef Smári Ásmundsson, 12.9.2015 kl. 10:10

3 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Ég er alveg sammála Halldóri og þetta hefir verið skoðun mín frá byrjun. Horfið bara á þessa ungu memm glansandi að styrk og krafti sérstaklega austan við ermasundsgöngin. Þar þarf ekki nema einn gám með vopnum til að virkja þá.Hér er þessi Utube með talnaspánni en þessar tölur breytast með þessum gestum Angelu Merkel. Copy and paste upp í linkið ef það opnast ekki..

https://video-lhr3-1.xx.fbcdn.net/hvideo-xpf1/v/t42.1790-2/11893234_856942551117674_1719532525_n.mp4?efg=eyJybHIiOjMwMCwicmxhIjoxNTg4fQ%3D%3D&rl=300&vabr=136&oh=3aea6bfd810658146b353442fc8f2719&oe=55F44FF0

Valdimar Samúelsson, 12.9.2015 kl. 14:28

4 Smámynd: Halldór Jónsson

Takk frir bandið Valdimar. British Defence Force-Nihil Obstata er að reyna að vekja fólk upp hvert stefnir.

Þaðer með ólíkindum að stærstur hluti ráðamanna okkar er steinblindur á að sem er í aðsigi

Halldór Jónsson, 12.9.2015 kl. 15:32

5 Smámynd: Jón Bjarni

Er semsagt kenningin sú að eftir að hafa glatað öllu sínu lífi sem þeir þekktu, allslausir í nýju landi - þá muni sýrlenskir flóttamenn í unnvörpum gagna til liðs við þá sem bera ábyrgð á því sem þeir hafa hafa gengið í gegnum?

Hvernig getur þokkalega þenkjandi manneskja látið sér detta svona rugl í hug?

Jón Bjarni, 12.9.2015 kl. 15:41

6 identicon

Jú þetta er innrás. Þegar maður er búin að vinna þarna í þessum löndum, þá fyrst skilur maður þankaganginn. Heilsað með hægri og stunginn með þeirri vinstri. Hér er linkur sem segir allt um þessa geðveiki sem hún er svo sannarlega.

https://www.youtube.com/watch?v=-BDqzmG-rH8

En það verður samt fullt af fólki sem mun segja að þetta sé vitleysa og rugl.

Sigurður K Hjaltested (IP-tala skráð) 12.9.2015 kl. 16:42

7 Smámynd: Jón Bjarni

Hey þú Sigurður

https://en.wikipedia.org/wiki/List_of_countries_by_intentional_homicide_rate

Sýrland er í 152 sæti yfir hæstu morðtíðni í heiminum.. alltaf hresst þegar fólk tapar sér í fordómunum og vanþekkingunni

Jón Bjarni, 12.9.2015 kl. 18:45

8 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Jón Bjarni með virðingu fyrir flótta og farandsfólki þá er Múslimi þræll Kóransins og þeir sjálfir hafa ekkert að segja séu þeir valdir.Einskonar herskylda. Þetta vita allir. Kannski viss aldur eða einn úr fjölskyldu. Herkvaðninga er Kall í gegn um I phone eða internetið/facebook staður og stund nefnd.

Kannski hefir þú Jón Bjarni dregist afturúr.Þegar ég var í Afríku og Asíu þá voru allir með ''Ham'' stuttbylgju sendistöðvar og öll samskipti í gegn um þær.

Valdimar Samúelsson, 12.9.2015 kl. 18:49

9 Smámynd: Jón Bjarni

Eru allir 1 600 000 múslimar í heiminum þrælar kóransins Valdimar - þvættingur, þetta er jafn mikill þvættingur og halda því fram að allir kristnir í heiminum séu þrælar Biblíunnar

Jón Bjarni, 12.9.2015 kl. 19:21

10 Smámynd: Jón Bjarni

Og ef þessi fáránlega röksemd héldi vatni - hvernig stendur þá á því að kristín ríki kaffæra öll önnur á listum yfir morð og aðra ofbeldisglæpi?

Jón Bjarni, 12.9.2015 kl. 19:22

11 Smámynd: Jón Bjarni

Það eru ekki nema rétt tæp mannsævi síðan hin kristna Evrópa var stríðþjáðasta álfa veraldar, og hafði verið það í mörg hundruð ár

Jón Bjarni, 12.9.2015 kl. 19:24

12 identicon

Halldór,  ég var að fór í skoðunartúr um Sachenhausen útrýmaigarbúðirnar í þyskalandi í dag.
þú hefðir gott af því að kíkja þangað til að sjá hversu íllt sama hugarfar og þú hefur gerði fyrir fólk.

Sagan er til þess af læra af henni,  og að alhæfa og þarmeð afmennska hópa fólks er eithvað það versta sem að hægt er að gera öðrum manneskjum.

nazis raus! / refugess Welcome!

kv.frá Berlín.

Anton (IP-tala skráð) 12.9.2015 kl. 20:14

13 identicon

Greinilegt Jón Bjarni ad thú ert manna fródastur um oll thessi mál. Ábyggilega unnid tharna nidur frá líka eins og ég og thekkir thetta af eigin raun. Ef thú hefdir gefid thér tíma til ad skoda myndbandid, thá hefdir thú séd ad thad er verid ad taekla flóttamannfjoldan med thví ad benda á ad their eru ekki allir ad koma frá Sýrlandi. En thad skiptir thig engvu máli.Útúrsnúningur gagnvart ollum sem ekki eru sammála thér eru leidir rokthrota manns. Ekki haegt ad sýna fólki eins thér og thínum hvad gaeti í raun verid ad gerast. Thá er ekki haegt ad lifa í núinu heldur tharf ad bera fyrir sig gamlar sogur. Skodadu thá Spánarsogu. Thad sama gaeti nefnilega gerst  aftur og skedi thá. Betra ad fara varlega og gera hlutina rólega og skynsamlega, en ekki opna allt uppá gátt. Annad er vanthekkingarleysi.

Sigurdur Hjaltested (IP-tala skráð) 12.9.2015 kl. 21:22

14 Smámynd: Jón Bjarni

Unnið niðurfrá hvar.. Vannst þú einhversstaðar þar sem allt f ólk er vont fólk?

Vannstu líka í Belfast þegar kristnir börðust þar á níunda áratugnum og sprengdu lestar í London.. Eða varstu á Balkanskaga þegar þar voru framan þjóðarmorð fyrir ekki svo löngu?

Það er ekkert annað en heimska að alhæfa svona um hátt í 2 miljarða manna eins og þú gerir hér - flest fólk er gott fólk, þú tilheyrir ekki þeim hópi

Jón Bjarni, 12.9.2015 kl. 21:30

15 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Jón Bjarni. Það er verið að tala um Islamska heimin en hann er að riðjast aftur inn í Evrópu í allri sinni snild. Kristnir eru ornir úrkynjaðir engin her í Evrópu undir stjórn ESB. Lærðu mannganginn. Skrifaðu minna og hugsaðu meira.    

Valdimar Samúelsson, 12.9.2015 kl. 22:43

16 identicon

Árið 1938 hefði Jón Bjarni haldið uppi hörðum áróðri fyrir góðmennsku Þjóðverja.
Að hans mati þá voru andstæðingar nasismans vondir menn. Stimpla 80-90 miljónir Þjóðverja hættulega.

40% breskra múslima styðja sharía lög í Bretlandi. Álíka stór hópur, ef ekki stærri, styður haturspresta íslam.
Fjölmennur hópur evróskra múslima hafa flykkst til Sýrlands til að nauðga, pynta og drepa í nafni spámannsins.


Þeir sem sögðu að Þjóðverjar væru hættulegir árið 1938, höfðu rétt fyrir sér. Þeir sem halda því fram, árið 2015, að íslam og múslimar séu hættulegir, þeir hafa líka rétt fyrir sér.

Neville Chamberlain var hálfviti, og það er Jón Bjarni líka.

Hilmar (IP-tala skráð) 12.9.2015 kl. 23:37

17 identicon

Nægilega margir Þjóðverjar voru nasistar, til að þagga niður í öðrum.
S.k. hófsamir múslimar í Evrópu þegja um grimmdarverk í nafni trúarinnar, af því að þeir eru hræddir við öfgamennina. Moskum í Evrópu hefur verið breytt úr trúarhúsum í innrætingarmaskínur fyrir hatur, og til nýliðasöfnunar fyrir öfgasamtök.

Við höfum fyllstu ástæðu til að óttast öfgamenn.

Hilmar (IP-tala skráð) 12.9.2015 kl. 23:55

18 Smámynd: Jón Bjarni

Sorry Hilmar, en héldu Þjóðverjar því ekki fram að gyðingar væru hættulegir? 

Jón Bjarni, 13.9.2015 kl. 02:16

19 Smámynd: Jón Bjarni

Það er rétt að við höfum ástæðu til að óttast öfgamenn.. ertu viss um að þú sért ekki einn þeirra?

Jón Bjarni, 13.9.2015 kl. 02:20

20 identicon

Nei Jón, skoðanir nasista á gyðingum eru svipaðar og skoðanir múslima á gyðingum. Múslimar standa að baki flestum hatursglæpum gegn gyðingum í Evrópu dagsins í dag.

Ég er hinsvegar ekki undrandi á þessari spurningu þinni. Hún er jafn mikið út úr kú og önnur söguþekking hjá þér.

Hilmar (IP-tala skráð) 13.9.2015 kl. 02:34

21 identicon

Það ert nú þú Jón, sem styður óheftan innflutning á öfgamönnum til Evrópu. Ég er mótfallin því.
Þ.a.l. er þú öfgamaðurinn í þessu.

Hilmar (IP-tala skráð) 13.9.2015 kl. 02:46

22 Smámynd: Jón Bjarni

Það er ákveðin grundvallarrökvilla fólgin í því að halda því fram að allir þeir sem koma frá ákveðnu svæði eða aðhyllast ákveðna trú séu öfgamenn. Ég styð ekki óheftan "innflutning" á öfgamönnum. Það að halda því fram að allir þeir sem koma frá ákveðnu svæði séu öfgamenn er ekki bara fordómar, það er líka rökvilla sem er kölluð strámaður.

Þín röksemd Hilmar gengur út á það að allir flóttamenn sem reyna að komast til íslands séu öfgamenn - sú fullyrðing stenst hinsvegar enga skoðun.. Þegar þú lýgur því að bæði mér og sjálfum þér að ég styðji óheftan innflutning öfgamanna þá ertu bæði að ljúga að sjálfum þér og mér

Jón Bjarni, 13.9.2015 kl. 03:44

23 Smámynd: Jón Bjarni

Með öðrum orðum.. þegar þú gengur út frá því að allir flóttamenn séu öfgamenn - þá gengisfellir þú um leið allt sem á eftir því kemur.... Því við vitum það báðir að það eru ekki allir flóttamenn öfgamenn. Það voru líka læknar, hjúkkur, leikskólakennarar og smiðir í Sýrlandi

Jón Bjarni, 13.9.2015 kl. 03:48

24 Smámynd: Jón Bjarni

Svo er hér smá info fyrir þinn fordómafulla haus

http://thinkprogress.org/world/2015/01/08/3609796/islamist-terrorism-europe/

Jón Bjarni, 13.9.2015 kl. 03:53

25 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Jón Bjarni með virðingu fyrir flótta og farandsfólki þá er Múslimi þræll Kóransins og þeir sjálfir hafa ekkert að segja séu þeir valdir.Einskonar herskylda. Þetta vita allir. Kannski viss aldur eða einn úr fjölskyldu. Herkvaðninga er Kall í gegn um I phone eða internetið/facebook staður og stund nefnd.

Kannski hefir þú Jón Bjarni dregist afturúr.Þegar ég var í Afríku og Asíu þá voru allir með ''Ham'' stuttbylgju sendistöðvar og öll samskipti í gegn um þær.

Valdimar Samúelsson, 13.9.2015 kl. 08:24

26 identicon

Er eitthvað í smiðsnámi og læknisfræði í Sýrlandi, sem kemur í veg fyrir að fólk verði öfgafólk, Jón Bjarni?

Í gegnum áratugina hefur verið almenn samstaða um það í Sýrlandi, að útrýma gyðingum í Ísrael, og Sýrlendingar stóðu sig alls ekki illa við gyðingaofsóknir heimafyrir, urðu sér m.a. úti um aðstoð frá Alois Brunner, þekktum nasista, undirmanni Eichmann. Það fer því ekkert sérlega vel á því, að ætla að nota helförina til stuðnings öfgasinnuðum Sýrlendingum. Það er eiginlega mjög ógeðfellt af þér, en mjög lýsandi fyrir karakterinn.

Langstærsti hluti múslima aðhyllist sharia, og sharia er hreint form öfga og haturs, þar sem handarhögg þjófa og grýting þeirra sem halda framhjá er normið, þeir sem ganga af íslam skulu drepnir o.sv.frv.

Auðvitað ertu harður stuðningsmaður öfga, Jón Bjarni. Svo harður, að það gerir þig að öfgamanni. Það getur stafað af tvennu, hatri eða heimsku, eða bæði. Annað kemur varla til greina.

Hilmar (IP-tala skráð) 13.9.2015 kl. 09:37

27 identicon

Æji hættu þessu röfli Skúli...  ég meina "hilmar"

Toni (IP-tala skráð) 13.9.2015 kl. 11:17

28 Smámynd: Jón Bjarni

Æi Hilmar.. aðhyllist meirihluti múslima Sharia? 

Það er fullkomlega óþolandi að "rökræða" við fólk sem fer bara með einhverjar staðleysur

https://en.wikipedia.org/wiki/Application_of_sharia_law_by_country

Gjörðu svo vel

Jón Bjarni, 13.9.2015 kl. 13:09

29 Smámynd: Jón Bjarni

Og svo skaltu ekki halda það að þó að öfgafólk sé við stjórnvölin i ríkjum sem beita SHaria lögum að fullu þá þýðir það ekki að allir múslimarnir sem búa í þessum löndum sé sama sinnis - það er t.d. ein ástæða þess að fólk flýr þaðan

Það semsagt flýr öfgarnar og svo eru það bjánar eins og þú sem kalla þetta flóttafólk öfgafólkið sem það er að flýja - magnað alveg

Jón Bjarni, 13.9.2015 kl. 13:14

30 identicon

Hvernig væri nú að kynna sér málefnið, áður en þú talar með afturendanum, Jón?
http://www.pewforum.org/2013/04/30/the-worlds-muslims-religion-politics-society-beliefs-about-sharia/

Ef þú átt í vandræðum með að lesa þér til gagns, þá er svolítill úrdráttur hér fyrir þig:

Hlutfall múslima sem vill gera sharia að landslögum:
Írak - 91%
Palestína - 89%
Marokkó - 81%
Egyptaland - 74%
Jórdanía - 71%
Túnis 56%
Libanon 29%

Hvað varstu aftur að segja, að það sé "fullkomlega óþolandi að rökræða við fólk sem fer með staðleysur"
Er ekki málið, að það er bara óþægilegt fyrir þig að hafa ekki rassgatsvit á hlutunum?

Hilmar (IP-tala skráð) 13.9.2015 kl. 14:12

31 Smámynd: Jón Bjarni

Hilmar, ef þú hefðir lesið síðuna sem ég sendi þér þá sæir þú vandamálið hér. Í langflestum múslima er Shara hluti af lögum, þá helst hvað varðar erfðir og málefni fjölskyldna o.s.frv. þær reglur eru ekkert sem þarf að hafa áhyggjur af. Það er síðan i einhverjum löndum þar sem öfgafullum skilningi á Sharia er beitt - það er þar sem menn eru afhöfðaðir, limir teknir af o.s.frv. sem er það sem þú ert að tala um hér.

Það er hinsvegar mikill minnihluti múslima sem lifir undir slíkum lögum og þar sem fólk lifir undir slíkum lögum þá er stór hluti ekki sáttur við það. Í afganistan var þessum skilningi ekki beitt fyrr en þar komust til valda öfgafullir terroristar t.d. Meirihluti Afgana vill það ekki, þú getur alveg treyst því.

Spurningin sem er spurt að þarna er hvort fólk telji Sharia vera orð guðs - sem er svipað og að spyrja kristið fólk hvort það teldi Biblíuna vera orð guðs..

Það er fólk myndi svara þeirri spurningu þýðir varla að viðkomandi sé þannig að samþykkja strangasta skilning á henni - vilja fara steina fólk fyrir samfarir fyrir hjónaband t.d.

Aftur sýnir þú fram á fullkomið skilningsleysi

Jón Bjarni, 13.9.2015 kl. 20:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 11
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 59
  • Frá upphafi: 3418210

Annað

  • Innlit í dag: 11
  • Innlit sl. viku: 59
  • Gestir í dag: 11
  • IP-tölur í dag: 11

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband