Leita í fréttum mbl.is

Sjáið nú!

hvað það er mikill misskilningur ef Vesturlandamenn halda að þeir séu að leysa einhver vandamál heimsins með því að taka við flóttamönnum og hælisleitendum sem  innflytjendum frá fátæku löndunum til Vesturlanda.

Vandamál heimsins er svo risavaxið og vex svo hratt, að þetta er ekki vinnandi vegur fyrir Vesturlönd að leysa. Fólki fjölgar í þriðja heiminum um 80 milljónir árlega til viðbótar þeim 6 milljörðum sem lifa núna á minna en 2 dollurum á dag.

Vestræni heimurinn getur hvergi tekið við neinum þeim fjölda. Þó Íslendingar tækju við þúsund núna og Bandaríkin við milljón til viðbótar sinni milljón þá sjá allir hvaða lausn það er á vandamálinu.

Skoðið  þetta myndband á netinu:

 
og sjáið vandamálið í raunverulegum mælikvarða.
 
Því miður er ekkert annað í stöðunni en að flytja þessa flóttamenn aftur til síns heima. Það eina sem við getum gert er að reyna að hjálpa þeim þar.
 
Því miður geta Vesturlönd ekki annað en lokað landamærum sínum.
 
Sjáið nú vandamálið í réttum mælivarða með því að skoða þetta myndband.
 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Samkvæmt "rökum" þessa áróðursmeistara (Roy Beck) skiptu þau u.þ.b. 1200 líf sem Oskar Schindler bjargaði frá útrýmingarbúðum nasista ekki máli í ljósi þeirra milljóna sem þar fórust.

En þau skiptu samt máli fyrir þessa skjólstæðinga Schindlers. Öllu máli.

Og þar með stendur ekki steinn yfir steini í málflutningi Beck.

Baldur Ragnarsson (IP-tala skráð) 24.9.2015 kl. 20:27

2 identicon

Það er ekki verið að reyna leysa nein vandmál

heldur einungis að friða samviskuna

Venjulegu fólki líður vel við að gera góðverk

og því betur sem góðverkið er lengra í burtu

allavega fer ekki mikið fyrir næsta nágranna nágungakærleika á Íslandi

Miskunsami (IP-tala skráð) 24.9.2015 kl. 20:31

3 identicon

Það verður erfitt verk að velja 100 manns úr hópi þeirrar u.þ.b. 1,5 mmilljónar flóttamanna sem eru nú í Líbanon.

Hörður Þormar (IP-tala skráð) 24.9.2015 kl. 21:33

4 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Baldur - þú ert með röldeysu og þekkir lítt til Schindlermálsins, nema úr diktuðu bíómyndarinnar. Í þessu samhengi ferðu væmtanlega að ræða um Avatar myndina sem mikinn sannleik - enda bíómynd líka....................

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 25.9.2015 kl. 01:16

5 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

afsakið innsláttarvillu í fyrra innleggi - þarna átti að standa í efstu línu „rökleysu“ -

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 25.9.2015 kl. 09:36

6 identicon

Baldur.  Þetta eru týpísk rök fjölmenningarfasista.  Halda ekki vatni og koma málinu ekki við og ef maður nennir að eltast við þau þá þjóna þau ekki málstaðnum sem þau eru sett fram fyrir.

Oscar Schindler bjargaði gyðingum þar sem þeir voru og þegar þeir voru úr hættu björguðu þeir sér sjálfir.

Það er nákvæmlega sem svona "rasistar" eins og ég vil gera.  Bjarga fólkinu heima hjá því eða því sem næst til að það geti snúið heim þegar hættan er liðin hjá.

Peningar sem varið er í það nýtast miklu mun betur heldur en að stefna þúsundum manna á bætur og loka augunum fyrir óyfirstíganlegum menningarmun.

ocram (IP-tala skráð) 25.9.2015 kl. 14:10

7 identicon

Ocram: Gyðingar Schindlers voru ekki "heima hjá sér" í fangabúðunum. Afkomendur þeirra hafa síðan dreifst víðvegar um Evrópu, Ameríku og til Ísrael. Og fasistar eru ekki fjölmenningarsinnar. Flettu því upp.

Predikari: Lestu Wikipediu og aðrar netheimildir. Ekki ætla öðrum þinn áhuga á amerískum bíómyndum.

Baldur Ragnarsson (IP-tala skráð) 25.9.2015 kl. 15:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 44
  • Frá upphafi: 3417961

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 41
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband