Leita í fréttum mbl.is

Hvað skyldi Steingrímur gera?

á Landsfundi VG?

Þessi maður frá Þistilfirði lét kjósa sig á þing 2009 með örfáum atkvæðum  sem eindreginn andstæðing  þess að Ísland gengi í ESB.

Hann var ekki lengi að því að söðla um þegar honum bauðst ráðherraembætti með feitum eftirlaunarétti. Alþýðuvinurinn lagði svo hart að sér fyrir land og þjóð að hann missti bæði svefns og matar og varð fjölskyldan að troða í hann mat svipað og sænska proppgæs svo hann gæti haldið áfram að bjarga einhverjum ímynduðum verðmætum úr hruninu sem hann sagði að hér hefði orðið.

Nú var sótt um aðild að ESB með hans atkvæði og síðan hefur hálf þjóðin staðið á öndinni yfir því að hana langar svo í þjóðaratkvæði til að klára aðildarviðræðurnar með því að hætta við að ganga í sambandið ef marka má Gallup.

Í allri lýðveldissögunni og þótt víðar væri leitað er vandfundin hliðstæða við slík sinnaskipti stjórnmálamanns eins og Steingríms Jóhanns eða heils stjórnmálaflokks eins og VG.

Hann sá sér óvænna þegar öll hans ráðherrastörf og skattlagningarhugsjónir voru dæmd ómerk og þjóðin rak hann frá völdum með afgerandi hætti í almennum þingkosningum. Þá komu fyrri yfirlýsingar óðar aftur og hann er hugsanlega á móti inngöngu í ESB um þessar mundir. Þó er slíkt alls ekki vitað til fulls.

Hann neyddist til að setja annan formann í klúbbinn sinn sem kallast Vinstri hreyfingin grænt framboð. Segir mikið er það ekki?  Fríða konu sem skyndiglottir við hin ólíkustu tækifæri þegar öðrum er síst hlátur í hug. Allt þetta sannar að VG er víður hugsjónaflokkur með húmor sem getur tekið að sér að leiða þjóðina á móts við nýja tíma í léttum dúr. Fróðlegt væri að vera fluga á vegg og heyra samræður Steingríms við flokksmenn á þessu þingi. Hvernig mun Steingrímur, hvað þá formaðurinn brosmildi greiði atkvæði þegar kemur að aðildarviðræðum við ESB? Nema þeir bara sleppi því? 

Svo mikil ógn stafar af þessari óvissu að núverandi ríkisstjórn gat ekki slitið viðræðunum af ótta við áhrif þessarar voldugu hreyfingar. Það stefndi til uppreisnar meðal þjóðarinnar sem krafðist þjóðaratkvæðis. Beint lýðræði er það víst kallað á Útvarpi Sögu.

Áhöld eru um að Sjálfstæðisflokkurinn sem heldur sinn Landsfund sinn á svipuðum tíma, muni treystast til að tjá sig um málið. Enda nóg af öðrum stórum málum að ákveða eins og hið heita baráttumál ungra Sjálfstæðismanna um vínsölu í matvörubúðum. 

Og svo koma málefni kvótflóttamannannna og hælisleitendanna. Hjá báðum flokkum eru þessi mál á sjálfstýringu og verða ekki rædd öðruvísi en frá sjónarmiðum góða fólksins sem ekkert aumt má sjá og er handhafar kærleikans.

Það er eiginlega stærri spurning en hvað Sjálfstæðisflokkurinn muni gera? Hvað skyldi Steingrímur gera í ESB málinu?

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Góður punktur hjá þér kæri Halldór.

Ég má til að setja eldri pistil frá mér inn því hann á svo vel við :

Upp komst um jarðfræðinemann að hann er mesti raðlygari stjórnmálasögu Íslands. 

Þetta rifjaði Loki Laufeyjarsson skilmerkilega á blogi Páls Vihlálmssonar :

„Mesti þjófnaður frá landnámi var þegar Steingrímur J stal atkvæðum af þúsundum Íslendinga undir því fororði að VG mundi standa gegn því að sótt yrði um aðild að ESB enda var það í fullu samræmi við stefnuskrá og ályktanir flokksins. Sjá hér:

.

 https://www.youtube.com/watch?v=AIBuEnFQ6ac

.

Atli Gíslason þingmaður VG sannreyndi að samkomulag var á milli forystumanna VG og Samfylkingarinnar um að sækja um aðild að ESB áður en kosið var og sannast því að Steingrímur J laug blákalt að þjóðinni  degi fyrir kosningar. „Ég hef nú sannreynt að fyrir kosningarnar vorið 2009 hafi verið ákveðið í þröngum hópi forystu VG og Samfylkingarinnar, næðu flokkarnir þingmeirihluta, að sækja um aðild að ESB og samþykkja Icesave, skilgetið afkvæmi ESBumsóknarinnar. Sannleikanum var haldið frá mér og ótal fleirum í aðdraganda kosninganna. Ég var afvegaleiddur og afvegaleiddi kjósendur í Suðurkjördæmi. Ég harma það og biðst afsökunar." Sjá hér:

.

http://www.dv.is/frettir/2011/11/7/atli-gislason-eg-afvegaleiddi-kjosendur/ “

.

.

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 12.10.2015 kl. 23:42

2 Smámynd: Jón Valur Jensson

Mjög vel skrifuð grein hjá þér, Halldór, og góð krufning á þessu hálfgerða líki eða (vonandi ekki) afturgöngu Vinstri grænna.

Jón Valur Jensson, 13.10.2015 kl. 04:25

3 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Takk fyrir góðan pistil, Halldór.

Steingrímur gerir auðvitað ekkert varðandi ESB stefnuleysi sitt. Enda sama hvað sá maður segir, engu frá honum treystandi. Hann fyrirgerði allan sinn trúverðugleik vorið 2009 og mun aldrei endurheimta hann.´

Hitt er aftur áhugaverðara, hvað Sjálfstæðisflokkur og einnig Framsóknarflokkur, ætla að gera varðandi þessa ólánsumsókn. Þeir eru jú við stjórnvölinn og verða vonandi áfram. En það gæti þó oltið á því hvort þeir hafi kjark til að klára þetta mál og draga umsóknina til baka, fyrir næstu kosningar. Verði það ekki gert má sannarlega segja að formenn þessara tveggja flokka hafi sest á bekk með Steingrími og víst að þeir fá svipaða meðferð kjósenda og hann.

Fari svo má sannarlega biðja Guð að hjálpa okkur. Ef hér verður mynduð ríkisstjórn afturhaldsins, með stuðningi anarkistans, er tími kominn til að skoða flutning úr landi!!

Gunnar Heiðarsson, 13.10.2015 kl. 08:52

4 Smámynd: Jón Valur Jensson

Gott innlegg frá þér, Gunnar Heiðarsson snillingur!

Jón Valur Jensson, 13.10.2015 kl. 10:13

5 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Þistilfjarðarkúvendingurinn hlýtur að vera búinn að á nóg af pólitík. Pólitíkin er allavegana búin að fá nóg af honum. Ef hann sér það ekki sjálfur, er það sorglegt. Tek heilshugar undir með Gunnari, hér að ofan, um að núverandi valdhafar verða að girða sig hressilega í brók, það sem eftir lifir kjörtímabils, ef ekki á illa að fara í næstu kosningum. Seinni hálfleikur er hafinn og ennþa er opinn tékkinn um umsókn.

Göðar stundir, með kveðju að sunnan.

Halldór Egill Guðnason, 13.10.2015 kl. 13:12

6 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

 https://www.youtube.com/watch?v=AIBuEnFQ6ac

.

Atli Gíslason þingmaður VG sannreyndi að samkomulag var á milli forystumanna VG og Samfylkingarinnar um að sækja um aðild að ESB áður en kosið var og sannast því að Steingrímur J laug blákalt að þjóðinni  degi fyrir kosningar. „Ég hef nú sannreynt að fyrir kosningarnar vorið 2009 hafi verið ákveðið í þröngum hópi forystu VG og Samfylkingarinnar, næðu flokkarnir þingmeirihluta, að sækja um aðild að ESB og samþykkja Icesave, skilgetið afkvæmi ESBumsóknarinnar. Sannleikanum var haldið frá mér og ótal fleirum í aðdraganda kosninganna. Ég var afvegaleiddur og afvegaleiddi kjósendur í Suðurkjördæmi. Ég harma það og biðst afsökunar." Sjá hér:

.

http://www.dv.is/frettir/2011/11/7/atli-gislason-eg-afvegaleiddi-kjosendur/ “

.Þessu þarf að halda á lofti endalaust til að sýna fram á hve ömurlegur pólitíkus þessi maður er.  Og flokkurinn sem hann stofnaði. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 13.10.2015 kl. 18:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 40
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband