Leita í fréttum mbl.is

Tók í hnjúkana

í slúttið á Landsfundinum. Það varð eiginlega allt vitlaust á fundinum þegar ungliðarnir létu Unni Brá í gervi herkerlingar dansa fyrir sig um gólfið veifandi rauðu nei-spjaldi áður en framsögmaður hafði talað, æsa sig upp í að fara í óeirðir , öskur og hark til að kveða niður ígrundaðar tillögur Jóns Magnússonar hrl. um málefni útlendinga og flóttamanna. Einstakt upphlaup ofbeldis og skoðanakúgunar á Landsfundi Sjálfstæðisflokksins sem ég hef aldrei séð áður á þessum samkundum og hef ég þó séð ýmislegt af Landsfundum á langri ævi.

Jón Magnússon lögmaður,og fyrrum leiðtogi ungra Sjálfstæðismanna í SUS gerði drengilega grein fyrir sínum málflutningi af ótrúlegri hófstillingu þrátt fyrir skrílslæti ungliðanna úr SUS módel 2015. Og svo af öllum manneskjum Icesave hetjunnar mínar Unnar Brár Konráðsdóttur.

Sama gerði Gústaf A. Níelsson sem neitaði að láta kveða sig í kútinn þegar fundarstjórinn slóst á sveif með upphlaupsfólkinu og vildi reka Gústaf úr pontu. Auðvitað var tillaga Jóns allt of löng og hann hefði betur látið slípa þetta fyrir fundinn.

Báðir þessir menn, Jón og Gústaf, sýndu samt mikið hugrekki og ræðumennsku í því að ganga á móti skrílslátunum einbeittir með sínum skoðunum. Fundarstjóra tókst með naumindum að ná tökum á fundinum, slíkur var æsingur ungliðanna sem nú töpuðu nú algerlega hófstillingunni og góðum siðum, æptu og góluðu og börðu borð. Þeir töpuðu miklu af minni samúð við þessa nasisístísku hegðun. Ég er viss um að Adolf sjálfur hefði verið stoltur af þeim. Þeir virðast vilja hleypa hér inn flóttamönnum í óskilgreindum mæli og ætla að berja sína skoðun í gegn hvað sem tautar og hvað sem kjósendur hugsa. Þurfa ungir ekkert að hugsa um kjörþokka Sjálfstæðisflokksins, langtímahagsmuni þjóðarinar, reynslu nágrannaþjóða hvað þá fólkið í landinu?

Flestir hinir hófsamri landsfundarfulltrúa voru farnir af fundi þegar þetta gerðist þannig að atkvæðagreiðslan var einbeitt með málstað ungra. Ég viðurkenni að ég rauk á dyr bálvondur. En ég náði mér aftur í vetrarloftinu, snéri til baka og kláraði fundinn.

En ég spái því að þarna hafi ungir unnið Phyrrosar sigur. Þetta á eftir að hitta þá fyrir.  Ég er ekki hættur svo mikið er víst. Og ég er illa svikinn ef þeir Jón og Gústaf hafa sagt sitt síðast í málefnum flóttamanna.

Og þjóðin er ekki að taka undir svona boðskap frá Sjálfstæðisflokknum um það að framselja fullveldið og þjóðernið í hendur framandi þjóða. Það verður þjóðin sem mun eiga við þá orð.

Það tók svo sannarlega í hnúkana í lok 42. Landsfundar Sjálfstæðisflokksins undir kvöld.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Saell Nafni.

Vaeri ekki rétt ad ungvidid innan flokksins héldi sinn eigin landsfund og fullordnir sinn, hvor í sínu lagi? Leyfa theim yngri ad semja thad sem theim sýnist og álykta, garga á thá sem ekki falla alveg innan rammans og haga sér eins theim sýnist. Get ekki betur séd en ad vel hafi verid tekid undir tillögur theirra, en ef thetta er afraksturinn, er ljóst ad flest sem frá ungvidinu innan flokksins kemur, er ekki byggt á heilindum. Thetta fólk er greinilega ekki húsum haeft, samkvaemt lýsingu thinni. Sjaldan launar kálfurinn ofeldid, svo mikid er víst.

Enn hef ég ekkert séd um medfred umsóknar okkar ad ESB. Var thad ekkert raett á thessum landsfundi? Thad kemur ef til vill einhverja naestu daga á mbl, eda annarsstadar.

Gódar stundir, med kvedju ad sunnan. 

Halldór Egill Guðnason, 25.10.2015 kl. 23:08

2 identicon

Sæll Halldór - sem og aðrir gestir, þínir !

Ungliða fíflin: flokks félagar þínir, eru svo reikulir og skyni skroppnir að vita ekki (eða:: þykjast ekki vita) að lungi ''flóttamanna'' þeirra - sem Ólöf Nordal / Eygló Harðardóttir, sem og Sigmundur Davíð og Bjarni hyggjast bera á höndum sér inn í landið, er Múhameðskur RUMPULÝÐUR, og sannkallað innrásarfólk, Halldór minn.

Ég skil vil - drengilega viðleitni Jóns Magnússonar / og þeirra Gústafs Níelssonar, að vilja sporna við ósómanum, líkt þér Halldór en, ........ fáið þið nokkuð rönd við reist, á meðan forysta flokks hörmungar ykkar, sleikir út um bæði munnvik sín, í gróðavoninni eftir mútufé Saúdí- Arabísku Wahhabítanna til mosku bygginga og annarrs óviðurkvæmlegs, fornvinur góður ?

Og þið: hinir heiðarlegu / náið ekki að steypa undan þessum affiktum, forystu ykkar - aukinheldur ?

Með beztu kveðjum: af Suðurlandi /    

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 25.10.2015 kl. 23:16

3 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Ekki datt mér í hug að ungliðar úr Samfylkingunni og VG fengju brautargengi á landsfundi Sjálfstæðisflokksins og næðu að kollvarpa öllum þeim gildum sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur staðið fyrir fram að þessu.

Tómas Ibsen Halldórsson, 25.10.2015 kl. 23:53

4 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Hvet alla íhaldssama sjálfstæðismenn að yfirgefa flokkinn og koma til liðs við okkur Hægri græna, eina sanna þjóðholla íhaldsflokknum í dag. Flokkur sem er nú á fullu að byggja sig upp undir forystu okkar góða formanns Helga Helgasonar. www.xg.is       

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 26.10.2015 kl. 00:50

5 Smámynd: Halldór Jónsson

Zumann, já nú er lag fyrir suma. Það eru margir á lausu

Halldór Jónsson, 26.10.2015 kl. 09:04

6 identicon

hahah.. gott á þig! 

aldrei hef ég verið hrifinn af heimdellingum en það var  fallegt að sjá þá reka ykkur gömlu nasistapúngana öfuga út úr ykkar eigin flokki núna um helgina.




Sven (IP-tala skráð) 26.10.2015 kl. 09:15

7 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Ég tek undir með þér. Þarna gengu ungir of langt, bæði varðandi ályktunina og framkomuna. Reyni forystan að vinna eftir þessari samþykkt munu kjósendur flokksins finna sér annað heimili.

Ragnhildur Kolka, 26.10.2015 kl. 09:46

8 Smámynd: Kristmann Magnússon

Og ég sem hélt - að vísu eftir margítrekaðar sögur frá þér Halldór minn - að Landsfundarályktanir væru æðri en lög. Hvað hefur nú breyst ???

Kristmann Magnússon, 26.10.2015 kl. 11:38

9 identicon

Komið þið sæl á ný - Halldór: og aðrir gestir, þínir !

Halldór síðuhafi !

Hvar: á daginn er komið, að Sjálfstæðisflokkurinn er orðinn að STJÓRNLAUSU rekaldi, í höndum undanrennu hvolpsins (Bjarna Benediktssonar) af Engeyjar slektinu:: sem þekkir ekki Keilu frá Þorski / né Kálf frá Lambhrúti, hvað þá annað, svo og hinnar mærðarlegu Ólafar Nordal, svo og Aslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur, sendi skjátu Femínista skrílsins / Pírata / Vinstri grænna og Samfylkingar:: væri þá ekki upplagt - að þið, Jón Magnússon og Gústaf Níelsson skytuð á málþingi með fólki, sem RAUNVERULEGA ber ísl. hagsmuni fyrir brjósti, í stað þess að vera að þjösnazt frekar gagnvart hörmulegri niðurstöðu, hins svokallaða Landsfundar ?

Og - tækjuð að ykkur, að reka Bjarna Bandítta gengið frá, svo eftir yrði tekið.

Það er einfaldlega hneisa ein: að svona gufu lýður, sem um Bjarna liðleskju Benediktsson snýst, fái að slátra hugsjónum ykkar Jóns og Gústafs / sem annarra ykkur skyldum:: hugmynda fræðilega, án nokkurrar almennilegrar viðspyrnu, af ykkar hálfu.

Ígrundið vel - þennan möguleika, Halldór minn.

Með - þeim sömu kveðjum, sem síðustu /   

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 26.10.2015 kl. 12:26

10 Smámynd: Jón Valur Jensson

Ótvírætt eru sannir, gamlir sjálfstæðismenn vorkunnverðir vegna þessarar fráleitu uppákomu allrar, sem landsfundurinn var, Halldór minn. Hvernig datt ykkur í hug að missa svona stjórn á úthlutun fulltrúa-tilnefninga á landsfundinn? Barst engin njósn af því skaðræði, sem til stóð?

Nú er flokkurinn orðinn princíp-mótaður fjandaflokkur hins ófædda barns. Ég tilheyrði honum eins og þingmennirnir Þorvaldur Garðar Kristjánsson, Salóme Þorkelsdóttir, Egill Jónsson á Seljavöllum, Árni Johnsen, Pálmi Jósson og Lárus Jónsson, sem og Sveinn Björnsson skókaupmaður (heiðursfélagi Varðar), sem allir voru lífsverndarsinnar og vildu hnekkja fósturdeyðinga-ólögunum frá 1975, þ.e.a.s. takmarka skaðann af þeim verulega.

Ég sagði mig svo úr flokknum vegna Icesave-málsins í ágústlok 2009, þegar Bjarni formaður og viðhlæjendur hans (mestallur þingflokkurinn) sviku þjóðina í fyrra skiptið í því þjóðarhagsmunamáli (í seinna skiptið var það með "ísköldu mati" Bjarna & Co. á Buchheit-samninga-ólögunum snemma árs 2011, þvert gegn þjóðarhag og lögvörðum rétti ríkissjóðs!).

LÍFSFJANDSAMLEGI FLOKKURINN

Nú hefur landsfundur samþykkt "að Sjálf­stæðis­flokk­ur­inn vilji auka for­ræði kvenna yfir eig­in lík­ama og heim­ila staðgöngu­mæðrun á þeim grund­velli." Án efa er hér verið að vísa óbeint til meints "réttar" kvenna yfir burði sínum og þar með til fósturdeyðinga, "réttar" sem þó er ekki beinlínis tekinn fram í ólögunum nr.25/1975 (heldur miðað þar við meintar málefnalegar indicationir eða ástæður sem háðar eru mati tveggja lækna eða læknis og félagsráðgjafa), enda hafði Alþingi þá vísað frá tillögu kommúnistans Magnúsar Kjartanssoar um "fóstureyðingu að ósk konu".

Stefnan er nú staðfest. Hún er þvert gegn kristnu siðferði. Það er ekki að undra, að Kristinn Ásgrímsson, forstöðumaður Fíladelfíu í Keflavík, maður sem hefur stutt þennan flokk, skuli rita nú: "Ég tel að það sé kominn tími á nýtt stjórnmálafl í þessu landi. Það sem einu sinni var sjálfstæðisflokkur virðist því miður ekki vera það lengur."

Sagt er að unga fólkið hlusti oft með hjartanu, en þegar það eldist, fari það fremur að hugsa með höfðinu. Það er sorglegt fyrir þennan flokk þinn, Halldór, að fjandsemi við lífsréttinn og upptaka ýmissa vinstri-tengdra öfga- eða jaðarmála skuli hafa náð fram að ganga með afgerandi hætti á landsfundinum.

Átt þú í raun heima í þessum flokki lengur, fremur en við Kristinn Ásgrímsson? Ætlar þú að berjast fyrir hinum nýju stefnumálum flokksins?! Er þín og annarra viturra manna í raun óskað við þá stefnumörkun?

 

     Tízkugengi tróð sér fram á Twitter-síðum,

     olli slysi´ á íhalds-slóðum,

     ýtti´ í myrkrið spökum, fróðum.

   

Átt þú ekki í raun fremur erindi í nýjan flokk, sem vill bera fram undir nýjum merkjum góðar og lengi gildar hugsjónir, m.a. kristin siðferðisviðmið og varðstöðu um þjóðarrétt? -- og taka lífinu fagnandi, í stað þessarar vanhugsuðu ofurróttækni ungmenna sem tóku völd í stefnumálum landsfundarins í gær.

Svo minni ég á, að kl. 4 nú síðdegis verður Gústaf Níelsson sagnfræðingur í viðtali á Útvarpi Sögu um landsfundinn og málefni hans.

   

Jón Valur Jensson, 26.10.2015 kl. 14:01

11 Smámynd: Ólafur Örn Jónsson

WOW!!!

Ólafur Örn Jónsson, 26.10.2015 kl. 17:57

12 identicon

"Og þjóðin er ekki að taka undir svona boðskap frá Sjálfstæðisflokknum um það að framselja fullveldið og þjóðernið í hendur framandi þjóða. Það verður þjóðin sem mun eiga við þá orð."

Tja, ætlar ekki Flokkurinn að skrifa undir endanlegt framsal fullveldisins í hendur framandi þjóða á næsta ári er hann skrifar undir TISA og TTIP ?

Síðar vera viðkomandi aðilar dæmdir fyrir landráð og gerðir útlægir.

Jón Páll Garðarsson (IP-tala skráð) 26.10.2015 kl. 19:57

13 identicon

Komið þið sæl - sem fyrr !

Er ekki rétt - að geyma alvöruþrungin orð Jóns Páls Garðars sonar, um TISA og TTIP óskapnaðina í hugskotum okkar, gott fólk ?

Hvorutveggju: (TISA og TTIP) klárlega, FULLKOMNIR tilræðis burðir, við hvert þjóðfélag veraldar / við nánari skoðun !

Hinar sömu kveðjur - sem aðrar og áður /  

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 26.10.2015 kl. 20:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 58
  • Frá upphafi: 3418161

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 54
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband