Leita í fréttum mbl.is

Hrafnaþing

var vel lukkað á ÍNN í gær þó að gulleit froskaásjóna stjórnandans Ingva Hrafns með milligöngu Skype sé pirrandi til að byrja með. Reksturinn er greinilega að verða mjög arðbær úr því að menn geta haft fasta búsetu erlendis og send spekina í gegn um netið. Er ekki bara betra að senda viðmælendurna til Key Largo og taka þættina upp þar? Allir jafn sólbrenndir og sælir? Jæja annars, ég er bara að stríða Ingva kallinum sem er ágætur og honum sé lof og prís fyrir þessa hvað mest vitrænu þætti sem sjást og heyrast i íslenskum fjölmiðlum.Þetta er ágætt hjá honum og nýjung líka. Það sem þar er sagt á Hrafnaþingum væri verra ósagt.

Ingvi Hrafn kom með spurningu sem ég skildi vel. Af hverju mega menn ekki setja niður ódýran sökkul á höfuðborgarsvæðinu og setja þar ofan á gámahús eða slík einföld hús svipað og háskólinn á Bifröst gerði á sínum tíma. Svo má bara taka húsin og flytja þau. Leysa húsnæðisvandræðin á verði sem ungt fólk getur borgað? Setja svo ekki evrópska byggingareglugerð sem keyrir upp byggingakostnað um 15%?

Ég er búinn að reyna að ná eyrum bæjarpólitíkusa árum saman með einhverjar svona hugmyndir en algerlega án árangurs. Þeir sjá ekkert annað en fallbyssuheld steinsteypuvirki til fimmhundruð ára og yfirtökugjöld sem taka til sín þriðjung eða helming byggingarkostnaðarins áður en skóflu er dýft í jörð. Tala svo fjálglega um að leysa þurfi húsnæðismál unga fólksins svo það fari að kjósa Sjálfstæðisflokksins en ekki Pírata.

Það er á sveitarsjórnarstiginu sem húsnæðisvandamálin byrja og eru. Hvort sem er í þeim bæjarfélögum þar sem villtu vinstrin ráða eða íhaldið. Ég er hættur að nenna að ræða þetta á þeim vettvangi svo forstokkaður sem fulltrúarnir yfirleitt eru.

Jón Kristinn Snæhólm var glöggskyggn að vanda þegar hann ræddi vanda Sjálfstæðisflokksins. Það er nokkuð ljóst að flokkurinn nær sér aldrei á strik ef rétt er að fylgi hans sé  komið niður í 17 % í Reykjavík. Sé flokkurinn í meira en tuttugu prósent á landsvísu bendir þetta þá ekki til að sérstök vandamál blasi við flokknum í Reykjavík? Fulltrúarnir séu hvorki  að ná til fólksins sem kaus þá hvað þá annarra?.

Er ekki Sjálfstæðisflokkurinn allt í kringum Reykjavík með mun meiri hundraðshluta?  Myndi maður yfirleitt láta sjá sig meðal almennings ef maður væri borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík með þetta rekord? Kannski skýringin á því að maður fréttir lítið til þeirra yfirhöfuð? Einhver minnimáttarkomplEss þjaki þá um hábjartan Daginn eins og ýmsa unglinga í gamla daga?

Þannig er ekki aðeins að búast við öðru en að niðurlæging Sjálfstæðisflokksins haldi áfram  það sem lifir þessa kjörtímabils og heldur það næsta líka vegna venjulegrar sjálfsánægju fólks sem gerir það blint á sjálft sig í pólitík. Forsendur framfara láti því bíða eftir sér til tjóns fyrir þjóðina.Því hér á landi hafa aldrei orðið teljandi framfarir nema  áhrifa Sjálfstæðisflokksins gæti sem víðast.

Björn Jón Bragason íþróttakappi, sagn-og lögfræðingur,magister í "Steingrímsfræðum" eins og Jón segir, var einnig í þættinum og lagði gott til. Hann er manna fróðastur um fyrirbrigðið Steingrím J. Sigfússon og VG. Allir eru þeir sammála um að þetta tvennt hafi aldrei verið aðskilið. Steingrímur er flokkurinn og ræður öllu. Þessvegna er Björn Valur kjörinn varaformaður og fulltrúa unga fólksins hafnað.Við áhorfendur hljótum að fagna kjöri varaformanns VG alveg ógurlega.

Bjön Jón er að verða ritstjóri vikublaðsins Reykjavíkur.Blað langafa míns Jóns Ólafssonar hét þessu nafni og ég forsómaði að taka þetta nafn þangað til Ámi umboðsmann  tók það til sín. Svona blað hefði geta orðið baráttutæki Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík sem bitið hefði.En borgarfulltrúarnir höfðu engan áhuga á slíkum tillögum.

Undir ritstjórn Ingimars Karls hefur þetta blað verið vinstrisinnað blað sem hefur gapað upp í borgarstjórnarmeirihlutann í Reykjavík og Hjálmar Sveinsson, sem er mesta ógæfa í skipulagsmálum sem dunið hefur yfir nokkra borg að margra dómi. Vonandi verða nú þáttaskil í stefnu blaðsins og flatbyggðarsjónarmið þeirra EssBjarnar, Hjálmars og Dags Bé. í skipulagsmálum fari að víkja fyrir nútímanum með nýjum ritstjóra.

Birni Jóni er óskað velfarnaðar með sitt blað(hann mætti senda eintak í Kópavog) og vonandi heyrum við fljótt aftur í honum og Jóni Kristni á Hrafnaþingi hjá farfuglinum Ingva Hrafni.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Halldór, við sem munum tímana tvenna.  Þar má  finna margt í minningarskjóðunni.  Ég sem þetta skrifa man höfuðborg landsins Reykjavík í stöðu  þar sem framtaksleysi og doði hvíldi yfir öllu um mánaða og árabil. Sem betur fer á þeim tíma urðu borgarstjórnarkosningar og borgarbúar hristu af sér doða og slen, og til varð ný borgarstjórn. Við oddvitastöðu í þeirri borgarstjórn tók ungur maður Davíð Oddson.  Var sem  aðgerðarleysi og doða væri svipt sem hulu  af Reykjavíkurborg. Borgin öðlaðist nýtt líf, og tifaði af lífi.  Þetta framansagt er úr minningarskjóðunni.

Hvernig er ef horft er nú  yfir Reykjavíkurborg. Skuldir Reykjavíkurborgar sagðar hrannast upp og fara í dag með himinskautum.  Samþykktir eru  gerðar varðandi heimspólitík, sem er  ekkert  fyrir eða í anda borgarbúa nema síður sé ( og því síður landsins alls).  Reykvingar höfum öðlast skipulagssnilling, Hjálmar Sveinsson sem gengur með reglustriku um Borgina og mælir út hvernig megi þrengja götur og tefja fyrir umferð borgarbúa.. Kjánarnir sem stjórna og vita af húsnæðiseklunni í Reykjavík, reisa bara fuglahús( á Hofsvallagötu ).  Moka uppp jarðvegi í Vatnsmýrinni sem er dýrasta byggingasvæði sem finna má innan lands Reykjavíkur.   Ósköp er að vita hvað fáir Reykvíkingar vita hverjir það eru  sem eru fulltrúar   mótvægis við ríkjandi óráðsíu fulltrúa, Reykjavíkurborgar.  Vonandi vitkumst við á komandi mánuðum  og augu  opnist, og okkur beri gæfu til að færa Reykjavíkurborg nýja og betri  stjórnendur.

Eðvarð Lárus Árnason (IP-tala skráð) 1.11.2015 kl. 00:19

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Ég heyrði þær tölur að skuldir Borgarsjóð yxu um 700.000 kr. ám klukkutíma, 24/365. Og Reykvíkingum virðist bara vera sama.Allaveg tala þeir í stjórnarandstöðunni ekki um þetta út á við enda heyrist líka sjaldan nokkuð frá þeim. Eða heyrir þú betur en ég?

Halldór Jónsson, 1.11.2015 kl. 13:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 4
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 3417959

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 48
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband