Leita í fréttum mbl.is

Getum við gert betur?

er fyrirsögn á grein sem hann Baldur okkar Ágústsson skrifar í Morgunblaðið á aðfangadag. Ég er nokkkuð viss um að greinin hlýtur velvild hjá mörgu´af þögla fólkinu en æsir eithvað af GGF liðinu upp. Þó ég sé nú yfirleitt ekki margmáll um kirkju og kristni þá styð ég þjóðkirkjuna og  stjórnarskrána okkar hvað hana varðar í óbreyttri mynd. Greinin er svona en ég feitletra að vild sjálfur:

"Jólin eru góður tími til að velta því fyrir sér hversu mótað íslenskt þjóðfélag er af kristinni trú - hve miklu hún hefur skipt okkur gegnum aldirnar. Að segja satt, standa við gefin loforð og sýna kærleika.

Allt eru þetta mannkostir sem tryggja okkur betra líf er þeir fylla okkur af heilindum og leyfa okkur að vænta hins sama af öðrum. Kenningar biblíunnar eru um margt undirstaða þeirra laga sem við höfum sett þjóðfélagi okkar. Svona fylgir kristnin okkur fram eftir ævi og verður okkur viðmið um hvað er rétt og hvað rangt - og blessunarlega mörgum ljósið í lífi þeirra. Til kirkjunnar leitum við þegar sorgin knýr dyra, hátíðlegir gleðidagar ganga í garð, þegar við biðjum litlum börnum okkar Guðs blessunar og á sérstökum hátíðisdögum kirkjunnar - eins og um jól.

Þegar við lítum til þess hverju kristin trú hefur áorkað og eins hins, ranglætis og mannvonsku sem hún hefur komið í veg fyrir, hlýnar okkur um hjartaræturnar. Þetta gerist því oftar sem við heyrum af þjóðfélögum með allt annað gildismat og önnur trúarbrögð sem verða þeim afsökun, ef ekki beinlínis ástæða fyrir grimmd og líkamsmeiðingum auk andlegrar kúgunar.

Sorglegt er að sjá fólk, sem fyrir slíku hefur orðið, flutt til um hálfan heiminn til Íslands undir yfirskini björgunar og velgjörnings - sem í hinni stóru heildarmynd heimsins yfir þær milljónir sem bágt eiga, er ekki dropi í hafið. Ekki einn dropi - og samt með ófyrirsjáanlegum afleiðingum í marga ættliði, svo vísað sé til reynslu annarra þjóða. Víða heyrist líka minnst á ISIS og sagan af Trójuhestinum forna rifjuð upp.

 

Fögur orð eru ekki nóg

 

Ósjálfrátt leitar hugurinn til orða forsætisráðherra: »Að vel þurfi að taka á móti þessu fólki.« Vissulega falleg orð, en þó, sé til þess litið að stjórnvöld eiga að sjá um velferð Íslendinga sjálfra, þá hlýtur maður að spyrja: »Hvernig hafa þau tekið á móti öryrkjum og öldruðum, fátækum og sjúkum?« Fólki af eigin húsi. Þarf e.t.v. að minna stjórnvöld á að þau eru í vinnu hjá íslenskri þjóð?

 

Jafn fögur og trúin og kærleikurinn eru er ekki hægt að fylgja honum blindandi - það er að bjóða hættunni heim. Þannig er nú þessi heimur og auðséð að honum er enn ekki stjórnað af konungi konunganna.

 

Þó að það flóttafólk sem hingað leitar sé ekki beinlínis á okkar ábyrgð er skiljanlegt að margir finni til með því og vilji hjálpa. Það, hins vegar, að flytja fólk inn í þeim mæli að gagn sé að - ef um »framtíðargagn« er að ræða, er ekki bara hæpið heldur beinlínis ógerlegt. Þetta sjá þeir sem sjá vilja. Spurningin er eiginlega; fyrir hverja er þessi dropateljara flutningur? Er risinn vaxandi hjálpariðnaður á Íslandi sem þarf að sjá fyrir verkefnum? Starfar hér fólk sem ekki nægir, í nafnleysi, að rétta nauðstöddum hönd heldur hefur þörf fyrir að láta þakka sér fyrir - helst með tárvotum augum? Spyrji nú hver sitt hjarta og svari heilt.

 

Sláandi er þegar formaður samtaka löggæslumanna talar hreint út frá reynsluheimi sínum og faglegri þekkingu þá sætir hann brigslyrðum, ásökunum og uppnefnum - sem raunar segja meira um þá sem slíku beita en þann sem fyrir verður. Hafi hann - Sigurður Magnússon - þökk fyrir sitt framlag.

 

Kristin trú hefur fylgt Íslendingum í eitt þúsund ár. Það segir meira en mörg orð um hinn heiðna sið og trúarskiptin að forfeður okkar, víkingarnir, sem voru skiptir í afstöðu til þess hvort ætti að breyta um trú í landinu, settu Þorgeir Ljósvetningagoða til að taka ákvörðun og hétu allir að hlýða úrskurði hans. Ó, að við ættum slíkan stjórnmálamann í dag. Eftir allnokkra umhugsun tjáði Þorgeir þingheimi: »Það mun vera satt, er vér slítum í sundur lögin að vér munum slíta og friðinn.«

 

Þorgeiri var sem sagt ljóst að tvenn trúarbrögð í landinu myndu valda ófriði og styrjöldum. Fáein undantekningaratriði voru gefin ásatrúarmönnum til að milda þeim breytinguna - kristnum að meinalausu.

 

Ýmsir hafa síðan tekið sér penna í hönd og hafa þar vinstri menn farið fremstir í lagasetningu um »trúfélög« en aðrir setið mis-skömmustulegir hjá, þegar dýrar lóðir hafa verið gefnar fulltrúum fjarlægra trúarbragða sem refsa innfæddum og ferðamönnum fyrir að hafa svo mikið sem biblíu í farangri sínum. Nefndir vinstri menn nota hvert tækifæri til að mæra það sem þeir kalla fjölmenningarþjóðfélag en ég er ekki viss um að það sé til frekar en þorskýsa.

 

Hafi þeir allir skömm fyrir en Þorgeir Ljósvetningagoði sérstaka þökk. Enginn hefur skrifað heilla orð um trúmál og af meira innsæi en hann - í þúsund ár. Meira að segja forystufólk hinnar lútersku kirkju sem í árhundruð var okkur sameiningartákn berst ekki fyrir styrk hennar og tilveru, heldur lyppast niður gagnvart framandi trúarbrögðum - haldandi að þannig geti »öll dýrin í skóginum verið vinir«.

Þeir geta gert betur, svo ekki sé dýpra í árinni tekið. Eftir stendur, hvað getum og viljum við kristnir gera flóttamönnum til hjálpar?

Undirritaður mun á næstunni leggja fram hugmynd hér í blaðinu sem verndar bæði hina landlausu og íslenskt þjóðfélag, menningu og tungu.Guð gefi okkur gleðileg jól og veiti landi og þjóð blessun sína."

Mér finnst hugsun Baldurs vera góð og umhugsunarefni. Getum við ekki gert betur með því að hjálpa nauðstöddu fólki í heimkynnum þess heldur en að skapa því einangrun og bæði því og innfæddum félagslegar kvalir í framandi samfélagi eins og Valdimar Jóhannesson lýsir reynslu Svía svofellt:

 

"....Efna - og velferðakerfi EU ber ekki þessa þjóðflutninga framandi þjóða, sem ekki bara, markvist slátrar kristnum í heimalandinu, heldur logar allt nú þegar í Evrópu innbyrðis milli þessara KLANA í flóttamannabúðunum, því það er ekkert annað sem þetta fólk er.  Evrópa hefur áttað sig á því að fjölmenning er draumórar og blekking.

Þetta flóttafólk kemur ekki til með að vinna fyrir sér næstu t,d, sjö árin nema að mjög litlu leiti. Aðeins þeir sem hafa menntun fá vinnu og svo að sjálfsögðu þessar þúsundir sem hverfa undir jörð , því þeir eru glæpamenn, sem lifa á örbyrgð sambræðra sína. Atvinnumálastofnun Svíþjóðar hefur sent ólæsa og óskrifandi araba og sómalíusvertingja á ymiss námskeið, til að dylja atvinnuleysið. Sumir hafa bara verið tvo ménuði í landinu.

Ökukennaraskólar i Svíþjóð eru með svona námsmenn í hundruðum til að veita þeim meirapróf fyrir þyngri farartæki eins og stætisvagna, rútur og vöruflutningabíla, Þegar þeim er sagt að þeir geti ekki lært, því þeir hafa ekki getuna, þá verða þeir hótfullir og hafa mjög stuttan kveikjuþráð. Þeir kvarta yfir því að kennararnir eru konur og neita að hlýða fyrirskipunum.

Sænskuþekkingin er svo bágborin að margir grípa ekki orðið "Bromsa". Tryggingafélög neita að tryggja farartæki hjá fyrirtækju, sem ræður þetta fólk í vinnu, vegna óhappa og slisahættu, sem þegar hefur komið fram í æfingunum. Sumir eru það hortugir að þeir beint líta niður á kennarana.

Það er skýrt tekið fram hjá Atvinnumiðluninni að múslimar eigi að ganga fyrir Svíum í vinnu, þótt Svíarnir hafi próf og getu til að sinna þessum verkum. Ómældar hundruðir milljóna til spillis bara í þessu heimska dæmi..."

Er það ekki í raun merkilegt að GGF skuli útiloka með  öllu að vandamál muni fylgja innflutningi flóttamanna  og hælisleitendum ótengdum flótta undan stríði?  Að það skipti ekki máli fyrir aðlögun hvort þetta fólk sé kristið eða múslímar af því að búið sé að ákveða að á Íslandi ríki fjölmenning?

Já, líklega getum við öll gert margt betur eins og hann Baldur okkar Ágústsson segir.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég las grein Baldurs og var hjartanlega sammála honum. Í norrænu blöðunum er mikið fjallað um íslamtrúna. Í Jótlandspóstinum var frá því greint, að erkibiskupinn af Kantaraborg hefði sagt, að IS gæti útrýmt kristindómnum. Og í Aftenposten er viðtal við rithöfundinn Hege Storhaug út af best seldu bók hennar, sem fjallar um Múhameð og fylgismenn hans. Þar segir hún m.a., að íslam sé engin venjuleg trú. Bók hennar hefur selst í 20 þúsund eintökum til þessa, og hún segir það vera vegna þess, að þessi bók hafi komið fram á réttum tíma. Þetta er athyglisvert viðtal við hana, sem vert er að lesa yfir. Gleðileg jól.

Guðbjörg Snót Jónsdóttir (IP-tala skráð) 25.12.2015 kl. 13:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 40
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband