Leita í fréttum mbl.is

Arabiska vorið

gefur að líta á þessari mynd. Þarna marsérar sýrlenst fólk á flótta. Móðirin ber tvö börn og dregur það þriðja. Vopnfærir arabmotherkarlmenn fylgja henni fast eftir.

Hvernig í veröldinni ætlumst við til að þetta fólk samlagist okkur við það eitt að flytja hingað? 

Það mun taka heila kynslóð fyrir þetta fólk að fóta sig meða kristinna þjóða og taka upp þeirra gildismat. Þetta er fornaldarfólk með óyfirstíganlega erfiðleika þess vegna.

Þarna erum við að horfa á arabiska vorið leysast upp í kulda og trekki.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Múslimar sem hópur kemur aldrei til með að aðlagast vestrænum háttum og lýðræði, það er útilokað. Einstakir múslimar gætu það, en þeir eru fáir og langt á milli þeirra.

Ef menn horfa yfir sviðið síðustu áratugi, þá hefur breytingin í hinum íslamska heimi verið til harðari Sharia laga og hvergi í lýðræðisátt. Land eftir land hefur farið þessa leið, og þar sem önnur trúarbrögð eru til staðar, hafa íslamistar hafið útrýmingarstríð.

Þúsundir múslima hafa flykkst frá Evrópu og Ameríku og gengið til liðs við hin ýmsustu öfgahópa. Þetta eru annarrar og þriðju kynslóðar múslimar, sem segir okkur, að það er ekki um neina aðlögun að ræða.

Hilmar (IP-tala skráð) 1.2.2016 kl. 12:46

2 Smámynd: Einar Karl

Ég lít á myndina og sé tíu einstaklinga. Þú sérð "fornaldarfólk". Samt veistu ekkert um þetta fólk, hvað það starfaði, hvað það er menntað, hvort það bjó í borg eða sveit, o.fl. o.fl.

Þú dæmir fólkið fyrirfram.

Fyrirfram-dómar, öðru nafni FORdómar.

Það ert þú sem ert fornaldarmaður, Halldór Jónsson.

Einar Karl, 1.2.2016 kl. 13:30

3 Smámynd: Jón Þórhallsson

Ef að þú ert ósáttur við stefnu sitjandi ríkisstjórnar að þá skora ég á þig að mæla með þessum flokki:

http://thjodarskutan.blog.is/blog/thjodarskutan/entry/2159725/

Jón Þórhallsson, 1.2.2016 kl. 14:19

4 Smámynd: Halldór Jónsson

Einar Karl,

Ég hygg að jafnvel Egill Skallagrímsson, Gunnlaugur Ormstunga eða Gísli Súrsson hefðu vorkennt kellingarhróinu og boðst til að bera eitthvað fyrir hana. Nem þú sjáir það á þeim að það fari alveg að gerast. 

Halldór Jónsson, 1.2.2016 kl. 17:23

5 Smámynd: Halldór Jónsson

Ég geri ráð fyrir því að þér dytti ekki í hug að bjóða kellingunni aðstoð. Enda líklega ekki til í siðabókum kommanna.

Halldór Jónsson, 1.2.2016 kl. 17:25

6 identicon

Ósköp er þetta aumleg færsla.

Hilmar (IP-tala skráð) 1.2.2016 kl. 18:39

7 identicon

Sýrlenskir flóttamenn og konur eru alls konar og rétt eins og við vesturlandabúar vilja þau helst bera sjálf það sem er þeim kærast, eins og þessi sýrlenski pabbi hér: http://www.bbc.com/news/world-middle-east-34085705

Það er býsna fornaldarlegt að ætlast til að karlar beri "eigur" óskyldra kvenna nú á tímum vestræns jafnréttis.laughing

Eygló (IP-tala skráð) 1.2.2016 kl. 20:04

8 Smámynd: Einar Karl

Halldór,

ég myndi bjóða konunni að koma til Íslands, ef ég fengi einhverju ráðið.

En þú vilt ekkert af henni vita, af því þú ert búinn að dæma hana fyrirfram, að hún geti "ekki aðlagast".

Einar Karl, 1.2.2016 kl. 21:09

9 identicon

Einar Karl, af hverju býðurðu henni þá ekki til Íslands og berð kostnaðinn af því sjálfur? Eða ertu að reyna að sýnast vera góður og láta svo aðra borga fyrir þína góðsemi? 

sh (IP-tala skráð) 1.2.2016 kl. 23:00

10 identicon

Ég las viðtal við þýska konu sem fór að vinna á flóttamannabústað í Þýskalandi af mannúðar ástæðum. Hún gafst upp eftir fjóra mánuði eða viku áður en Alexandra Mezher var myrt á samskonar heimili í Mölndal í Svíþjóð. Hún sagði að þarna voru bara ungir menn og að kanski væru 10% araba þokkalega siðaðir en restin eru siðleysingjar upp til hópa.

Það er alltaf leiðinlegt þegar fólk með reynslu talar svona um múslima. Þarna voru allavega engir fordómar, en hrein uppgjöf gagnvart þessu fólki, Einar Karl.

Valdimar Jóhannsson (IP-tala skráð) 1.2.2016 kl. 23:28

11 identicon

Þetta var sú alaumasta færsla af mörgum aumum sem ég hef lesið á þessu bloggi.  Fordómafullur maður að tala illa um fólk sem hann þekkir ekki neitt.  Ekki beint kristilegt hugarfar og auðmýkt heldur gamaldags blaður og alhæfingar.

Friðrik Már Jónsson (IP-tala skráð) 2.2.2016 kl. 06:08

12 Smámynd: Halldór Jónsson

Friðrik Már

er það að tala illa um fólk þegar maður undrast af hverju þeir hjálpa ekki konunni. En við vitum líklega báður af hverju þeir gera það ekki. Það gera siðir þeirra og uppeldi. Konan er lægri vera fyrir þeim og ekki manneskja nema að takmörkuðu leyti. Ég hef séð svona hegðun gagnvart konum með eigin augum í þeirra löndum hér áður fyrr.

Einar Karl,

þú vilt ekki gera neitt annað fyrir hana en bj+óða henni hingað og lát mig um að bera fyrir hana. Þú sérð ekkert athugavert við þetta

Halldór Jónsson, 2.2.2016 kl. 15:06

13 Smámynd: Theódór Norðkvist

Náungakærleikurinn lekur svo gjörsamlega af Einari Karli, að hann hlýtur að vera búinn að bjóða þessari fjölskyldu að búa heima hjá sér og halda henni og afkomendum fjölskyldunnar uppi næstu 100 árin.

Æ, ég gleymdi mér. Ég gleymi alltaf að Einar Karl er vinstrisinni, sem þýðir að hann er bara miskunnsamur þegar aðrir en hann sjálfur eiga að borga brúsann.

The problem with socialism, is that in the end, you run out of other people's money. (Man ekki hver á þessa tilvitnun.)

Theódór Norðkvist, 2.2.2016 kl. 16:05

14 Smámynd: Einar Karl

Það getur auðvitað vel verið að þetta séu helvítis karlrembur og aumingjar ungu karlmennirnir sjö, sem láta sig engu varða örlög og byrðar konunnar. Kannski eru þeir uppfullir af fordómum og finnst það ekkert vera sitt hlutskipti að hjálpa þessari konu, finnst hún bara vera fornaldar-múslimakelling.

Er það ekki akkúrat þannig sem þú hugsar, Halldór?

Einar Karl, 2.2.2016 kl. 17:36

15 Smámynd: Halldór Jónsson

Það getur auðvitað vel verið að þetta séu helvítis karlrembur og aumingjar ungu karlmennirnir sjö, sem láta sig engu varða örlög og byrðar konunnar.

Er það ekki akkúrat þannig sem þú hugsar, Halldór?

Já ég held að ég hafi verið að benda á akkúrat þetta. En fyrir það er ég auðvitað helvítis fornöld í augum þeirra sem best vita

Halldór Jónsson, 2.2.2016 kl. 18:26

16 Smámynd: Jónas Gunnlaugsson

"Fjölmenningarsamfélagið er lífslygi." Hver mælir svo?

Halldór er að segja okkur að við eigum að stöðva Obama og meðreiðarsveina  í að sprengja allt í tætlur í Sýrland og Arabaheiminum.

Þegar þetta bandalag hefur hrakið fólki á vergang, eru þeir sem ekki eru Súnítar, hraktir, gerðir að þrælum eða drepnir.

Mér sýnist að þeir sem vara við flóttamannastraumnum, séu hinir sönnu mannvinir, og vilji láta fólkið fá frið til að lifa í löndunum sínum.

Það eru engir, sem vilja láta reka fólkið í hafið og bjarga síðan einhverjum örfáum, til að geta sagt:        Sjáið þið hvað ég er góður.

Nú tökum við okkur allir til við að hjálpa fólkinu að byggja upp löndin með USA og Rússa sem forustu sauði, strax í dag.

Auðvitað vitum við allir að Múslimar hafa byggt sín hverfi í löndum Evrópu og reyna að framfylgja þar Saria lögum.

Við viljum ekki að konur séu umskornar og erum til búnir að fara allir í læknisskoðun, til dæmis á tveggja ára fresti til að stöðva þennan ósóma.

Við vitum einnig að Múslimum í Evrópu fjölgar um 8,1 á fjölskyldu en fjölgun í Evrópusambandinu er 1,4 ca, (fertility rate) (athuga rétta tölu)

Hvað er feminismi, er hann að eyða sjálfum sér?

Við erum smá skinsamir, og skiljum að þá verða Múslimar fleiri eftir tvo til fjóra áratugi.

Við höfum ekki áhuga á að fá Saria lög yfir okkar afkomendur.

Að sjálfsögðu skiljum við að við verðum að hætta að drepa ¼  eða 1/5 af ófæddum börnum.

Að sjálfsögðu skiljum við að við verðum að hætta að telja konunum trú um til  að þær fái sæmileg laun verði þær að þykjast vera karlrembur.

Evrópa er að drepa sjálfa sig með því að neyða konurnar til að þykjast vera karlrembur, og þá hafa þær ekki tíma til að sinna sínu hlutverki sem er að skapa framtíðina, okkur, karla og konur.

Vandamál Evrópu

Egilsstaðir, 02.02.2016  Jónas Gunnlaugsson

Obama Refuses To Allow Yazidi And Assyrian Christians Fleeing ISIS To Enter United States

Í þessari slóð eru fleiri „fróðlegar“ slóðir.

Jónas Gunnlaugsson, 2.2.2016 kl. 23:40

17 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Einar Karl Hvaða fótbolta liði heldur þú með. Hvaða landi heldur þú með þegar okkar fólk er að spila leik gegn erlendu liði.

Ég hef búið innan um Múslíma drukkið te með þeim í mörgum þjóðum og fullt af góðu fólki en nú ætla ég að biðja þig að taka eftir. Ég hef líka séð fólk hálshöggvið og fólk æpa að gleði og ánægju eins og þegar liðið sem þú heldur með gerir mark. Já Einar Karl ég hef líka séð fólk höggið fyrir smá þjófnað og kvenfólk grýtt fyrir að álpast út í stuttu pilsi. Þetta eru allt skipanir frá guði þeirra. Ég hef líka séð heila flugvél brenna með yfir 300 manns þar sem hún fékk ekki að nauðlenda nógu snemma þar sem Sádíu kóngur góður varð að fá rými. Það er sama hve gott eða slæmt þetta fólk er þau ráða ekki heldur Iman og æðsta ráðið sem allir eru hræddir við. Já Lögregluprestarnir sem lemja fólk með 6 feta 2ja tommu þykkum lurkum fari þau ekki að lögum Ílams. Þetta fólk er það heppna hin eru drepin.      

Valdimar Samúelsson, 3.2.2016 kl. 09:56

18 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Afsaka villur en ég verð dapur þegar fólk/Íslendingar sjá ekki að Íslam og öfgahópar stjórna en ekki góða fólkið.

Valdimar Samúelsson, 3.2.2016 kl. 10:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 56
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 52
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband