Leita í fréttum mbl.is

Dýrasta skipið

sem Íslendingar hafa byggt til þessa var sagt að væri Polarsyssel sem Fafnir Offshore lét byggja.

Ég fór að lesa Orkublogg Ketils Sigurjónssonar sem ég geri greinilega of sjaldan. Þetta er vandað blogg og skrifað af þekkingu.

Því þarna sé ég leiðinlegar fréttir  af útgerð skipsins Polarsyssel sem ég fylgdist með dálítið þegar það var í smíðum. Þá fannst mér það vera mikil gleðitíðindi að íslenskt útrásarfyrirtæki Fáfnir Offshore sem Steingrímur Erlingsson útgerðarmaður var frumkvöðull að, stæði í slikri útrás.

Félag sem hann stofnaði, Fafnir Offshore, fékk nefnilega margra ára þjónustusamning við norska sýslumanninn á Svalbarða um að þjónusta eyjuna og skeggjana þar á. Skipið átti svo að harka á olíumarkaði hina mánuðina, en þá var mikið búmm í öllu sem olíu tengdist og allir sem vetlingi gátu valdið þustu tl Noregs að vinna. Ég gat ekki farið með vegna aldurs né heldur fékk ég tilboð að gerast hluthafi í Fáfni enda líklega kominn á tíma.

Það breytir því ekki að ég gladdist að sjá þetta verða til. Það streymdu þarna að öflugir hluthafar og stórmenni og ég vissi ekki betur en allt væri á réttri leið.

Nú segir Ketill 21.1.2016 :(þessi Bloggari feitletrar)

„Fyrir um tveimur árum ákváðu íslenskir bankar að gerast bæði lánveitendur og fjárfestar í þessari þjónustuskipaútgerð. Tímasetningin hjá bönkunum íslensku gat vart verið óheppilegri. Því með fallandi olíuverði hefur stór hluti af verðmæti bæði Havila og Havyard á hlutabréfamarkaði gufað upp. Havyard er í verulegum vandræðum og Havila er á barmi gjaldþrots. Augljóst er að helsta ástæða þess að skipaútgerð Sævik nálgaðist fé hjá íslenskum bönkum er að þeir bankar voru tilbúnir í meiri áhættu en norskir bankar. Íslenskir bankar komu einnig að fjármögnun Fáfnis Offshore. Þar er skipið Polarsyssel með ónóg verkefni og engin verkefni hafa verið tryggð fyrir hitt skipið;Fáfni Viking. Sem Fáfnir Offshore á að fá afhent frá Havyard á næsta ári; 2017.

Þarna er þó tækifæri til að bjarga verðmætum. Þar skiptir miklu að félagið gæti sín á því að uppfylla skilyrði í samningi sínum við Sýslumanninn á Svalbarða, en þar hefur stjórn fyrirtækisins undanfarið verið á mjög hálum ís. Ekki síður skiptir miklu að fyrirtækið nái að finna farsæla lausn vegna Fáfnis Viking. Þar er sennilega besta tækifærið fólgið í því að nýta eftirspurn vindorkuiðnaðarins eftir þjónustuskipum.vikingvindur

 

Í Norðursjó, þ.e. við strönd landa eins og Bretlands, Danmerkur og Hollands, hefur verið góður vöxtur í byggingu stórra vindrafstöðva. Þessi vindorkuver í hafinu þurfa talsverða þjónustu og til þess eru smíðuð sérstök þjónustuskip sem kallastService Operation Vessels (SOV). Það væri vafalítið skynsamlegast fyrir Fáfni Offshore að breyta hönnun Fáfnis Viking úr PSV í SOV og um leið tryggja skipinu samning í vindorkuiðnaðinum í Norðursjó. Þar er t.a.m. þýska Siemens umsvifamikið og hefur undanfarin misseri verið að leita eftir aukinni þjónustu SOV í tengslum við sinn rekstur. 

Helsti ókosturinn við að breyta hönnum Fáfnis Viking úr PSV í SOV er sá að það væri nokkuð kostnaðarsamt. Á móti kemur að skipasmíðar sem flokkast undir SOV eiga mun greiðari aðgang að fjármögnun, þar sem lánatíminn er lengri en ef um er að ræða PSV. Þar að auki bjóðast svona skipum mjög langir þjónustusamningar. Þess vegna er rekstur slíkra skipa augljóslega áhættuminni en gerist í PSV-bransanum. Þetta væri því farsælasta leiðin fyrir Fáfni Offshore vegna Fáfnis Viking.“

Ekki er mér ljós hver sé aðkoma Ketils að Fafnir Offshore en hann virðist býsna vel inni í atburðum sem þar gerast. Í fréttum var að Steingrími Erlingssyni var sagt upp störfum hjá félaginu, en ekki hef ég spurnir af því af hverju.  

Nú er ég með þér sem sé orðinn eigandi að þessu með öðrum landsmönnum í gegn um tvo íslenska ríkisbanka. Þetta mál kemur mér þá líklega við. Auk þess sem ég hef grun um að Lífeyrissjóðurinn minn hafi lagt í þetta fé og muni mögulega lækka lífeyrinn minn ef snillingarnir sem ég kaus aldrei og ekki til að stjórna sjóðnum mínum,  tapa fé úr honum einu sinni enn. Hvaðan kemur mönnum svona meðfædd snilld til að stjórna lífeyrissjóðum án þess að hafa lært grunnatriði í fjármálum eða hvað annað en að kunna á bíl?

Hvað er að gerast þarna? Ég hef úr fjölmiðlum upplýsingar um að eitthvað sé sé þess valdandi að mjög svo hagstæður samningur við Sýslumann um Polarsyssel og Svalbarða sé jafnvel í uppnámi og framlenging sem boðin var á honum um 3 mánuði árlega sé í vindinum líka. Steingrímur vinur minn er fámáll og vísar á stjórnina í Fafnir Offshore og stjórnarformanninn nýja Jóhannes sem kom í stað Bjarna nokkurs Ármannssonar sem landsmenn þekkja fyrir ýmsar tiltektir í fjármálum.

En ég þóttist skynja af öllu þessu að ekki er allt í lagi eins og Ketill Sigurjónsson staðfestir núna með skrifum sínum og ræðir um opinskátt.

Nú er mér sagt utan úr bæ að jafnvel standi til að endurskipuleggja  félagið eins og það er kallað  í þeim tilgangi að útiloka einstaka hluthafa. Ég get upp á því að það sé Steingrímur Erlingsson frekar en Bjarni Ármannsson.  Svona er  gert með því að færa gamla hlutaféið niður í núll og afhenda félagið svo þeim sem geta komið með eitthvað nýtt fé. Og hverjir eiga alltaf nóg fé þegar eitthvað á að gera? Það eru þeir sem eiga endalausa uppsprettulindir frá striti almennings sem á allt en ræður engu.Jú, lífeyrissjóðurinn minn ves frá viku til viku. Hann getur borgað endalaust á minn kostnað.

Hvers konar makk er þarna á ferðinni? Mér finnst að þarna þurfi allar upplýsingar að koma á borð almennings sem tengist þessu máli óbeint. Almenningur á undir því  að hagsmunir lífeyrissjóða séu ekki fyrir borð bornir.  Almenningi á ekki heldur að vera sama hvernig farið er með eigur hans í ríkisbönkunum.  Lífeyrisþegum og eigendum lífeyrissjóða er ekki sama um það hvort er verið að tapa fé þeirra að nauðsynjalausu.  

Á ekki  núverandi stjórn Fáfnis Offshore að gera almenningi grein fyrir gangi mála, og hvað veldur því að ekki er hægt að fá upplýsingar um framtíðarhorfur félagsins og stöðu samningsins við Sýslumanninn á Svalbarða?

Ég fullyrði að fleiri en ég urðu stoltir þegar fréttir sem bárust af því að smíðin á Polarsyssel sem dýrasta skipi Íslendinga væri hafin. Svona framtak er auðvitað fréttnæmt og fólk vill fylgjast með.

Fjölmiðlar virðast ekki hafa haft mikinn áhuga á að fylgja þessu máli eftir sem ekki virðist nú vanþörf á þegar dýrasta skip Íslendinga á í hlut.

.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

"Okkur"miðar hægt að hafa hemil á áhættusömum stjórum milljarðanna!

Helga Kristjánsdóttir, 3.2.2016 kl. 21:42

2 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Sæll kæri Halldór

Undarlegt er þetta mál allt saman. Hvað varðar Ketil, þá hafa málsmetandi menn sagt hann leigupenna Landsvirkjunar á bak við tjöldin, líkt og var fyrir hrun með „snillinga“ á borð við Hallgrím Helga og alvitringinn Ólaf Arnarson Clausen sem þekkrur er einnig fyrir gengdarlaust hatur sitt á Davíð Oddssyni nokkrum.. Sá mæti Davíð mun víst að sögn aleinn bera ábyrgð á falli Lehman brothers auk morðsins á Kennedy og beggja heimstyrjaldanna á tuttugustu öldinni svo fátt eitt af sök hans sé tíundað.

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 4.2.2016 kl. 09:26

3 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

P.S.:

Eins gott að gleyma ekki að alþjóðlega bamkahrunið er viraskuld algerlega á ábyrgð Davíðs eins og sér.

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 4.2.2016 kl. 09:28

4 Smámynd: Halldór Jónsson

Cacoethes,

já það er gott að Davíð hefur breitt bak og að hann skuli hafa staðist særingar og bölbænir Hallgríms heimska og kommanna svo lengi. Bara að við fengjum einhvern tímann  Davíðstímann aftur með gjaldeyrisfrelsi, vaxtafrelsi og frjálsa samkeppni í bankamálum, þá vantaði bara herslumuninn.

Halldór Jónsson, 4.2.2016 kl. 12:43

5 Smámynd: Sumarliði Einar Daðason

Miðað við upplýsingar um skipið á Shipspotting.com þá er það norskt skip með norska heimahöfn. Er hægt að fullyrða að þetta sé dýrasta skipið sem íslendingar hafa komið að? Hafa ekki íslendingar eða fjármálafyrirtæki (t.d. lífeyrissjóðir) átt hlutabréf í fyrirtækjum sem hafa látið smíða ennþá stærri og dýrari skip? Eða einhver íslendingur verið að vinna við eitthvað slíkt? Hvenær verður skip íslenskt?

http://www.shipspotting.com/gallery/photo.php?lid=2161853

laughing

Sumarliði Einar Daðason, 4.2.2016 kl. 16:27

6 Smámynd: Halldór Jónsson

Sumarliði

Það er nú eitthvað á reiki með heimahafnir íslenska kaupskipaflotans til dæmsi.Nesskip á Seltjarnarnesi á einhver skip sem ég veit ekki hvar eru til húsa, Samskip og Eimskip líka

Halldór Jónsson, 4.2.2016 kl. 19:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 53
  • Frá upphafi: 3418212

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 53
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband