Leita í fréttum mbl.is

Hanna Birna

hefur unnið sér ódauðlegan sess í stjórnmálasögu Sjálfstæðisflokksins.

Við Vallarvinir mun héreftir fylgjast með hverju hennar pólitíska fótmáli og sjá til þess að jafnan verði ýtrustu athygli beitt til þess að við fáum fylgst með athöfnum skörungsins.

Við þurfum að rifja um stórar stundir í lífi hennar og valdatafli í Valhöll og sjá til þess að þær gleymst engum flokksmanni. Slíkur er sess Hönnu Birnu stjórnmálamanns, fyrrum borgarstjóra, fyrrum ráðherra, fyrrum leiðtoga úr Sjálfstæðisflokknum. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Valur Jensson

Og þú meinar náttúrlega: vegna óendanlega vitlauss afleiks hennar með meðvirkum afglapasamningi við Dag B. Eggertsson um lokun neyðarflugbrautarinnar!

Jón Valur Jensson, 23.3.2016 kl. 23:01

2 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Ólöf Nordal hefur flugvelli landsins í hendi sér, bara leggja fram frumvarp til laga að allir flugvellir landsins fari undir skipulagsráð Ríkisins.

Case closed.

Kveðja frá Houston

Jóhann Kristinsson, 23.3.2016 kl. 23:21

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Á íslandi er aldrei case closed á neitt sem vinstri menn gera

Halldór Jónsson, 23.3.2016 kl. 23:34

4 Smámynd: Jón Valur Jensson

Já, það er sorgleg raunasaga, Halldór. En það segir ekki aðeins mikið um frekju vinstri manna (sama hversu fáir fylgja þeim í könnunum), heldur ekki síður óþægilegan sannleikann um nefbeinslausan heigulshátt ráðherra stjórnarflokkanna. Og landsfundarmenn Sjálfstæðisflokksins eru um leið allt of skaplitlir menn að láta leiðtogana bjóða sér upp á þetta -- jafnvel með því að greiða atkvæði með Buchheit-samningum Steingríms- og Jóhönnuliðsins, þvert gegn samþykkt fyrri landsfundar og þvert gegn þjóðar-rétti, þjóðarhag og þjóðarvilja!

Jón Valur Jensson, 24.3.2016 kl. 00:08

5 Smámynd: Rafn Guðmundsson

 hmm - var hanna b ekki besti vinur þinn fyrir stuttu?

Rafn Guðmundsson, 24.3.2016 kl. 00:36

6 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Tek undir hvern staf í færslu þinni Halldór.

Nú hlýtur að vera komið að því að landsmenn fái tækifæri til að segja sitt álit. 

Reykja vík er höfuðborg og án þjóðar er eingin höfuðborg. 

Það hlýtur því að vera þing þjóðarinnar sem hefur síðasta orðið.

Eins og Jóhann hefur hér bent á þá hlýtur innanríkisráðherra að láta málið sig varða, og hef ég allnokkra trú þar á, enda tel ég innanríkis ráðherra núverandi best gefna sem og ærlegasta ráðherra þessarar ríkisstjórnar og þó víðar væri leitað. 

Hrólfur Þ Hraundal, 24.3.2016 kl. 01:03

7 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Ekki gleyma theim sessi sem Hanna Birna hefur unnid sér í flugsögu okkar. Ekki amalegt ad geta staert sig af ad hafa verid einn af adalthátttakendum í thví ad leggja nidur Reykjavíkurflugvöll. Med brotthvarfi neydarbrautarinnar og théttingu byggdarinnar vid völlinn, er fjandans degi ljósara hvert stefnir. Hvad eiga Valsmenn ehf annars stórt land á thessu "íthróttasvaedi", sem má byggja á og vaeri ekki fródlegt ad einhver taeki sig til og skodadi ofan í kjölinn hvernig thetta félag komst yfir íthróttafélagid Val og allt sem thví vidkemur? Fnykinn af thessu máli öllu leggur alla leid til Sudur-Ameríku, get ég sagt thér nafni!

Gódar stundir, med kvedju ad sunnan.

Halldór Egill Guðnason, 24.3.2016 kl. 04:48

8 identicon

Flugvöllinn í þjóðaratkvæði. Það væri það eina rétta. Þetta er ekki orðið boðlegt lengur, hvernig sífellt er snúið út úr, togað og teygt, sem hefur verið "samið" um veru eða ekki veru flugvallarins. Núverandi ríkisstjórn hlýtur að taka eitthvað mark á útkomu úr þjóðaratkvæði andstætt því, sem vinstri flokkarnir gera, sem vaða yfir allt og alla á skítugum skóm, og gera bara það, sem þeim sýnist og finnst best. Þetta er ekki hægt lengur.

Guðbjörg Snót Jónsdóttir (IP-tala skráð) 24.3.2016 kl. 11:12

9 Smámynd: Eyjólfur Jónsson

Ég er með 450 lítra af diesel á ýtunni!

Eyjólfur Jónsson, 24.3.2016 kl. 16:31

10 Smámynd: Halldór Jónsson

Verður ekki að fara að þurrka rykið af hugmyndumhans Björns Krisinssonar um að þurrka upp Skerjafjörðinn til að vinna byggingaland? Sáraódýr framkvæmd. Tvöföldun eða meira á byggingarlandi

Halldór Jónsson, 24.3.2016 kl. 16:54

11 Smámynd: Jón Ingi Cæsarsson

Jón Valur ekki með á nótunum frekar en vanalega. Það voru Hanna Birna og Jón Gnarr að viðstöddum forsætisráðherra SDG sem undirrituðu þennan samning 2013.

Jón Ingi Cæsarsson, 24.3.2016 kl. 17:33

12 Smámynd: Jón Valur Jensson

Góð þessi hugmynd Björns Kristinsonar (og nú þín, Halldór) um landfyllingar út í Skerjafjörð.

Hér er svo upplýsandi grein eftir Þorkel Ásgeir Jóhannsson flugmann um þessi neyðarbrautarmál: Ábyrgur "fréttaflutningur"?, og önnur hér: Siðleysi Dags B. Eggertssonar, læknis. --- En þriðju greinina og enn ýtarlegri og betri finn ég ekki í bili.

Jón Valur Jensson, 26.3.2016 kl. 01:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 57
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband