Leita í fréttum mbl.is

Það er árás

í gangi á íslenska menningu, þjóð og gildi.

Ég var að hlusta á Arnþrúði Karlsdóttur á Útvarpi Sögu halda þessu fram.

Þau Pétur minntust líka á kommúnistann Hugo Chavez sem tókst að eyðileggja efnahag Venezuela. Alveg eins Steingrímur J. Sigfússon setti þjóðina aftur um mörg ár með skattfrekju og afglöpum sínum á fjármálasviðinu.

Þangað kom líka  Viðar Gudjohnsen og talaði um þá skipulögðu afsiðun sem væri í gangi á Ísland. Það væri verið að grafa undan virðingu á stjórnkerfi okkar.

Það væri verið að grafa undan möguleikum unga fólksins til að komast yfir hús til að búa í. Þetta væri vegna þess að það væri búið að herða svo skattheimtuna að hún væri komin úr 35 % í yfir 50 % af vergri þjóðarframleiðslu.

Þetta væri Evrópskt vandamál og það væri hvað þó hvað skást hjá okkur þar sem alir hagvísar væru upp. Viðar sagði að það væri regluverkið frá Evrópusambandinu sem væri að gera okkur mesta óskundann sem gerði allt svo dýrt og eyðilegði þannig möguleika unga fólksins til að byrja á eignamyndun. Þetta vil ég taka heilshugar undir. EES samningurinn, og raunar Schengen til viðbótar,  er búinn að gera þessari þjóð meiri óskunda en flest annað. Við ættum að losa okkur við hann sem allra fyrst og einhliða ef ekki vill betur. Við þurfum ekkert af honum sem við viljum ekki sjálfir. 

Þau ræddu svo um hvort kosningar yrðu í haust Hvort Steingrímur J. Sigfússon klæmi aftur til valda með tilstyrk einhverra annarra. Hvernig hann myndi herða skattheimtuna á öllum sviðum eins og í Venezuela.

Ég viðurkenni að það setur að mér hroll þegar ég hugsa til þess að þetta geti gerst.  Að andlegur bróðir Hugo Chavezar í mynd Steingríms J. Sigfússonar komi hér til valda í haust eða síðar.Studdur af þessu andstyggðar regluverki EES sem er orðinn hreinn bölvaldur í íslensku þjóðlífi. EES er búið að stórauka hér skriffinnsku, innflæði hælisleitenda og hverskyns óþjóðalýðs á grundvelli Schengen samningsins.

Lýður sem hér veður uppi með leiðindi, ofbeldi og glæpaverk sem ríkisfjölmiðlarnir reyna eftir megni að þagga niður umræður um.

Þessi lýður tröllríður heilbrigðiskerfinu þar sem Íslendingar komast ekki að á slysó vegna mállausra útlendinga með fjóra túlka hver. Íslendingur á Höfn getur ekki fengið að tala við lækninn í næsta húsi nema að panta viðtal við hann í gegn um Hvolsvöll. Læknarnir á heilsugæslunni vinna  aukavinnu á Læknavaktinni þar sem maður getur hitt þá nema að þar mega þeir ekki skrifa tilvísun til sérfræðings. Til þess verður þú að hitta þá á heilsugæslunni.

Ég tek undir með Arnþrúði. Það er árás í gangi í allt sem íslenskt er.  Þetta er magnað upp af fámennri fantískri kratískri menningarelítu sem allt þykist vita og skilja umfram alla aðra. 101 Reykjavík öðru nafni.Holdgerfð í góða fólkinu.Sérstakur fulltrúi er Árni Matthíasson a Morgunblaðinu. Reynið að lesa bullgrein hans á Moganum í á míðopnu í dag 27.apríl.

 Þessi moldvörpustarfsemi er langt til komin með að eyðileggja það góða þjóðfélag sem við áður höfðum hér. Það er kominn tími til að segja þessari niðurrifsstarfsemi stríð á hendur og endurreisa okkar samfélag með því að minnka misrétti og yfirgang pólitíska peningaveldisins og lífeyrissjóðakerfisins eins og við erum búin að horfa upp á síðustu vikur. Stinga út fjósið eins og Jón Sigurðsson sagði að Framsóknarflokkurinn þyrfti að gera.

Hrindum árásinni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

 Nú skiptum vid um gir,leggjum Meiri áherslu á krøfur til theirra sem vid kusum. Kvedja 

Helga Kristjánsdóttir, 27.4.2016 kl. 00:34

2 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Það er nefnilega þetta með gírkassann Helga mín ágæt, að ef mótorinn fyrir framan hann er samsettur úr Steingríms kjaftæði, þá kemur lítið annað aftur úr honum en Svandísar þvaður. 

Hrólfur Þ Hraundal, 27.4.2016 kl. 05:26

3 Smámynd: Jósef Smári Ásmundsson

Tók eftir því hjá þér að búið væri að herða skattheimtuna úr 35% í 50 %. En eru það þá ekki núverandi stjórn sem gerir þessi ósköp eða er Steingrímur að stjórna á bak við tjöldin. Þessi svokallað menning sem snýst um aflandsfélög, undanskot undan skatti og almennan sóðaskap í boði framsóknarflokksins og bænahóps þjóðkirkjunnar sem í voru Helgi Jónsson bankastjóri, prestar i þjóðkirkjunni, forstöðumaður Kristskirkjunnar og jón Sigurðsson fyrrum skólastjóri, seðlabankastjóri og formaður framsóknarflokksins meðal fleiri gildra manna má alveg missa sín. Það er margt sem er rotið í fjóshaugnum sem fáir vita af.

Jósef Smári Ásmundsson, 27.4.2016 kl. 06:28

4 Smámynd: Sigurður Antonsson

Áhugaverð uppsetning og framsetning á umróti samtímans. Bravó. Heyr. Útvarp Saga er oft að gera stóra hluti með því setja fram mál á nýjan máta. Eðlisfræðingar nítjándualdar voru lengi að uppgötva hraða ljóssins og afstæðiskenningin kom fram 1905.

Kvikan sem nú er undir yfirborðinu á eftir að taka óvæntum breytingum. Engin veit enn hvort Vénúselaleiðin verður ofan eða hvort ESB drukkni í eigin skriffinnsku. Umrótið nú er á við undanfara að eldgosi. Hvernig það birtist skýrist. Með því að setja málin fram á nýjan máta opnast ljós. Góðan sólríkan dag.

Sigurður Antonsson, 27.4.2016 kl. 06:51

5 Smámynd: Gunnlaugur I.

Svarið við árásinni er;

Íslenska Þjóðfylkingin !

Svar gegn niðurrifsõflunum og pólitískum rétttrúnaði.

ÍÞ kynnir stefnumál sín og framboð sitt á Hótel Nordica þann 7. maí n.k. kl. 13 til 16. 

Þú Halldór og allir aðrir sem vilja hrinda þessari árás og hefja õfluga gagnsókn, eruð boðnir velkomnir ! 

Gunnlaugur I., 27.4.2016 kl. 22:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 55
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband