Leita í fréttum mbl.is

70 milljarða

ný snjóhengja hefur hlaðist hér upp frá áramótum að maður heyrir. Erlent fé sem flýr hingað úr vaxtaleysinu þar hingað í hávextina. Þó að einstefnumerki sé á leiðinni treystir þetta fé á Bjarna  Ben til að laga gjaldeyrishöftin svo að þetta verði í lagi.

Pétur Gunnlaugsson og andverðtryggingarhirðin ´Útvarpi Sögu talar margt um hvílíkar byrðar séu lagðar á lántakendur á Íslandi. Hávextir ofan á verðtryggingu meðan húsnæðislán erlendis beri enga vexti. Þetta er auðvitað hárrétt og er svo. En gleymist ekki einn aðili sem þjáist kannski mest? Sparifjáreigandinn?

Hvað með manninn sem á einhverja smáaura og sparar við sig? Hann getur haft peninginn inni á bankabók og fengi einhverja 4 % vexti óverðtryggt. Í augnablikinu er þetta í lagi þar sem verðbólgan er lág nema í fasteignum sem hækka hér á höfuðborgarsvæðinu langt umfram neysluvöruvísitölu. Þessi eigandi er í sífelldri spennu um hvað verði um aurana ef hann gleymir sér. Bankarnir keppast við að auglýsa hvað þeir séu góðir og miklir vinir hans. En þeir segjast ekki geta geymt fyrir hann verðtryggt fé nema að binda það til margra ára. 

Af hverju er fólki ekki gert kleyft að geyma aurana sína svo til óbundna á  verðtryggðri bók með lágum eða engum vöxtum? Maður á þá beinið sitt grafið og getur fengið það þegar hann þarf skyndilega á því að halda? Af hverju þetta ekki gert mögulegt aftur? Hugsanlega koma gjaldeyrisreikningar bráðum aftur hérlendis ef einhver þorir að treysta Íslandi en ekki aflandsreikningum þegar íslenska krónan verður aftur frjáls. Menn mega muna Davíðstímann góða þegar íslenska verðtryggða krónan var besti gjaldmiðill í heimi og fullt frelsi á fjármagnsflutningum ríkti hér á landi. Nú æpa kommarnir bara um að allir séu þjófar sem eigi aflandsreikninga. Þetta var allt löglegt í gær. Af hverju ekki aftur?

Kommisjónsreikningarnir í gamla daga  urðu til vegna hafta og ófrelsis hérlendis. Ef skilyrðin og skattlagning er gerð  sambærileg allstaðar þá hverfur allur hvati til undanskota nema í neðanjarðarstarfsemi eins og vændi, eiturlyfjaverslun og nótulausri ferðaþjónustu. Þetta geta bara vinstri Íslendingar ekki skilið sem sjá alltaf þjófa og bófa allstaðar en eru svo fyrstir til að stinga undan sjálfir.Þekkir einhver nokkurn mann sem þiggur ekki 24 % afslátt ef honum býðst hann eftirmálalaust?

Hvenær ætlum við að koma á frelsi fyrir  milljarða almennings, ekki bara bófanna, í okkar samfélagi?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 40
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband