Leita í fréttum mbl.is

Jón Valur

Jensson skrifar eftirfarandi:

"Jensson varð vitni að atviki í gær. Jón segir svo frá:

"Frægt varð þegar Jóhanna Sigurðardóttir flutti Hrafnseyri í Dýrafjörð í 17. júní-ræðu.

Nú hefur Sóley Tómasdóttir sýnt ekki síðri frumleika með því að gera Jón Sigurðsson að 18. aldar manni, í hátíðarræðu við grafreit hans í gær. Og hún gerði það sem meira er: kunngjörði áheyrendum að Jón hafi vísast verið á bandi vinstri flokkanna um innflytjendastefnu þeirra: að hann hafi viljað "leyfa öllum að njóta alls þess góða sem samfélag okkar hefur að bjóða," sem sé haft allt aðra stefnu en Danir hafa núna.

––Það er ekki lítils virði að eiga konu með slíka skyggnigáfu við stjórnvölinn í borgarstjórn og fá að njóta hennar yfirburðaþekkingar og beina sambands við "18. aldar manninn" við ákvarðanir um stefnuna fram á veg!

––Ég var sjálfur viðstaddur þennan stefnumarkandi ræðuflutning hennar, og meðal þeirra sem heyrðu þetta þar voru þekktur rithöfundur og fræðimaður mikill við Árnastofnun, og þótti þeim mikið til um þessi tíðindi af "18. aldar manninum", a.m.k. varð ekki annað séð en að bros léki um varir þeirra, þegar um var rætt."

Og enn sorglegra er hvernig rétthugsun þessa fólks, sem Sóley þessi stendur fyrir, er búin að hafa af þjóðinni þann rétt að safnast saman á hátíðarstund á Austurvelli. Það verður að meina fólki aðgang að sini eigin þjóðhátíð vegna skrílsláta skipulagðra hópa.

Austurvöllur er tómur meðan athöfnin fer fram. Af hverju er ekki hægt að handtaka þá seku frekar og fjarlægja með valdi?

Svo skora ég á fólk að skrifa undir áskorun til Forseta Íslands um að visa Útlendingalögunum til þjóðaratkvæðis.Jón Valur er með tengil á síðunni www.jvj.blog.is þar sem fólk getur skráð sig og greitt atkvæði.

Þarft framtak Jón Valur Jensson.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Halldór.

Ekki verður annað sagt en að Sóley hafi sýnt
óvenjumikið lítillæti og hógværð í ræðuflutningi
sínum.

Sannleikurinn er sá að Jón Sigurðsson var ekki
uppi á 18. eða 19. öld af þeirri einföldu ástæðu
að hann var aldrei til heldur hreinn uppspuni og hugarburður!

Minnið um ofurhetjuna kom með miklum þunga inn að nýju
í því oflæti og gamni sem menn kölluðu þorskastríð
en eins er með þau eins og Jón Sigurðsson: Uppspuni!

Superman eða ofurhetjan verður til í heimi þar
sem ekki gefst tóm til að spyrja hvernig mönnum líði
í tilfinningunum sínum; þar sem grenjandi minnimáttar-
kennd ásamt óhóflegu oflæti birtist í ofurhetjunni
sem allir geta sameinast um og hver og einn getur
talað fyrir, eins konar Baldur og Konni sem gerir
ýmist að rífast og skammast við sjálfan sig eða róma
eigið ágæti uppí eitthvað sem aldrei er eða verður
og endar ævinlega í ásökunum, eymd og volæði.

Áfram Ísland!

Húsari. (IP-tala skráð) 18.6.2016 kl. 15:40

2 Smámynd: Jón Valur Jensson

Þakka þér heiðurinn, Halldór. smile

En af því að þú ert svo mikill flugvallarvinur eins og raunar flestir: Sástu Ómar Ragnarsson í fréttum Stöðvar 2 rétt í þessu? Hann er með mjög athyglisverða hugmynd um björgun Neyðarbrautarinnar, með því að færa hana sunnar og út undir Skerjafjörð (fáeinum húsum þarf að fórna), um leið og hann talar skýrt fyrir neyðarhlutverki hans fyrir sjúkraflugið. 

Gott hjá Ómari, ég vona að það verði af þessu.

Jón Valur Jensson, 18.6.2016 kl. 18:47

3 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Ég er nú farin að velta því fyrir mér, hverjum þessi neyðarbraut eigi raunverulega að þjóna?

Hver hefur afgang af sínum verkafólkslaunum eftir skatt og lífeyrissjóðs-frátökuránum, til að borga sjúkraflug og sjúklinganna fyrstu þjónustu af ýmsum toga?

Ég bið fólk að velta fyrir sér staðreyndum þrælaútborgunar-skatt/lífeyrissjóðs-rændri láglaunastefnu (langt undir lágmarksframfærsluviðmiðum).

Dauðastefna, í boði vestrænna siðmenntaðra "þjónustubankafortækja"!

Bankaokurlána, húsnæðisvanda okurleigu, og kúgaðri sjálfsábyrgðar-skattpíningu einstaklinga, til að standa undir skattreknum opinberum ræningja-"þjónustustofnunum"!

Umhugsunarvert?

Eða bara horfa á "leikinn" og skemmta sér án ábyrgðar?

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 18.6.2016 kl. 21:25

4 Smámynd: Sigurður M Grétarsson

Ekki skil ég þessa tilraun til að fá forsetann til að vísa nýju útlendingalögunum í þjóðaratkvæðagreiðslu. Það er aðeis þörf fyrir slíkt ef Alþingi samþykkir lög sem meirihluti þjóðarinnar er á móti. Það er ekki tilfellið varðadndi þessi lög og munu þau án efa vera samþykkt með miklum meirihluta atkvæða fari þau í þjóðaratkvæðagreiðslu.

Það er þvæla sem margir segja að með þeim sé verið að "opna landið upp á gátt". Það er aðeins verið að skerpa á reglum og breyta ákvæðum sem stangast á við alþjóðlega mannréttindasáttmála sem Ísland er aðili að þar með talið flóttamannasáttmála Sameinuðu þjóðanna sem Ísland er aðili að. Það er ekki verið að breyta reglum um það hvaða skilyri menn þurfa að uppfylla til að fá hér dvalarleyfi eða hæli sem flóttamenn. 

Að vera á móti því að mannréttindi fólks séu virt og að fólki í neyð sé hjálpað lýsir ansi brengluðu hugarfari og er í hróplegu ósamræmi vi kristin gildi.

Sigurður M Grétarsson, 19.6.2016 kl. 12:10

5 Smámynd: Jón Valur Jensson

Jú, það er verið að lina hér reglur og minnka skorður við því að hælisleitendur fái hér dvalarleyfi og á endanum ríkisborgararétt, sem og að tiltaka sérstaklega leyfi þeirra til að fá hingað aðra úr fjölskyldum þeirra. Og ekki er það til góðs, að fólki, sem fleygt hefur vegabréfum sínum, verði leyfð landvist hér, og sízt eykur það öryggi okkar eða vinaþjóða okkar.

Jón Valur Jensson, 19.6.2016 kl. 15:08

6 Smámynd: Sigurður M Grétarsson

Það er ekki verið að minnka skorður við því að hælisleitendur fái hér hæli því enn þurfa þeir að vera í þeirri stöðu að vera ekki óhætt að fara aftur heim. En vissulega er verið að bæra rétt þeira sem fá hér hæli af því að þeir eru í raunverulegri neyð til að fá fjölskyldur sínar hingað enda slíkt mannréttindaatriði og oft á tíðum fjölskyldunum ekki heldur óhætt að snúa aftr heim. Að kalla það að "opna landið upp á gátt" er út úr öllu korti enda grófur útúrsnúningur á því sem gert er með þessum lögum. 

Fjöldi hælisleitenda sem hér er er ekki það mikill að til vandræða horfi og fjöldi þeirra sem fá hér hæli stefnir ekki heldur í að verða það. Þvert á móti fáum við mannauð með þeim sem þjóðfélagið í heild græðir á.

Það var mikil samstaða um þetta mál á Alþingi enda afurð tveggja ára vinnu þverpólitískrar nefndar. AF þeim 48 þimgmönnum sem voru í salnum þegar greidd voru atkvæði um lögin í sinni endanlegu mynd voru 46 sem sögðu já og tveir sátu hjá. Engin þingmaður greiddi atkvæði gegn þeim. Það var því mikil þverpólitísk samstaða um málið frá þeim mönnum sem þekkja vel til um hvað lögin snúast enda búnir að sjá allar athugasemdir við lagafrumvarpið og því vel inni í málunum. 

Samstaða meðal almennings sést vel á því að þrátt fyrir þó nokkurn áróður þá hafa aðeins 2 þúsund manns séð ástæðu til að skrifa undir áskorum til forseta um að vísa lögunum til þjóðaratkvæðagreiðslu og má reikna með að sá hópur sem almennt vill vísa sem flestum lögum til þjóaratkvæðagreiðslu án afstöðu til laganna slagi hátt upp í þennan fjölda.

Sigurður M Grétarsson, 19.6.2016 kl. 17:50

7 Smámynd: Jón Valur Jensson

Hef lítinn tíma til svara SMG og jafnvel lesa hann!

En vefslóðin með undirskrifta-söfnuninni er löng og allt of flókin, það hefur tafið fyrir þátttöku. En mönnum hér til hægðarauka geta þeir bara smellt á eftirfarandi vefslóð og skrifað sig þar inn (muna svo að fara á eftir í netpóstinn til að staðfesta þar, að rétt netfang hafi verið skráð):

http://www.petitions24.com/stats.php?id=147126

Nú hafa 2.427 skrifað undir á vefnum, en yfir 1.000 manns á útprentuðum blöðum með áskoruninni.

Jón Valur Jensson, 20.6.2016 kl. 14:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 6
  • Sl. sólarhring: 15
  • Sl. viku: 54
  • Frá upphafi: 3418205

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 54
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband