Leita í fréttum mbl.is

Trump

hefur sigrað Repúblíkanaflokkinn, klíkurnar og gáfnaelítuna, eins og hér stjórna Sjálfstæðisflokknum. Maður að utan snýr þetta lið niður svo að það veit ekki sitt rjúkandi ráð.

Hann segist ætla að gera Bandaríkin stór aftur. Skilur einhver hvað hann er að fara? Erum við ekki orðin svo dofin af kratéríinu og bullinu um eitthvað félagslegt réttlæti sem aldrei kemur, að við skiljum ekki hvað hann á við?

Ég horfi bjartsýnn fram á veginn með Trump. Hann getur varla orðið verrri en Hussein Obama og Hillary Clinton sem skilja eftir sig óleyst vandamál vígaslóðanna hvert sem litið er.

Látum manninn spreyta sig! Reynum að styðja hann frekar  en að bregða fyrir hann fæti! Hans bíður það erfiða verkefni að verða forseti heimsins alls með sín milljón vandamál. Endurreisa traust á orð og efndir heiðarlegs fólks, sem nú eru um margt bara gengisfelld orðin tóm ef maður hugsar til Líbýu og Afgahnistan. 

Áfram Trump! Þú getur þetta!

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Bandaríkin voru "great", eða "mikil" í þá tíð sem morgundagurinn var bjartari en gærdagurinn. Þannig skil ég þetta.

Egill Vondi (IP-tala skráð) 22.7.2016 kl. 23:29

2 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Aumingja Trump, hann á ekki fræðilegan og tölulegan möguleika að vinna Hillaary Rotten Clinton.

Í sjálfu sér þá skiptir það ekki máli hvort þeirra kemst í Hvíta Húsið, þau eru bæði demókratar og afbrotafólk sem er alveg nákvæmlega sama um landsmenn USA, réttarins og ráðamenn á Íslandi.

Það eina sem þau bæði hafa að takmarki er að græða nógu mikið fyrir sjálfa sig. Ég er viss um að þau bæði mundu selja ömmu sína fyrir fáeina dollara ef þær væru á lífi.

Kveðja frá Seltjarnarnesi.

Jóhann Kristinsson, 22.7.2016 kl. 23:34

3 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Samt komst hann þetta langt jóhann minn,með myndavélar upp í andlitinu á afar óþægilegum augnablikum. Hann er ekkert að sýnast held ég,er bara fullur af eldmóði og þrá að endurheimta gömlu Ameríku,sem heimurinn leit upp til.

Helga Kristjánsdóttir, 23.7.2016 kl. 01:28

4 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Halló, halló nafni. Reyna aig á hverju?

Okkur?

Þessi maður er snarklikkaður. Erdogan með greitt í píku.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.

Halldór Egill Guðnason, 23.7.2016 kl. 02:19

5 Smámynd: Halldór Jónsson

Ja hérna Jóhann, þú ert aldeilis svartur í dag. Ég held að þú gerir of mikið úr gróðafíkn Trumps, ég held að ún breytistvið það að verða bjargálna eins og Trump er orðinn en við ekki.

Og nafni minn fyrir sunnan, ekki líkja honum við trúarfíflið.

Halldór Jónsson, 23.7.2016 kl. 10:26

6 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Helga veist þú hvað Trump ættlar að gera svona yfirleitt annað en að hann ættlar að byggja vegg og Mexíkanar eiga að borga kostnaðinn? Þetta er auðvitað ekki maður sem gengur á öllum sílendrum.

Það nýjasta hjá honum er að ef ráðist er á NATO ríki þá er ekki þar með sagt að USA komi til hjálpar. First ættlar hann að skoða hversu mikið landið sem var ráðist á hefur greitt í sjóði NATO.

Þar með er það á hreinu að USA kemur ekki til hjálpar þegar Pútín tekur yfir Ísland. Ekki það að ég vil að USA gangi úr NATO, það er kominn tími til að Evrópa sjái um sínar varnir sjálf.

Það hefur enginn hugmynd um hvað Trump ættlar að gera ef svo fer að Hillary Rotten Clinton tapar í nóvember. Trump segir eitt fyrir hádegi annað eftir hádegi og Guð má vita hvað honum dettur í hug að kvöldi.

En eins og ég benti á fræðilega og tölulega þá er þessi kosningarbarátta ekki góð fyrir Trump og mjög litlar líkur á því að Hillary Rotten Clonton tapi.

Spurningin er hvort að það skipti máli hvert við höfum karlkyns eða kvenkyns demókrata sem forseta þegar Husein er búinn með sín skemmdarverk? Mitt álit er, það skipti ekki máli.

Kveðja frá Seltjarnarnesi.

Jóhann Kristinsson, 23.7.2016 kl. 11:06

7 Smámynd: Mofi

Ég held að Trump muni vinna Hillary, hérna er farið yfir hvers konar taktík Trump notar og Hillary notar og afhverju Hillary á litla sem enga möguleika: https://www.youtube.com/watch?v=LibRNYJmZ-I

Mofi, 23.7.2016 kl. 12:54

8 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Það fyrsta sem ég heyrði af fyrirætlunum hans var einmitt Mexíkó múrinn.Hann fékk dembu af vandlætingum og virðist hafa horfið frá svo róttækum aðgerðum.En eitt er víst að hann miðar hugmundirnir með tiliti til  velferðar föðurlands síns.   

Helga Kristjánsdóttir, 23.7.2016 kl. 13:23

9 Smámynd: Bjarni Jónsson

Donald T. hefur komið á óvart fyrir velgengni í baráttunni um útnefninguna.  Samt er hann sagður hafa notað tiltölulega lítið fé í þessari baráttu.

Hillary Rodham hefur jafnan komið á óvart fyrir slakan árangur í kosningabaráttu.  Hún glutraði niður góðu forskoti á Barack á sínum tíma, og jafnaðarmaðurinn Sanders stóð ótrúlega í henni núna.

Ef draga á ályktun af þessu, verður Donald Trump næsti forseti BNA.  Það segir auðvitað nokkuð um ástandið í Bandaríkjunum núna.

Bjarni Jónsson, 23.7.2016 kl. 14:18

10 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Eins og ég skil þetta - og er þó enginn sérfræðingur í amerískum stjórnmálum - þá glutruðu Demokratar niður tækifærinu til þess að sanna mennsku sína þegar þeir völdu Clinton umfram Sanders.  Þeim er rétt mátulegt ef Trump hefur þetta.

Kolbrún Hilmars, 23.7.2016 kl. 15:31

11 identicon

Því miður er ekki á það hættandi að Trump standi ekki við orð sín.

Heimurinn hefur of oft brennt sig á slíkum mönnum.

Hörður Þormar (IP-tala skráð) 23.7.2016 kl. 17:43

12 Smámynd: Halldór Jónsson

Jóhann

Þar með er það á hreinu að USA kemur ekki til hjálpar þegar Pútín tekur yfir Ísland. Ekki það að ég vil að USA gangi úr NATO, það er kominn tími til að Evrópa sjái um sínar varnir sjálf.

Ekki hef ég séð það til Evrópussambandsins að það geti séð um neitt sem viðkemur hermálum, sbr. Bosníu.

Trump forseti verður annar en Trump frambjóðandi. 

Halldór Jónsson, 23.7.2016 kl. 19:28

13 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Ég held að fólk skilji ekki alveg hvernig forseti USA er kosinn. 

Kjósendur kjósa ekki Forsetan, það er svokallaður Elctoral Collage sem að gerir það.

Kosningarnar eru um hver vinnur hvert ríki og það fer eftir fjölda fólks sem á heima í hverju ríki hversu margir fulltrúar frá því ríki verður. Til dæmis þá eru fleirri fulltrúar sem koma frá Kaliforníu heldur en Oklahoma.

Ef litið er yfir ríki USA, þá eru demókratar með yfirburði í ríkjum með miklum mannfjölda. Þar af leiðandi fá demókratar fleirri fulltrúa af því að repúblikanar þurfa að vinna fleirri ríki til jafnvægið gegn stóru ríkjum demokratana.

Það er hjarðhegðun í USA eins og á Íslandi þar sem flest ríkin kjósa eins í gegnum árin. Yfirleitt er það baráttan um Ohio, Flórída og eitt annað ríki sem að ákveður hver verður forseti. 

Samkvæmt síðustu könnunum þá var Hillary Rotten Clinton með töluvert mikið meira fylgi í Flórída, þar af leiðandi þarf Trump að vinna hin tvö. Ohio vitum við ekki hvar Trump stendur hann tapaði Ohio íforkostningunum. Svo er spurningin hvaða ríki verður þriðja ríkið sem veltur annað hvort yfir á demókrata eða repúblikana.

En eins og menn muna þega George W Bush vann Al Gore, þá var Al Gore með meirihluta kjósenda, en hann tapaði heima ríki sinu Tennesee og þannig að Flórída endaði með að verða ákvörðunar ríkið um það hver varð forseti og menn muna endalokin.

Ef svo illa færi að Electoral College atkvæðin væru jöfn, þá er það House of Reprentetives sem velur Forsetan sem í þessum kosningum er með repúblikana í meiri hluta.

The Senate velur svo varaforsetan sem að repúblikanar hafa meiri hluta í líka. 

Það var möguleiki að þegar George W Bush var kjörinn að Liberman varaforsetaframbjóðandi demókrata hefði getað orðið varaforseti George W en ekki Chaney.

Nú svo má benda á Trump fékk ekki nema 38%til 40% fylgi repúblikana í forkosningunum og það er möguleiki á að margir sem ekki kusu Trump sitji heima, þetta gerðist í síðustu forseta kosningum.

Ohio er það ríki sem að er mjög mikilvægt fyrir Trump, en við vitum ekki hvernig það fer, af því að Trump tapaði Ohio ríki í forkosningunum af þvi að kjósendur vildu ekki Trump.

En auðvitað er öllum frjálst að halda með Trump en þið fáið ekki kjósa, en eg fæ að kjósa og ég mundi aldrei kjósa Trump. Maðurinn gengur ekki á öllum sílendrum.

Kveðja frá Seltjarnarnesi.

Jóhann Kristinsson, 24.7.2016 kl. 14:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 40
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband