Leita í fréttum mbl.is

Bravó Guðni!

Ágústsson frá Brúnastöðum.Þetta geturðu. Þó samflokksmenn þínir séu löngum blindir á hæfileika þína þá erum við Sjálfstæðismenn það ekki nærri alltaf.

Guðni skrifar í Mogga á laugardaginn:(Bloggari stjórnar svigum og feitletrunum)

"Hvernig má það vera að tveir stjórnmálamenn, sem stoppuðu stutt við í pólitíkinni, skuli ætla að komast upp með þau spjöll að loka neyðarbrautinni á Reykjavíkurflugvelli og þar með að loka leiðinni inn á Landspítalann fyrir sjúkraflugið í vitlausum veðrum og leggja drög að því að koma flugvelli þjóðarinnar í Vatnsmýrinni fyrir kattarnef?

Þessa ákvörðun tóku Hanna Birna Kristjánsdóttir, þá innanríkisráðherra, og Jón Gnarr, fyrrverandi borgarstjóri Reykjavíkur.(Og verði skömm þeirra lengi uppi!)

Þetta var gert án aðkomu Alþingis og örugglega ekki rætt í ríkisstjórninni, gerendurnir undirrituðu þetta í bakherbergi eftir að annað skjal hafði verið undirritað af þeim með forsætisráðherra árið 2013 um að allt flugvallarmálið væri sett í bið um nokkurra ára skeið. Sem sé – hið fyrra samkomulag var lítilsvirt andartaki síðar.

Hæstiréttur hefur fellt þann dóm að gjörningurinn sé löglegur og eftir honum verði að fara, en það útilokar ekki nýja ákvörðun Alþingis í ljósi afleiðinganna sem hljótast af samningi Hönnu Birnu við Jón Gnarr og niðurstöðu Rögnu-nefndarinnar, ekkert flugvallarstæði annað til staðar í Reykjavík.

Hæstaréttardómurinn snerist ekkert um flugvöllinn, mikilvægi hans og flugöryggi heldur um að gjörningurinn stæðist lög. Núverandi innanríkisráðherra með Alþingi á bak við sig getur hrint þessari niðurstöðu og tekið aðra ákvörðun vegna mikilvægra öryggishagsmuna. Sökudólgarnir eru á bak og burt, horfnir úr hinum stóru embættum en Dagur B. Eggertsson borgarstjóri glottir við gaflaðið og braskararnir sem ætla að byggja dýrustu hús og hótel í Vatnsmýrinni strjúka sitt peningaveski og fagna því að flugvöllurinn í heild er kominn á dauðalistann.

Þetta gerist þótt þjóðarviljinn hafi verið mældur hvað eftir annað milli 80% og upp í 84%, sem vilja flugvöllinn á þessum stað og í friði. Meiri stuðningur en við nokkuð annað verkefni, samt komast Valsmenn allra flokka upp með að hrekja flugvöllinn á burt.

Dauðans alvara

Reykjavíkurflugvöllur er sjúkraflugvöllur allra landmanna og allra þeirra sem veikjast og slasast alvarlega á ferðalögum um landið.

Flugvöllurinn hefur verið brú milli höfuð- borgarinnar og landsbyggðarinnar, um hann fóru 750 sjúkraflug árið 2015, þar af helmingur farþega í lífshættu og margir upp á líf og dauða. Hvar sem menn búa í landinu gerir flugið og flugvöllurinn það að verkum að á einni klukkustund er hægt að ferðast til höfuðborgarinnar sem allir Íslendingar hafa byggt upp og Vatnsmýrin er lykillinn að því, með flugvellinum stendur eða fellur innanlandsflugið.

Spyrja má er Vatnsmýrin hentugt byggingaland fyrir hótel eða íbúðabyggð? Fróðir menn segja mér að hún sé vatnssósa mýri eins og nafnið bendir til, nokkurra metra djúp, og jarðvegur mengaður eftir veru hersins. Gríðarleg jarðvegsskipti yrðu að eiga sér stað, hvað kostar það og hvert skal aka mýrinni/moldinni og hvert verður mölin sótt? Hverjir bíða eftir hinum rándýru íbúðum?

Fræðimenn segja að þetta muni lækka grunnvatnsstöðuna í Vatnsmýrinni og Reykjavíkurtjörn kunni að þorna upp?

Vatnsmýrin er besta flugvallarstæðið

Þrasið um að færa flugvöllinn upp á Hólmsheiði eða út á Löngusker er afskrifað í úttekt Rögnunefndarinnar og sú dæmalausa tillaga um flugvöll í Hvassahrauni í hlaðinu á Keflavík var bábilja og sennilega úr munni borgarstjórans, Dags B. Eggertssonar, sem sat í staðarvalsnefndinni og hlýtur hann að hafa verið gjörsamlega vanhæfur þar.(Þvílík svívirða að þessum manni hafi verið leyft að sitja í þessari nefnd og fá borgað fyrir og að hafa fengið að hafa þannig allt það fólk sem í nefndina settist að ginningarfíflum þar sem hans afstaða var auðvitað þekkt frá byrjun)

Reykjavíkurflugvöllur er nefnilega merkilegur að því leyti að hann uppfyllir öll skilyrði hvað flug og flugöryggi varðar. Enn fremur er hann varaflugvöllur landsins, fari hann er búið að veikja flugið í landinu og líka til og frá landinu því hann er Keflavík mikilvægur, hann er einn af varaflugvöllum Keflavíkur sem færist þá til Skotlands.

Flugmenn segja að allar hugmyndir um styttingu brauta og skerðingu þeirra séu varhugaverðar og það ætti ekki að setja slíkt fram eða ráðast í þær nema eftir nákvæma rannsóknarvinnu. Með brotthvarfi flugvallarins er stefnt að óafturkræfu tjóni í samgöngumálum landsins og sjúkrakerfi þess. Og miklum skaða fyrir Reykjavík í þjónustu, lífsöryggi og atvinnu kringum flugið sem varð reyndar til með Reykjavíkurflugvelli.

Alþingi stungið svefnþorni? Því miður hefur Alþingi verið stungið svefnþorni í þessu máli þótt góður vilji margra þingmanna hafi staðið til að bjarga flugvellinum. Nú liggur fyrir að neyðarbrautin er á förum nema að tekin verði ný ákvörðun og þá um að bjarga henni og flugvellinum.

Ég hvet innanríkisráðherra, Ólöfu Nordal, og alþingismenn til að taka málið upp á sumarþingi og ræða það í aðdraganda alþingiskosninga. Það er hægt með löggjöf að bjarga flugvellinum og það á að gera. Hæstiréttur hefur aðeins fellt dóm um að gjörningur borgarstjórans fyrrverandi og innanríkisráðherrans standist, en enginn bannar þinginu að taka nýja ákvörðun út frá hagsmunum þjóðarinnar, því ekkert flugvallarstæði leysir Reykjavíkurflugvöll af hólmi, það er hin nýja niðurstaða Rögnunefndarinnar. Það er bæði betra og ódýrara að borga Reykjavíkurborg skaðabætur en láta eyðilegginguna ganga fram, hún kostar mörg hundruð milljarða og er óafturkræft tjón sem varðar alla Íslendinga. „Hjartað Í Vatnsmýrinni“ hrópar á hjálp.

Myndum breiða pólitíska samstöðu um Reykjavíkurflugvöll. Gerum flugvallarmálið að kosningamáli verði það ekki leyst á sumarþingi."

þegar þau eru bæði komin í klofstígvélin Elín Hirst og Guðni Ágústsson mun sá fjóshaugur lyga og svika í Vatnsmýrinni vandfundinn sem þau geta ekki flutt. Styðjum þau bæði til góðra verka.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Ég er farin að trúa því að annarra stefnu/flokka fólk gangi í flokka til þess að vinna gegn stefnu þeirra. ...Munum If you cant win/beat them join them...

Valdimar Samúelsson, 25.7.2016 kl. 09:41

2 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Brúnastaðir eru til.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 25.7.2016 kl. 09:44

4 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Aðeins tvennt af ótalmörgu rugli, sem hefur sést í málflutningningnum gegn flugvellinum: 

"Neyðarbrautin hefur verið kölluð neyðarbraut af því að hún er svo hættuleg."  Borgarstjóri í viðtali við N4 um daginn. 

Unnið er að athugunum á því að stytta flugbrautirnar til að auka öryggi vallarins."  Í skýrslu um völlinn fyrir 15 árum. 

Ómar Ragnarsson, 25.7.2016 kl. 14:45

5 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Bravó Halldór að geta æskuheimilis Guðna rétt! :)

Heimir Lárusson Fjeldsted, 25.7.2016 kl. 15:17

6 identicon

Og hvað eruð þið sáttir við að ríkið greiði mikið fyrir þessi lög?

Það að hindra framgöngu samningsins er líklegt til að baka ríkissjóði nokkuð marga milljarða í bótaskyldu.

Elfar Aðalsteinn Ingvarsson (IP-tala skráð) 25.7.2016 kl. 18:55

7 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Guðni Ágústsson var ekki kosinn á síðasta þing, og er ekki marktækur í pólitískri umræðu. Ekki veit ég fyrir hvað hann heldur að hann standi nú orðið.

Hótandi fortíðarpólitíkus með leynilegt baktjaldakúgunarmakk er ekki trausts verður.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 25.7.2016 kl. 20:44

8 Smámynd: Sindri Karl Sigurðsson

Ég get ekki með mínum almenna skilningi séð hvernig ríkið á að vera skaðabótaskylt. Það er þó alveg ljóst að við tekur margra ára dómsmál sem mun ekki einungis taka tillit til eins eða tveggja þátta. Mun samt ekki breyta niðurstöðunni að ráðherra þó sá hafi ákveðið valdumboð, getur ekki gert samninga sem standast ekki lög.

Það þarf einfaldlega að kæra þennan gjörning og ógilda ákvörðun ráðherra.

Jafnframt, eins og margsinnis bent hefur verið á, sitja í þessari nefnd einstaklingar sem opna á það að sá ákvarðanagrunnur sem byggt var á sé unnið undir skilgreiningunni vanhæfi. Skiptir þar engu hvort einhver á prósentuhlut eða prómillhlut í félagi um eða í kringum þessa lóð/byggingu.

Sindri Karl Sigurðsson, 25.7.2016 kl. 21:27

9 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Jón Gnarr þurfti ekkert að leika, því hann er ruglaðri en það fyrirbæri sem hann reyndi að leika. 

Hanna Birna hefur átt í basli með að gera hlutina rétt og lét einhvern svartan dólg fíflasig úr embætti og er þar með handónýt til nokkurs brúks og þar með eru þau skötuhjú afskrifuð sem gamalt úrgangsrusl.

En skyldum við eiga eitthvað skárra til að hafa traust á nú fram að kosningum?   

Hrólfur Þ Hraundal, 25.7.2016 kl. 22:28

10 identicon

Hér er athyglisvert innlegg í umræðuna, sjá eftirfarandi: http://veggurinn.is/21/07/2016/falsadi-efla-nytingarstudul-reykjavikurflugvallar/

Kári S. Lárusson (IP-tala skráð) 25.7.2016 kl. 23:38

11 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Hvernig dettur fólki í hug að kenna Jóni Gnarr um þetta flugvallarbull embættismafíunnar landlausu?

Jón Gnarr fékk engu að ráða um þetta flugvallar-sænska hertökubull! Sumir hafa meira að segja þorað að viðurkenna þá staðreynd að borgarstjórinn Jón Gnarr fékk ekki að ráða neinu um þetta MÝRARBULLDÆMI Reykjavíkur.

Eða er ég að fara með einhver ósannindi í því að Jón Gnarr reyndi að mótmæla, en fékk ekki að ráða? Þótt hann væri borgarstjóri?

Frekjukallar siðblindu-embættiskúgunarvaldsins í svikakerfinu valta yfir allt og alla. Eins og heiðarlegi Jón Gnarr sagði svo satt um frekjukallana!

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 26.7.2016 kl. 00:06

12 Smámynd: Jónas Gunnlaugsson


Höldum flugvallar málinu,

ráninu á flugvellinum vel á lofti í næstu þingkosningum

og þess vegna  í næstu áratugi.

Kennum þeim sem nú eru að reyna að eyðileggja tugmiljarða flugvöll að með tilkomu samtakamáttar fólksins á internetinu verður málið áfram vakandi.

Það eru þingmenn Íslendinga, sem eiga að búa til lög, svo að þessu flugvallar "ráni" verði afstýrt.

Þingmenn eiga að standa vörð um flugvöllinn.

Það er trúlega mun ódýrara að greiða heimsku skaða þeirra sem ásælast flugvöllinn, en að vera aðeins með einn góðan flugvöll á suðvesturlandi.

Hér er slóð, addressa.

Hvaða vald er það, sem hamast við að ná Flugvellinum af borgarbúum og landsmönnum öllum. Stjórnsýslan, það er Borgarstjórn og Alþingi og embættismenn, virðist ekki hafa bolmagn til að stöðva þessa valdbeitingu.

Egilsstaðir, 27.07.2016  Jónas Gunnlaugsson


Jónas Gunnlaugsson, 27.7.2016 kl. 17:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 48
  • Frá upphafi: 3417956

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 45
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband