Leita í fréttum mbl.is

Abraham Lincoln

er mér sagt að hafi ritað þennan boðskap:

 (sem er ekki rétt heldur þýskur prestur  Boetcker  d.1962. Vinur minn í Ameríku sendi mér þetta og mér fannst það gott sem það er. Það er víst algengt að eigna þetta Lincoln sem sagði nú eitt og annað ágætt og hefði alveg getað sagt eitthvað svona gáfulegt. En hvorki hann né ég voru nægilega littererir til að fatta þetta svo þetta bara leiðréttist. Það stendur alveg fyrir sínu.

ABE Í lauslegri þýðingu er þetta svona:

Það er ekki hægt að koma á velmegun með því að draga úr nýtni.

Þú getur ekki styrkt þann veika með því að draga máttinn úr þeim sterka.

Þú getur ekki hjálpað launþeganum með því að draga launagreiðandann niður.

Þú getur ekki útbreitt bræðralag manna með því að útbreiða stéttahatur.

Þú getur ekki hjálpað hinum fátæku með því að eyðileggja hina ríku.

Þú getur ekki forðast vandræði með því að eyða meiru en þú aflar.

Þú getur ekki byggt upp skapfestu og hugrekki með því að taka burtu frumkvæði manns og sjálfstæði.

Þú getur ekki hjálpað mönnum varanlega með því að gera það fyrir þá sem þeir gætu og ættu að gera sjálfir.

Sjálfsagt eru einhverjir þess umkomnir að segja að þetta sé fölsun og Abe hafi aldrei sagt þetta heldur jafnvel Karl Marx. Enn aðrir eru ósammála vegna stéttabaráttunnar og gefa ekkert fyrir svona raus.

Framtíð Íslands eftir kosningarnar næstu, í haust eða síðar, ræðst af því hvernig smekk þeir stjórnmálaflokkar sem mynda næstu ríkisstjórn hafa fyrir svona boðskap. Kannanir virðast benda til þess að traust kjósenda á opinberri forsjá muni ekki minnka og trúin á einstaklinginn muni láta undan síga. Enda sé hann yfirleitt hrappur sem reynir það óheiðarlega fyrst.

Abraham Lincoln hefur verið nokkuð sérstæður maður þegar allt er talið.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þessir málshættir eru eftir mann að nafni William John Henry Boetcker, skrifaður og gefnir út 50 árum eftir dauða Lincoln.

Munduru trúa því að þessi William var forstöðumaður fyrir það sem við mundum kalla félag atvinnurekenda hér á Íslandi?

Elfar Aðalsteinn Ingvarsson (IP-tala skráð) 28.7.2016 kl. 22:52

2 Smámynd: Már Elíson

Sama hver sagði eða skrifaði þetta - Vel að orði komist og umhugsunarvert fyrir alla báðu megin borðs. "Munduru" trúa því, Elfar, eða myndir þú ?

Már Elíson, 29.7.2016 kl. 12:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 13
  • Sl. viku: 50
  • Frá upphafi: 3418201

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband