Leita í fréttum mbl.is

Er þetta ekki neitt?

í augum stjórnarandstöðunnar og skríbentanna á Fréttablaðinu?

Þetta heitir á þeirra máli að þessi ríkisstjórn hafi akkúrat ekkert gert nema mylja undir kvótagreifana. Ekkert hafi verið gert nema að svíkja aldraða og öryrkja um bætur til þess að þjónka þeim sem betur mega sín.

Ríkisstjórnin felldi niður miðþrep tekjuskattsins. Þeir sem hafa tekjur að 800.000 krónum á mánuði borga nú skatta samkvæmt lægsta þrepinu. Er þetta hátekjufólkið og þeir sem betur mega sín? 

Raunhækkun

Nú hafa greiðslur til bóta almannatrygginga verið hækkaðar um yfir 26 þúsund milljónir í tíð þessarar ríkisstjórnar.                                 

Heimild Fjármálaráðuneytið og ræða Bjarna Benediktssonar <iframe width=&#39;512&#39; scrolling=&#39;no&#39; height=&#39;288&#39; frameborder=&#39;0&#39; type=&#39;text/html&#39; style=&#39;border:0;overflow:hidden;&#39; src=&#39;http://player.netvarp.is/althingi/?type=vod&width=512&height=288&icons=yes&file=20160815T145549&start=4407&duration=410&autoplay=false&#39;></iframe>

Þetta heitir ekki neitt á máli stjórnarandstöðunnar. Og hvað túlkendurna á Fréttablaðinu og þeim fjölmiðlum sem Bjarni Benediktsson ræddi um á dögunum, þá eru þeir hreint ekkert skárri að skilningi og tölulæsi en hæstvirt stjórnarandstaðan á Alþingi og er þá langt til jafnað.

Vill einhver útskýra fyrir mér hvernig tuttuguogsexþúsdundogáttahundruðmilljónir verða að núlli þegar stjórnarandstaðan less þessa töflu?

Er þetta bara ekki neitt sem fer tlil almannatrygginga? 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Tuttuguogsexþúsdundogáttahundruðmilljónir verða að núlli þegar tekið er tillit til fjölgunar bótaþega og hækkunar verðlags.

Tuttuguogsexþúsdundogáttahundruðmilljónir verða að núlli þegar horft er á hvort bótaþegar hafi það betra eður ei.

Tuttuguogsexþúsdundogáttahundruðmilljónir eru blekking þegar tvöföldun á þeirri tölu hefði ekki nægt til að halda í horfinu.

Í okkar þjóðfélagi notar enginn hráar krónutöluhækkanir úr tengslum við þróun annarra hagstærða nema til að blekkja.

Espolin (IP-tala skráð) 19.8.2016 kl. 17:39

2 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Það er um 10 þúsund eldriborgarar og yfir 7 þúsund börn sem búa við fátækt og 1400 börn sem búa við sárafátækt. 

Bjarni Ben hefur neitað að viðurkenna þetta og má sköm hans lifa um aldur og ævi. 

Kveðja frá Houston

Jóhann Kristinsson, 19.8.2016 kl. 20:03

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Hvað eru tuttuguogsexþúndogáttahundruðmilljónir deilt með 20.000 sárfátækum? Er það ekki meira en milljarður á kjaft. Milljón á hvern landsmann? Stela kratarnir þessu öllu í sjálfa sig eins og apinn með oststykkið? Hvað vantar mikið J&#39;ohann flugvirkjameistari?

Halldór Jónsson, 19.8.2016 kl. 20:59

4 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Spurðu fólkið sem gafst upp og fyrirfór sér.

Bjarni Ben er rola og grenjuskjóða, en hugsar vel um Engeyjarættina, hvert fór Borgun og hvert er Landsvirkjun að fara? Og hvað með Sjóva?

Hvenær ættlar þú verkfræðingurinn að draga hausinn ur aftu....... Og sjá hverslags óþverri Bjarni Ben er og hætta þessari flokks hjarðhegðun.

Kveðja frá Houston

Jóhann Kristinsson, 20.8.2016 kl. 01:41

5 identicon

Bótaþegum hefur fjölgað um nær 20.000 í tíð núverandi stjórnar. Hvað eru tuttuguogsexþúndogáttahundruðmilljónir deilt með 20.000? = 1.340.000 Ríkisstjórnin hefur semsagt sett rúmlega hundraðþúsundkall á mánuði í málaflokkinn fyrir hvern nýjan bótaþega. Engin steik á þeim borðum.

Espolin (IP-tala skráð) 20.8.2016 kl. 04:12

6 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Segðu mér að það sé bara hið besta mál að kona, sem hefur eytt bestu árum ævi sinnar til að ala upp stóran barnahóp og koma börnunum á legg hafi 200 þúsund krónur á mánuði til að lifa. 

Ómar Ragnarsson, 20.8.2016 kl. 09:01

7 Smámynd: Jón Valur Jensson

Tek undir orð Ómars.

Jóhann, gættu betur orða þinna þrátt fyrir augljósa réttlætiskenndina.

Halldór, 26,8 ma. á tæpl. 3 og hálfu ári gera um 7,9 milljarða á ári. Engin ástæða til að telja það mikið til svo stórs hluta þjóðarinnar.

Ný flokkur,  Íslenska þjóðfylkingin, hefur m.a. þá stefnu að afnema tekjutengingar lífeyrisþega og námsmanna og hækka frítekjumark allra í 300.000 á mánuði.

Jón Valur Jensson, 20.8.2016 kl. 11:05

8 Smámynd: Halldór Jónsson

Jóhann flugvirkjameistari, heyrðu hvað Jón Valur segir og það er alveg óhætt að hafa þann mann að fyrirmynd í orðprýði.

Og svo er ég ekkert í þeirri leikfimistöðu sem þú lýsir þegar ég kem að forystu Sjálfstæðisflokksins eða rauna hvaða þingmanna sem er. Ég vil ekki hafa neitt kjaftæði um að styðja ber, efla ber,auka ber eins og manni er boðið upp á í samþykktum flokkanna og ræðumennsku foringjanna,ég vil bara raunverulega fá á borðið hvað er verið að gera. 

það er langur vegur að ég skrifi undir svona lýsingar á Bjarna Ben eins og þú virðist sjá hann. Ég held að Bjarni sé að reyna að gera vel og samviskusamlega, Hann er búinn að gera margt ágætt og ég bið þig að dæma ekki skóginn eftir einu laufblaði.

Halldór Jónsson, 20.8.2016 kl. 17:42

9 Smámynd: Halldór Jónsson

Já Jón Valur,

Málflutningur hans Gunnlaugs Ingvarssonar við ásökunum um rasisma er eitthvað sem þið eigið að taka upp. Hann pakkaði pakkinu saman með nokkrum setningum um kærleik til allra manna sem væri auðvitað ekki sama og stjórnmál og skipulagning málaflokka.

Rólega og æsingalaust þurfum við að skýra út hversvegna við viljum stjórna innflutningi fólks sjálf. Hversvegna verður að stjórna þessu eigi ekki illa að fara. Nægar eru fyrirmyndirnar hjá frædnþjóðunum og vítin til að varast.

Erum við að gera nokkru fólki greiða að flytja það úr einu vonleysi yfir til annars?

Halldór Jónsson, 20.8.2016 kl. 17:48

10 Smámynd: Halldór Jónsson

Espólin, þetta er ekki réttar tölur hjá þér. Island framleiðir ekki 20 bótaþega á dag 24/7/365

Halldór Jónsson, 20.8.2016 kl. 17:51

11 Smámynd: Jón Valur Jensson

Þakka þér, Halldór, og sammála er ég þér um nauðsynina á okkar eigin stjórn á innflutningi fólks. Og Gunnlaugur er orðheppinn og stendur sig vel.

Jón Valur Jensson, 20.8.2016 kl. 18:18

12 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Ég fer ekkert af minni skoðun hver Bjarni Ben er. Þetta er maður sem hefur sagt að eldri borgarar hafi mjög góð ellilifeyrislaun og bara þurfa ekki meira. Hann hefur marg oft sagt þetta.

það er búið að láta reikna það ut hvað fátækramörkin eru á Íslandi og talan 280 þúsund til 300 þúsund er það sem hefur verið niðurstaðan íþeim könnunum.

Fjöldin allur af eldriborgurm eru að fá fyrir skatta 210 þúsund til 230 þúsund, eftir skatta að meðaltali 170 þúsund. Hver getur lifað á svona ef ellilífeyrislaunum? Húsaleiga 100 þúsund til 120 þúsund, rafmagn, hiti, og lif. Þegar þessar greiðslur hafa verið greiddar þá er litið sem ekkert fyrir mat.

það eru yfir 7 þúsund börn sem lifa við fátækt og yfir 1400 börn sem lifa við sárafátækt á Islandi, af hverju er það af af hverju gerir Bjarni Ben ekkert í þessu?

Svo er blekið varla þornað á pappírnum og Bjarni Ben hleypur með nokkra miljarða til Kína, til hvers?

Svo finst þessum skörungi Bjarna Ben allt í lagi að hækka mánaðar  laun ríkisstarfsmanna bara hækkunin er um tvisvar sinnum meira en ellilífeyrisþegar fá á mánuði, hvar er sanngirnin í þessu?

Halldór minn þú ert að halda því fram að Bjarni Ben hafi verið að vinna vel og samviskulega og gert margt gott. Eg spyr, fyrir hverja?

Ég gæti haldið áfram að telja upp það sem Bjarni Ben hafur gert illa og ekki samviskulega, en ég tel að þessir smánarblettir sem eg hafi dregið fram í ljósið styðji álit mitt á Bjarna Ben.

það eru hópar í þjóðfélaginu sem Bjarni Ben hefur gert vel fyrir, það er peninga elítan og starfsmenn Ríkisins og þá sérstaklega stjórana í ríkisbákninu. Ég spyr, ert þú einn af þessum sem að Bjarni Ben hugsar vel um.

Kveðja frá Houston

Jóhann Kristinsson, 21.8.2016 kl. 13:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 40
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband