Leita í fréttum mbl.is

Hin nýja tíð

sem upp er runnin passar ekki lengur í hinn verðtryggða veruleika á Íslandi.

Fólkið passar ekki lengur í hina gömlu þjóðfélagsmynd. Það er nefnilega búið að snúa þjóðfélaginu á haus. Það er ekki miðað við fólkið eins og það var í gamla daga, sem ól sín börn uppp sjálft og baslaðist áfram í lélegu húsnæði, keyrði á vondum bílum og sparaði við sig hverja krónu.

Nú eiga helst bæði sambýlinga(ekki hjóna lengur) að vera innrituð í félagsfræðideild Háskólans, á námslánum í stúdentaíbúðum og bíða eftir vellaunuðu starfi sem hæfir menntun þeirra hjá ríki eða bæ. Það er skiljanlega erfitt fyrir þetta fólk að kaupa 100 fermetra í búð í 101 á 80-100 milljónir. En því finnst samt að þjóðfélagið skulda því þetta úr því að það kaus að læra þetta í Háskólanum þó það fatlaði sig um leið til annarrar vinnu en þeirrar sem menntun þess stendur til. Eða hvað?

Ég hef velt því fyrir mér hvort eitthvert sveitarfélag gæti búið til byggingareit með litlum lóðum og þröngum götum, þar sem lóðirnar fengjust á afborgunarkjörum  sem hæfust mest þegar flutt væri á lóðina. Þarna mætti setja niður bráðabirgðahús eins og einhverskonar sumarbústaði, gámahús eða þessháttar sem yfirvöld ákvæðu. Þarna gæti fólk í fátæktargildrum fengið að setja sig niður með fyrir 1/6 til 1/2 af því sem íbúðir kosta. Svona hverfi getur alveg verið snyrtilegt, barnvænt og upplitsdjarft,-það hef ég séð með eigin augum í Bandaríkjunum þar sem fólk lifir alveg eins og hitt fólkið í fínni hverfunum, nema bara að húsin eru ekki byggð til mörghundruð ára endingar.

Fátækt fólk gæti komið yfir sig húsi uppi á afrétti með mjög lítlum peningum. En maður er manns gaman svo að menn geta ekki lifað þannig einir síns liðs. En nokkrir saman á stað þar sem bílfært er í skóla og útréttingar?

Er það ásættanleg framtíðarsýn að Háskólafólkið í dæminu hér að ofan skuli aldrei eignast möguleika á að búa í eigin húsnæði af því að það er búið að gefa í spili sem það getur ekki spilað, m.a. vegna eigin ákvarðana?

Tíð hins óafturkræfa menntapróletaríats er runnin upp þar sem fólk kemst aldrei út úr námsskuldunum né öðru sem það hefur steypt sér í með lántökum. En það er ekki sama og það þurfi að gefast upp fyrir hinni nýju tíð án þess að reyna eitthvað?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Jónsson

Það er greinilega enginn að hafa áhuga á að lækka standardinn á því sem kallast íbúðir. Er menn að óttast stéttaskiptingu í framhaldi? Einhvert ósnertanlegt fólk sem býr i "Pólunum"

Halldór Jónsson, 21.8.2016 kl. 05:00

2 Smámynd: Halldór Jónsson

'eg skil bara ekki að fólk hafi ekki áhuga á raunhæfum hlutum. Eða er vandinn kannski ekki eins og haldið er frma. menn eru að spila á kerfið á einhvern hátt sem ég ekki sé..

Halldór Jónsson, 21.8.2016 kl. 22:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 6
  • Sl. sólarhring: 12
  • Sl. viku: 54
  • Frá upphafi: 3418205

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 54
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband