Leita í fréttum mbl.is

Réttlætismál aldraðra

 

 

Eftir Bjarna Benediktsson

BB-mynd1"“Frelsi einstaklingins til að ráða sínum málum sjálfur, afla sér tekna og verja þeim að vild á ekki að ljúka þegar lífeyrisaldri er náð.”

Um daginn hitti ég mann sem er kominn yfir sjötugt. Hann sagði mér að hann væri hættur að vinna – aftur. Hann hafði hætt þegar hann komst á aldur en síðustu ár hefur orðið heldur þrengra í búi hjá honum og konu hans og þess vegna tók hann því feginshendi þegar honum bauðst vinna hjá sama vinnuveitanda og áður. Vinnan var ekki mikil og launin þannig séð ekki heldur, en hann hugsaði sem svo að það munaði um allt og svo var líka ánægjulegt að fara reglulega út úr húsi, starfið var skemmtilegt og vinnufélagarnir líka.

Hver var ávinningurinn?

Ekki leið á löngu þar til hann áttaði sig á því að þrátt fyrir að launin næmu 80.000 krónum á mánuði, jukust ráðstöfunartekjurnar ekki um nema rúmar 4.000 krónur á viku. Að hans sögn skilaði vinnan vegna skerðinga innan við 20.000 krónum betri stöðu í lok mánaðar. Þrátt fyrir að þessi maður hefði ánægju af starfinu og fengi þó meira en ella í vasann, sagði hann upp. Hann sagði að það hefði verið hæpið að það svaraði kostnaði fyrir hann að sækja vinnu enda fylgja því alltaf einhver útgjöld, ekki síst þegar aka þarf talsverða vegalengd, eins og í þessu tilviki, með bensínverðið eins og það er.

Þarna er maður, góður í sínu fagi, sem getur lagt til verðmæta þekkingu og nýtur þess að vera virkur á vinnumarkaði. En – honum sárnaði virðingarleysið sem fólst í því að skerða tekjur hans með þessum hætti og hvatinn til þess að vinna gufaði upp.

Ástæðan er sú að árið 2009 voru tekjumöguleikar aldraðra skertir með því að afnema rétt fólks yfir sjötugu til að vinna fyrir launum sem þessum án þess að það hefði áhrif á bætur.

Sé fólk í þeirri stöðu að geta og vilja vinna á það að hafa möguleika á því án þess að skerðingar bóta leiði til þess að allur hvati sé af því tekinn. Hér gæti einhver sagt að bætur væru einungis fyrir þá sem þurfa á þeim að halda og engar hafa tekjurnar. Það er rétt svo langt sem það nær en það er fleira sem hangir á spýtunni. Ef of langt er gengið í skerðingum upplifir fólk hvorki tilgang né sanngirni í þeim stuðningi sem stjórnvöld veita. Við verðum að gera kröfu um að lög og reglur styðji við sjálfshjálp, tryggi umbun fyrir að leggja sig fram og festi ekki aldraða í fátæktargildrum.

Þungar byrðar á aldraða

En þetta er ekki það eina sem hefur rýrt kjör eldri borgara á þessu kjörtímabili.

Tekjutengingar vegna maka- og fjármagnstekna hafa verið stórauknar. Grunnlífeyrir hefur verið skertur og stór hópur sem áður fékk slíkan lífeyri gerir það ekki í dag. Bætur hafa ekki haldið í við verðlag.

Þegar metnar eru breytingar á fjárlögum innan líðandi kjörtímabils kemur í ljós að aldraðir standa undir um 10% varanlegs niðurskurðar í ríkisrekstrinum. Samtals má áætla að ríkisstjórnin hafi dregið úr greiðslum til málaflokksins um a.m.k. 13 milljarða. En aldraðir hafa að sjálfsögðu ekki, frekar en aðrir þjóðfélagshópar, sloppið við skattastefnuna og þannig er sótt að þeim úr tveimur áttum.

Fjöldi eldri borgara, sem hafa orðið fyrir barðinu á svonefndum auðlegðarskatti, hefur litlar eða engar tekjur til að standa undir slíkum greiðslum. Um 300 manns með tekjur undir 80.000 krónum á mánuði reiddu fram 430 milljónir í þennan skatt árið 2011. Þennan skatt þarf að afnema hið fyrsta.

Sjálfstæðisflokkurinn ætlar einnig að afturkalla þá kjaraskerðingu, sem eldri borgarar og öryrkjar urðu fyrir 1. júlí 2009. Skerðingum vegna greiðslna á ellilífeyri, krónu fyrir krónu, verður hætt og hann leiðréttur til samræmis við þær hækkanir sem orðið hafa á lægstu launum síðan í ársbyrjun 2009.

Réttlætismál

Sjálfstæðisflokkurinn mun bæta stöðu aldraðra. Draga aftur úr tekjutengingum og hjálpa fólki til sjálfshjálpar með því að leyfa öllum yfir 70 ára aldri að afla sér tekna án skerðinga. Hækka að nýju lífeyrisgreiðslur, tryggja að aldraðir á dvalarheimilum haldi fjárhagslegu sjálfstæði og eyða þeirri mismunun sem birst hefur í aðgerðum stjórnvalda undanfarin ár.

Frelsi einstaklingins til að ráða sínum málum sjálfur, afla sér tekna og verja þeim að vild á ekki að ljúka þegar lífeyrisaldri er náð. Aldraðir eiga að njóta efri áranna með reisn. Þeir eiga að hafa raunverulegt val um hvernig þeir haga lífi sínu, hvort sem það felst í að búa á dvalarheimili eða í eigin húsnæði, stunda vinnu eða ekki.

Það er réttlætismál að veita öldruðum raunverulegt frelsi til að njóta ávaxta ævistarfs síns. Í þágu þess réttlætismáls ætlar Sjálfstæðisflokkurinn að vinna".

Morgunblaðið 9. apríl 2013
Eftir Bjarna Benediktsson
http://www.mbl.is/greinasafn/grein/1461472

 

Sjálfstæðisflokkurinn gleymir ekki loforðum sínum þó það geti tekið tíma að klára þau. Þetta þing er ekki úti og Bjarni hefur ekki sagt sitt síðasta orð.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Erla Magna Alexandersdóttir

Fjandi er hann samt lengi að koma ser að þessu síðasta orði !

Erla Magna Alexandersdóttir, 21.8.2016 kl. 13:39

2 identicon

Kjararáð semur um 40-50% hækkun til Elítunnar, upp á mörghundruð þúsund á mánuði, og það afturvirkt, og nú á kjararáð, eftir að skamta þingmönnum og ráðherum eithvað svipað, en Salek samkomulagið 3-4% hækkun fyrir launafólk, ellilýfeyriborgara, og öryrkja, þetta er náttúlega fullkolega galið,og það á náttúlega að ógilda þennan úrskurð Kjararáðs,  þjóðin mun ekki láta bjóða sér svona séhagsmuna gæslu, Elítunnar í landinu, og útkoma kosninganna verður eftir því, ef ekkert verður að gert.

Halldór Guðmundsson (IP-tala skráð) 21.8.2016 kl. 13:42

3 Smámynd: Steindór Sigurðsson

Halldór Jónsson, þú hefur óbilandi trú á spillingunni. Ég er þeirrar skoðunnar að vesalinginn hann Barna þurfi að skóla svolítið til. Ég legg það til kvikindið verði sent á frystitogara í nokkur ár og gá hvort hann geti mögulega orðið að manni. Þá áttar hann sig á hvernig verðmætin verða til í landinu og ég er þess fullviss að eftir þá reynslu fækkar eitthvað fyrirtæjunum sem hann setur lóðbeint á hausinn.

Steindór Sigurðsson, 21.8.2016 kl. 13:51

4 Smámynd: Halldór Jónsson

 Ósköp ertu dómharður Steindór minn. Ég er nokkuð viss um að þú getur hugsað betur en þetta og áttað þig betur á mönnum og málefnum. Hvað ætlarðu til dæmis að kjósa?.

Halldór Jónsson, 21.8.2016 kl. 14:51

5 Smámynd: Halldór Jónsson

Já nafni, upptalningin á þessu er fyllilega galin, því miður. En svona eru leikreglurnar sem við búum við.Hver samdi þær? Bjarni Ben? Eða kannski hann Steindór Sigurðsson?

Erla Magnea. Góðir hlutir gerast hægt.

Halldór Jónsson, 21.8.2016 kl. 14:54

6 Smámynd: Þórir Kjartansson

Fólk bara hlær að þessu hjá Bjarna því allir sjá að hugur fylgir ekki máli. Bara hræðsla vegna þess að hann er búinn að uppgötva að nú er ekki lengur hægt að halda eldri borgurum á hungurmörkum en fá samt atkvæðin þeirra. 

Þórir Kjartansson, 21.8.2016 kl. 15:35

7 Smámynd: Halldór Jónsson

Þórir, ef þetta er ekki rétt hja þér, hvað ertu þá?

Halldór Jónsson, 21.8.2016 kl. 17:43

8 Smámynd: Þórir Kjartansson

Skil nú ekki alveg spurninguna þína, Halldór en því miður sé ég ekki annað en Bjarna sé nákvæmlega sama um kjör aldraðra. Ef ekki væri hann löngu búinn að færa það til betri vegar. Þetta snýst um peninga og hann er sá sem heldur um budduna. Ef þetta er rangt mat hvað er ég þá, spyrð þú: Bara eins og áður, fyrrverandi Sjálfstæðismaður, sem flokkurinn fór frá þegar Davíð og félagar fóru með hann út í hægra myrkrið. En vonandi hef ég metið Bjarna skakkt í þessu máli, enda á margan hátt mjög hæfur stjórnmálamaður.  

Þórir Kjartansson, 21.8.2016 kl. 18:02

9 Smámynd: Halldór Jónsson

Gott Þórir, þér er ekki alls varnað

Halldór Jónsson, 21.8.2016 kl. 22:11

10 identicon

Sæll Halldór.

Mér sýnist að almennur skilningur
samfélagsins sé sá að aldraðir og öryrkjar
séu vel haldnir af sínu og enginn þörf til breytinga
enda er þetta þess utan sundurleitur hópur
sem hefur alls ekkert afl sér að baki og
hvorki stjórn né stjórnarandstaða virðist sjá
sér nokkurn hag í að koma þar nærri eða hefur
þér virst svo á síðustu dögum?

Svarið við þessu er einfalt: Megi þeir sjálfir
eta það sem úti frýs og kjósa sig sjálfa!

Húsari. (IP-tala skráð) 22.8.2016 kl. 12:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 8
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 65
  • Frá upphafi: 3418159

Annað

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 59
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 8

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband