Leita í fréttum mbl.is

Dagur sparar

í rekstri skóla Borgarinnar svo hressilega að hreinn viðsnúningur er í bæjarkassanum að hans sögn. Enginn spyr af hverju hann hafi ekki gert þetta fyrr eftir allan þennan valdatíma?

Skólum er gert að spara í mat, spara í ritföngum, spara allstaðar. Alltaf hægt að gera betur segir Dagur Bé.

Það er eiginlega bara eitt sem virðist vera að bögga skólastjórnendurna í Reykjavík. Það eru nemendurnir sem eiga að fá tiltekna þjónustu.

Skólastjórnendur segjast verða að hætta að veita þjónustuna vegna þess að búið sé að spara svo mikið að það sé ekki peningur fyrir að reka skólana. Skólar í Kópavogi fái mun meira fé per einingu.  En þar er sjálfsagt bara bruðl á ferðinni úr því að ekkert er kvartað þar?  

Enda þurfa þeir ekki að kosta rakettusýningar og hljómsveitir til að spila undir söng Borgarstjórans á menningarnótt eða standa í viðskiptastríði við Ísrael eins og Borgarstjórn Reykjavíkur eða opna kynlausa klefa í sundlaugunum.  

Skúli Helgason er pollrólegur yfir þessu og segir þetta allt á réttri leið. Skólastjórarnir segja að málin séu komin út fyrir endamörk.  Lætur gróðinn af lokun flugvallarins eitthvað standa á sér? Geta ekki Valsmenn ehf. borgað hraðar?

Ráðdeild og hagsýni vinstrimanna á sér engin takmörk.Við munum hann Steingrím J. hvernig hann bjargaði okkur úr kreppunni 2009, jafnvel matarlaus sjálfur.Hann hefði betur sungið fyrir okkur eins og Dagur Bé.. Þá hefði hann kannski verið endurkosinn 2013.

það er verst að það skuli ekki heyrast neitt í stjórnarandstöðu í Reykjavík. Voru ekki örugglega einhverjir fulltrúar þaðan?

En það er kannski nóg að Dagur spari og spari um leið umræður um svona leiðindamál eins og þessa óánægju hjá skólastjórnendunum. Þeir hljóta að geta gert betur. Kannski sent börnin bara heim?  

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Það sannast sífellt betur að vinstra liðið hefur ekki hundsvit á peningum, hvernig þeir verða til, hvernig þeir virka eða hvernig með þá skuli fara.

Meðan grunnþjónusta Reykjavíkurborgar, sú þjónusta sem sveitarfélög eru lögbundin að sinna, er í molum og hver grunnstoðin af annarri er að falla, þá er sólundað miklum fjármunum í alls kyns dekurverkefni einstakra borgarfulltrúa.

Einn hefur gaman af því að ferðast á reiðhjóli og þá eru lagðir reiðhjólastígar um allt. Þar sem ekki er nægilegt pláss fyrir breiða reiðhjólastíga, er einfaldlega tekið pláss af götunum. Jafnvel slíku plássi stolið þó nægt pláss sé annars vegar götunnar, en borgarfulltrúinn vill endilega hjóla hinumegin hennar. Dæmi um slíka fásinnu má sjá á framkvæmdum við eystri og lengri hluta Grensásvegar.

Annar er mikill aðdáandi Valsmanna ehf og vill veg þeirra sem mestan. Fórnun neyðarflugbrautar er ekki mikið mál, til að þóknast vinum sínum.

Sjálfur er borgarstjórinn haldinn athyglissýki af háu stigi. Aldrei er því skortur á fjármagni til hinna ýmsu viðburða, þar sem hann getur komið sjálfum sér á framfæri, hvort heldur það er til að sýna sönghæfileika sína, dugnað með málningarpensil, kraft við skóflumokstur, nú eða hverja þá hæfileika sem sá maður telur sig búa yfir.

Svona mætti lengi telja, enda einkenni vinstri manna að telja sjálfa sig æðri öðrum. Það er skelfileg tilhugsun að þetta lið geti hugsanlega komist yfir ríkiskassann, á haustdögum.

Tek heils hugar undir með þér, hvar er stjórnarandstaðan í borgarstjórn?

Lengi framanaf hafði Sjálfstæðisflokkur tögl og haldir í Reykjavík, oftast einflokka í stjórn borgarinnar. Undanfarna áratugi hefur lukkan ekki verið flokknum hliðholl, þar á bæ. Af einskærri óheppni hefur valist í forustu flokksins í borgarstjórn hver þverhausinn af öðrum, sem hefur aftur stór skaðað flokkinn. Þarna hafa komist til áhrifa flokksins fólk sem hefur verið meira umhugað um stefnu annarra flokka, fólk sem ekki hlustar á eigin flokksfélaga.  Nægir þar að nefna tvö nöfn, svo fólk átti sig á vitleysunni; Gísla Martein og Hönnu Birnu, auk annarra.

Þetta fólk stóð frekar með andstæðingnum en eigin flokki og tók ákvarðanir í algerri andstöðu við vilja flokksfélaga. Reyndar hélt Hanna Birna slíkum tvískinnungi áfram, eftir að hún færði sig frá sveitarstjórnarsviðinu yfir í landsmálapólitíkina. Hennar dagar í pólitík eru því taldir, sem og margra annarra slíkra innan flokksins.

Núverandi fulltrúar Sjálfstæðisflokks í borgarstjórn eru duglausir með öllu. Ef ekki koma fram frambærilegir frambjóðendur fyrir flokkinn fyrir næstu sveitarstjórnarkosningar, frambjóðendur sem hafa dug og þor til að standa á þeim gildum sem flokkurinn var stofnaður um, mun skelfing vinstraliðsins halda áfram að herja á borgarbúa!

Það er gott að búa EKKI í Reykjavík!

Gunnar Heiðarsson, 30.8.2016 kl. 08:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 40
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband